Morgunblaðið - 15.11.2000, Page 58

Morgunblaðið - 15.11.2000, Page 58
58 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2000 DAGBOK MORGUNBLAÐIÐ í dag er miðvikudagur 15. nóvember, 320. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum. (Tít.2,11.) Skipin Reykjavi'kurhöfn: Sel- foss kemur og fer í dag. Bakkafoss kemur í dag, Dettifoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Se!- foss fer í dag. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Sólvalla- götu 48. Flóamarkaður og fataúthlutun. Opið frá kl. 14-17. Mannamót Aflagrandi 40. Kl. 8.45 leikfimi, kl. 10.15 Búnað- arbankinn, farið verður á Listasafn Islands að sjá yfirlitssýningu á verkum Þórarins B. Þorlákssonar fimmtud. 16. nóv., lagt af stað frá Aflagranda kl. 14. Skráning í s.562-2571. ^Árskdgar 4. Kl. 9-12 baðþjónusta, kl. 9-16.30 klippimyndir, útsaumur o.fl., kl. 13 smíðastofan opin og spilað, kl. 9 hár- og fótsnyrtistofur opnar. Bölstaðarhlíð 43. Kl. 8- 13 hárgreiðsla, kl. 8- 12.30 böðun, kl. 9-12 vefnaður, kl. 9-16 handavinna og fótaað- gerð, ki. 10 banki, kl. 13 spiladagur og vefnaður. Félagsstarf aldraðra Dalbraut 18-20. Kl. 9 hárgreiðslustofan og handavinnustofan opn- ar, kl. 13 opin handa- vinnustofan. Félag eldri borgara, Kópavogi. Viðtalstími í Gjábakka í dag kl. 15- 16. Skrifstofan í Guli- smára 9 opin í dag ki 16.30-18. Félagsstarf aidraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 10 hársnyrting og verslunin opin til kl. 13, -Jd. 13 föndur og handa- vinna, kl. 13.30 enska, byrjendur. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Ferð í Þjóð- leikhúsið að sjá Kirsu- berjagarðinn 18. nóv., pantið miða í Kirkju- lundi s. 565-6622. Spila- kvöid verður 16. nóvem- berkl. 19.30 íboði UMF Stjörnunnar í Stjörnu- heimilinu. Rútuferðir samkvæmt áætiun. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli. Myndmennt ki. 13. Pílu- kast og frjáls spila- níennska kl. 13.30. í fyrramálið er púttæfing í Bæjarútgerðinni kl. 10-12. A morgun veður opið hús kl. 14. Eldri skátar sjá um skemmti- dagskrá. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Göngu- Hrólfar fara í göngu frá Ásgarði í Glæsibæ í dag kl. 10. Söngfélag FEB, kóræfing ki. 17. Línu- Tíanskennsla fellur niður í kvöld. Bláa lónið og Þingvallaleið bjóða eldri borgurum að heimsækja Bláa lónið á hálfvirði (ferð og aðgangur). Fyrsta ferð verður næstkomandi fimmtu- dag kl. 13.30. Náð verð- ur í fólkið á tveim stöð- um í Reykjavík við Iþróttahöllina í Laugar- dal og við Hlemm. Ingi- björg Pálmadóttir heil- brigðisráðherra tekur á móti hópnum við kom- una í Bláa lónið. Síðasti fræðslufundurinn á haustönn undir yfir- skriftinni „Heilsa og hamingja á efri ár- um'Verður laugard. 18. nóv. kl. 13.30. Fræðslufundirnir verða í Ásgarði Glæsibæ, fé- lagsheimili Félags eldri borgara. Allir velkomn- ir. Gerðuberg, félagsstarf. Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 gamlir leikir og dansar hjá Helgu Þórarinsdóttur, kl. 11.20 „Kynsióðirnar mætast 2000“, börn úr Olduselsskóla í heim- sókn, frá hádegi spila- saiur opinn, kl. 13.30 Tónhornið. Sunnud. 