Morgunblaðið - 15.11.2000, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 41-
UMRÆÐAN
Góð reynsla sem
vert er að geta
ÉG ER EIN af þeim sem ratað
hafa nokkuð áfallalaust í gegnum líf-
ið. Ég er þrjátíu og fjögurra ára og
má segja að líf mitt hafi verið nokkuð
slétt og fellt með smá orrustum sem
tekist hefui- að sigrast á án utanað-
komandi aðstoðar. Þar til að árið 2000
gekk í garð. Ég hóf mína fjórðu með-
göngu snemma á þessu ári og gerði
ráð fyrir, eins og flestar konur gera,
að eignast heilbrigðan einstakling í
lok meðgöngu á síðari hluta ársins.
Fljótlega kom í ljós að meðgangan
vegna þess að góð störf eru sjálfsögð
og því ekki fréttnæm? Þetta er
ástæðan fyrir því að ég deili þessari
reynslu minni með alþjóð því þetta er
góð reynsla sem vert er að geta.
En þá er ekki upp talinn allur sá
stuðningur sem ég naut við á þessari
þrautargöngu minni. Ég er utan af
landi. Ég var því stödd fjarri ástvin-
um þessa þrjá mánuði og hafði ekki
samastað í Reykjavík þegar ég út-
skrifaðist af sjúkrahúsinu en bamið
mitt dvaldi þar áfram. Þá kom til
Heilbrigðiskerfið
Þessi reynsla kenndi
mér, segir Soffía Gísla-
dóttir, að meta öll þau
gæði sem við búum við
hér á landi.
kasta annars stuðningskerfis sem í
mínu tilfelli var Rauði krossinn á Is-
landi. Á vegum Rauða krossins var
mér úthlutað íbúð nálægt Landspít-
alanum og að auki fékk ég hádegis-
verð á Rauðakrosshótelinu daglega.
Öll var þessi þjónusta mér að kostn-
aðarlausu. Kannski hljómar þetta
sem sjálfsögð þjónusta en hún er það
ekki, heldur er hún dýrmæt hverjum
þeim sem á þarf að halda.
Hvað kenndi svo þessi reynsla
mér? Hún kenndi mér að meta öll þau
gæði sem við búum við hér á landi.
Hún kenndi mér að meta það örygg-
isnet sem við búum við í heilbrigðis-
þjónustunni allt í kringum landið, ör-
yggisnet sem ekki má bresta.
Ég vil í lokin þakka starfsfólki
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga,
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
starfsfólki meðgöngudeildar, fæð-
ingadeildar og vökudeildar Land-
spítalans og starfsfólki Rauða kross-
ins sem studdi mig allt á þessum
stórgrýtta vegi uns hann varð sléttur
áný._________________________________
Höfundur er Ijögurra barna móðir,
ffílngsnuíhistjóri Þingeyingu og
varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í Norðurlandi eystra.
Hönnun
Gullsmiðir
^mb l.is
ALLTA/= eiTTHV'AO IVÝT7
Soffía Gísladóttir
yrði mér ekki dans á rósum enda varð
hún að baráttu fyrir hinu dýrmæta
lífi sem ég bar undir belti. Áfallið reið
yfir þar sem ég var stödd í Keldu-
hverfi í Norður-Þingeyjarsýslu
(norður á hjara veraldar eins og ein-
hveijir myndu kalla það). Það var
seint um kvöld að kalla þurfti til
sjúkrabíl og lækni frá Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga. Þar var brugðist
skjótt við og ég var flutt yfir ófæruri
Tjömesvegarins sem nú er í upp-
byggingu og sem leið lá á Fjórðung-
ssjúkrahúsið á Akureyri. Þar dvaldii
ég níman sólarhring þar til ég var
flutt með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Næstu þijá mánuðina dvaldi ég síðan
á Landspítalanum. Þar fékk ég tæki
færi til þess að kynnast meðgöngu-
deild, fæðingadeild og vökudeild og
öllu því frábæra starfsfólki sem þar
starfar.
En hvers vegna er ég að segja al-
þjóð frá þessari erfiðu reynslu minni
sem þó endaði mjög vel? I starfi mínu
sem félagsmálastjóri Þingeyinga,
sem varaþingmaður og sem almenn-
ur borgari tel ég mig hafa haft góða
vitneskju á því hversu gott heilbrigð-
iskerfi okkar íslendinga er en þekk-
ing er ekki það sama og reynsla og
þessi reynsla hefur reynst mér dýr-
mætari en mörg önnur. Á þessum
þremur mánuðum kynntist ég því
hversu gott fagfólk við eigum innan
heilbrigðisstéttanna og hversu góð
störf það vinnur, oft við misjafnar að-
stæður. Þama kynntist ég mann-
gæsku þeirra og svei mér þá ef ég
spurði mig ekki oft að því hvort
„englaryki“ væri dreift yfir þá við út-
skrift þeirra sem fagfólks. En hver
talar um það? Hver segir frá góðri
reynslu sinni úr heilbrigðiskerfinu?
Það eru ófáar greinarnar sem við les-
um um gagnrýni á heilbrigðiskerfið
og ófáar fréttirnar sem við fáum af
óförum innan þess. En hvar eru þeir
fjölmörgu íslendingar sem hafa góða
reynslu af starfi heilbrigðisstarfs-
manna hér á landi, hvar eru þeir Is-
lendingar sem upplifað hafa „krafta-
verk“ af hálfu þessara starfsmanna?
f>ví láta þeir ekki í sér heyra? Er það
GRACE
ROSNER
Kvensíöbuxur
þrjár skálmalengdir
mikið úrval
Suðurlandsbraut 50, simi 553 0100,
(bláu húsin við Fákafen).
Opið virka daga 10-18, laugard. 10-16.
Við kynnum nýjar
verslanir
- og bjóðum Akureyri
velkomna í hópinn.
í tilefni þess bjóðum ^
við þessar vörur á ^ó'*
í ÖLLUM VERSLUNUM BILANAUSTS
Úrval af málningarvörum
fyrir bílinn og heimiliö
Hjólatjakkur
2 tonna {
Rúðuvökvi
Vnr. 30010201
5 lítrar á aöeins kr. 190
Manista
handþvottakrem
Vnr. 115 GI223RH
3 lítrar
á aöeins
kr. 990
Handkastari
6 volt
Vnr. 060 55947
125mm kr. 3.390
Vnr. 060 55949
150mm kr. 3.860
Aukaljos
Kr. 3.998
Vnr. 063 090903
Einnig
seldir stakir
Að þessu tilefni bjóðum við
íbúum Norðurlands qos oq snakk:
RITOS'
naust
535 9
REYKJAVIK Borgartuni 26 • REYKJAVIK Bildshöfði 14
REYKJAVÍK Skeifunni 2 • HAFNARFJÖRÐUR Bæjarhrauni 6
AKUREYRl Oalbraut 1A • KEFLAVÍK Grófin 8
EGILSSTAÐIR Lyngás 13 • HÖFN HORNAFIRÐI Álaugarvegur 2