19. nóv. syngur Gerðu- bergskórinn við guðs- þjónustu í Kópavog- skirkju kl. 14, prestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirs- son. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum frákl. 10-17, kl. 10.30 boccia, kl. 13 félagsvist, kl. 16 hringdansar, kl. 17 bobb og tréskurður. Gullsmári, Gullsmára 13. Opið kl. 9-17. Fóta- aðgerðastofan er opin kl. 10-16. miðviku-, fimmtu- og fóstudaga. Leikfimi kl. 9 og 10, vefnaður kl. 9, keramik- málun kl. 13, enska kl. 13.30. Hraunbær 105. Kl. 9- 16.30 bútasaumur, kl. 9- 12 útskurður, kl. 9-17 hárgreiðsla, kl. 11 banki, kl. 13 brids. Hæðargarður 31. Kl. 9 opin vinnustofa, og fóta- aðgerð, kl. 13 böðun. Hvassaleiti 58-60. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir, hárgreiðsla, keramik, tau, og silkimálun og jóga, kl. 11 sund í Grensáslaug, ki. 15 teiknun og málun. Norðurbrún 1. Kl. 9-16 fótaaðgerðarstofan opin, kl. 9-12.30 útskurður, kl. 9-16.45 handavinnu- stofurnar opnar, ki. 10 sögustund, kl. 13—13.30 bankinn, kl. 14 félags- vist, kaffi og verðlaun. Vesturgata 7. Kl. 8.30 sund, kl. 9 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 aðstoð við böðun, mynd- listarkennsla og postu- línsmálun, kl. 13-16 myndlistarkennsla og postulínsmálun, kl. 13- 14 spurt og spjaliað. Glerskurður hefst í dag kl. 13-16, leiðbeinandi Sigurdís. Fimmtudaginn 16. nóvember ki. 10.30 er fyrirbænastund í um- sjón sr. Jakobs Ágústs Hjálmarssonar Dóm- kirkjuprests. Allir vel- komnir. Vitatorg. Ki. 9 smiðjan og hárgreiðsla, kl. 9.30 bankaþjónusta, kl. 10 morgunstund og fótaað- gerðir, bókband og búta- saumur, kl. 13 hand- mennt og kóræfing, kl. 13.30 bókband.kl. 14.10 verslunarferð. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi, hittast á morgun fimmtud. kl. 10 í Keilu- salnum í Mjódd. Spiluð keila, spjallað, kaffi. Ail- ir velkomnir. Upp- lýsingar veitir Ingibjörg Sigurþórsdóttir í s. 545- 4500. Háteigskirkja. Opið hús í dag fyrir 60 ára og eldri í safnaðarheimili Háteigskirkju frá kl. 10- 16. Kl. 10-11 morgun- stund með Þórdísi, kl 11-16 samverustund, ýmislegt á prjónunum. Súpa og brauð í hádeg- inu, kaffi og meðlæti kl. 15. Ath. takið með ykkur handavinnu og inniskó. Vonumst til að sjá sem flesta. Gengið inn Við- eyjarmegin. Á morgun kl. 10 foreldramorgunn, kl. 16-17.30 bros og bleijur fyrir foreldra um og undir tvítugt. Bústaðarkirkja, starf aldraðra, miðvikudaga kl. 13-16.30 spilað, föndrað og bænastund. Boðið upp á kaffi. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra, Hátúni 12.1 kvöld kl. 19.30 félagsvist. ITC-deildin Fífa. Fund- ur í kvöld í Hjallakirkju Álfaheiði 17, Kópavogi (ath! Fífa hefur flutt sig í nýtt húsnæði), kl. 20.15. Gestir velkomnir. Kvenfélag Kópavogs, fundur verður fimmtud. 16. nóv. kl. 20.30 í Hamraborg 10, Vöru- kynning. ITC-deildin Korpa, Mosfellsbæ, heldur fund í kvöld kl. 20 í Safnaðar- heimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, Mosfellsbæ. Ailir velkomnir. Upp- lýsingar gefur Aðal- heiðurs. 566-6552. Hana-nú, Kópavogi. Fundur í Bókmennta- klúbbi Hana-nú í kvöld kl. 20 á Lesstofu Bóka- safns Kópavogs. Síðustu forvöð að fá miða á Vín- arhljómieika Sinfón- íuhljómsveitar Islands í janúar árið 2001. Upp- lýsingar í Gjábakka í s. 554-3400 eða Gulismára s. 564-5260. Kvenfélagið Aldan. Fundur verður í kvöld miðvikudag kl. 20.30 í Borgartúni 18.3. hæð. Blúndur og gamanmál. Breiðfirðingafélagið, söngur. í kvöld verður Breiðfirðingakórinn með söngdagskrá sem hefst kl. 20.30 í Breið- firðingabúð. Kaffiveit- ingar. Hallgrímskirkja, eldri borgarar. Opið hús í dag kl. 14-16. Gestir eru Ól- afur Elíasson píanóleik- ari, Þórunn Árnadóttir og Arngrímur Eiríks- son. Bílferð fyrir þá sem þess óska. Uppl. veitir Dagbjört í s. 510-1034. MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavfk. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, s^rblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1116. NETFANG: 1WTSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innaniands. í lausasölu 150 kr. eintakið. VELVAKANDI Svarað í síraa 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Hugleiðingar á veitingahúsi Á LEIÐINNI niður Laugaveginn um daginn datt mér í hug að setjast inn á veitingahús sem eru þar á hverju strái. „Fékk mér kaffi og pantaði mat.“ Gaman fannst mér að virða aðra gesti fyrir mér meðan ég beið eftir afgreiðslu. Þarna mátti líta fók á öllum aldri bæði feitt og sællegt og einnig grindhorað og vesældarlegt. Flestir voru með símann sinn við eyrað og reyndu að sýnast þýð- ingarmiklir á svip. Eg veitti því athygli að flestir greiddu með korti eins og algengt er í dag. Datt mér þá í hug viðtal við Vestur- Islending (birtist í Mogg- anum 12. nóv.), Ted Krist- janson á Gimli, f. 1912, fiskimann við Winnipeg- vatn. Þar segir m.a. svo: „Við fórum aldrei í skuld. Það er það sem er orðið svo leiðinlegt með unga fólkið. Það er komið svo í skuld. Þessi kort, það er nú ljóta' vitleysan. Að sjá fólk koma inn í brennivínssöluna og rétta kortið en hafa ekki pening til að borga fyrir brennivinið. Eg held ég myndi láta það vera.“ Nýlega heyrði ég í út- varpinu viðtai við danska konu. Telur hún að nú sé orðið tímabært að drífa ís- lensku stórfjölskylduna út á veitingahúsin að jólahlað- borði. Þetta gera dönsku húsmæðurnar að hennar sögn. Þar á fólk að borða síld (öl og snafs með), ís- lenskt hangikjöt, danskt svínakjöt með meiru; með kjötinu rauðvín. Kona þessi er einnig reiðubúin að ganga með gestum í kring- um kræsingarnar og benda á þær, sbr. auglýsingar í dagbiöðunum. Þetta virðist eiga að létta húsmæðrum borgarinnar störfin fyrir jólin. Þá er tilvalið að hafa pitsur og pasta heima jóla- dagana, einnig má stýfa slátur úr hnefa, það sparar uppþvott. Með þessu má súpa á mjólk („mjólk er góð“). Hittumst heil á veitinga- húsunum í desember. Gleymum ekki greiðslu- kortunum heima. Tökum ömmu og afa með. í nóvember árið 2000, 201019-4359. Athyglissjúkur forseti HVE iengi skyldum við á Islandi, og annars staðar, þurfa að fylgjast með ást- armálum forseta landsins á flakki með unnustu sinni í opinberum heimsóknum. Er þetta sæmandi þeim er á að vera fulltrúi Islands út á við? Hingað til hafa for- seta okkar ekki borið einkalíf sitt á torg og farið vel á því. Vonandi sér Ólafur Ragnar Grímsson sóma sinn í að gera slíkt hið sama. Ásta Hávarðardóttir, Garðabæ. Michigan 1968 ÞEIR, sem geta gefið upp- lýsingar um íslenska konu, er dvaldi í Ann Arbor, Michigan í Bandaríkjunum í janúar og febrúar 1968, vinsamlegast hringið í síma 865-8024 í dag, miðviku- daginn 15.11., og á morgun, fimmtudaginn 16.11. Tveir jakkar víxluðust TVEIR jakkar víxluðust á balli hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur í Sjálfstæðis- salnum í Mjóddinni. Sá sem hefur tekið jakka í misgrip- um á þessum stað er vin- samlegast beðinn að hafa samband í síma 694-9404. Rauður fress hvarf að heiman RAUÐUR geltur fress með hvitar hosur og smekk hvarf frá Vesturbergi 189 fimmtudagsmorguninn 9. nóvember sl. Hann er eyrnamektur en ólarlaus. Hann er mjög mannblend- inn og góður. Upplýsingar í síma 557-6122 eða 557-5812 eða 892-7799. Gullfallegan kettling vantar heimili GULLFALLEGAN fjög- uiTa mánaða fress vantar gott heimili. Hann er blíður og mjög hændur að böm- um. Upplýsingar í síma 588-6613. Hvolpur týndist HVOLPUR, sem er skosk- ísiensk tík, svört með hvit- ar lappir og brúnt andlit, týndist fyinr utan Draum- inn á Rauðarárstíg sl. föstudag. Þeir sem hafa orðið hvolpsins varir hafi samband í síma 554-7708 eða 868-0067. Krossgáta LÁRÉTT: 1 höggs út í loftið, 8 öldu, 9 þoli, 10 grænmeti, 11 veiða, 13 vísa veg, 15 skammt, 18 mælieining, 21 hestur, 22 ósanna, 23 ungbarn, 24 dhemja. LÓÐRÉTT: 2 duglegar, 3 tilbiðja, 4 iðinn, 5 æli, 6 áll, 7 dsoðna, 12 liðin tíð, 14 málmur, 15 svengd, 16 reiki, 17 fell, 18 vaxin, 19 héldu, 20 keyrir. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 topps, 4 burst, 7 síðan, 8 teppi, 9 nýt, 11 apar, 13 bali, 14 úrill, 15 barm, 17 Ægir, 20 úti, 22 lýsir, 23 losti, 24 arðan, 25 neiti. Ldðrétt: 1 tuska, 2 peðra, 3 senn, 4 bætt, 5 rupla, 6 teiti, 10 ýmist, 12 rúm, 13 blæ, 15 bylta, 16 ræsið, 18 gusti, 19 reiki, 20 úrin, 21 ilin. Víkverji skrifar... FJARVINNA, það að geta stund- að starf sitt annars staðar en á sjálfum vinnustaðnum, hefur verið að ryðja sér nokkuð til rúms víða. Þetta er að sjálfsögðu ekki unnt nema í sumum störfum. Varla getur bifvéla- virkinn sinnt viðgerðum nema á þar til gerðu verkstæði og erfitt er sjálf- sagt að stunda flestar iðngreinar í fjarvinnu. Það eru hins vegar öll þessi störf sem krefjast tölvubúnaðar og símatækni sem geta gengið nánast hvar sem er. í nýlegu blaði Verslunarmannafé- lags Reykjavíkur er greint að fjar- vinna hafi margfaldast mjög á dönsk- um vinnumarkaði. Er þar vitnað í skýrslur Evrópusambandsins þar sem segir að Danmörk sé eitt af leið- andi iöndum álfunnar í þessum efn- um. Sagt er einnig að danska vinnu- veitendasambandið telji framtíðina bjarta fyrir þá sem kjósi að starfa heima og að innan fimm ára verði um 600 þúsund störf í boði fyrir þá sem vilja stunda fjarvinnu. Alls eru 2,8 milljónir manna á dönskum vinnu- markaði. Það hefur bæði kosti og galla í för með sér að starfa á þennan hátt. Séu menn félagsverur er sjálfsagt lítið gaman að vinna einn saman heima daglangt og vilja þeir fremur vera í hringiðu vinnustaðarins með öllum erli sínum. Þetta getur hins vegar komið sér vel ef menn eni kannski illa hreyfanlegir, ef menn þurfa að sinna einhverju heima fyrir jafn- framt því sem þeir stunda starfið og þekkt er það dæmi að menn vinni hluta starfans heima og hitt á vinnu- staðnum. Þessi tilhögun krefst þess að sjálfsögðu að menn beiti sig aga og detti ekki í að slóra sífellt í kaffi- og matartímum eða láta eitt og annað trufla sig við verkin. En þetta er bara dæmi um hvemig vinnustaðirnir og verkin þróast með breyttri tækni og breyttum verkefnum. XXX SVO virðist sem ráðstefnur af öllu mögulegu og ómögulegu tagi séu haldnar um þessar mundir af enn meiri þrótti en nokkru sinni. Það er nánast ekki til það málefni sem ekki þarf að halda ráðstefnu um. Við get- um rifjað upp umfjöllunarefni nokk- urra þeirra sem greint hefur verið frá síðustu daga eða auglýstar: Ferða- . mál, fiskveiðistjórnun, loftslags- breytingar, menningarsamvinna, fjarskiptamál, hönnun og peninga- mál og hægt væri að nefna miklu fleiri umfjöllunarefni og ekki má gleyma skólum, unglingum og vímu- efnum, það eru allt vinsæl ráðstefnu- efni. Allt er þetta auglýst skilmerkilega og fólk hvatt til að sækja þessa merku fundi, greiða fyrir það nokkur þúsund krónur og fá fyrir það möpp- ur og veitingar. Ekki er alls kostar ljóst hvað út úr öllum þessum fund- um og ráðstefnum kemur. Þama er þó mikill efniviður á ferðinni. Því mikið er talað og mikil speki kemur fram sem færi annars framhjá þeim sem sitja alla þessa fundi. Hverfm- þetta allt í gleymskunnar dá? Eru fyrirlestrarnir kannski á Netinu? Er sagt frá þessu öllu í fjölmiðlum? Er- um við kannski að missa af einhverju ef við erum ekki með? Eflaust er það svo. En er þetta ekki orðið of mikið? Eða sækja marg- ir alla þessa fundi og sitja þar allan tímann opinmynntir og nema spek- ina? Hvernig væri að efna til ráð- stefnu um ráðstefnur? Fá fyrirlestra um þýðingu ráðstefna eða þýðingar- leysi? Ræða hverjir sitja svona fundi, hversu margar (tapaðar?) vinnu- stundir fara í ráðstefnur, hvernig á að halda ráðstefnu, hvað á að koma út úr þeim og hvar á að koma niðurstöðun- um á framfæri. Þama þyrfti líka að fá sérfræðing til að tala um hvernig á að sitja ráðstefnu og vera þátttakandi. Síðan mætti kanna í svo sem hálft eða heilt ár hversu margir sitja allar ráð- stefnur á þeim tíma og spyija hvað hafi gagnast þeim. Vantar ekki alltaf efni til að fjalla um á ráðstefnum? Efnum því til ráðstefnuráðstefnu. Verðleggjum hana nógu hátt. Fáum útlendan fyrirlesara. Höfum góðan mat. Búum til flottar möppur. Höld- um hana úti á landi. Endum með létt- um veitingum eða þungum. Og ákveðum svo að hittast að ári á næstu ráðstefnuráðstefnu því þær hljóta að verða árlegar upp frá þessu. Og helst annað hvert ár í útlandinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.