Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
MORGUNBLADIÐ
FRÉTTIR
Grýla og
Leppalúði
gefa blóð
BLÓÐBANKINN er alltaf þakk-
látur þeim blóðgjöfum sem þangað
koma og er fólk gjarnan hvatt til að
gefa blóð hafí það tækifæri til.
I gær heimsóttu Blóðbankann
tveir nokkuð óvenjulegir gestir,
þau Grýla og Leppalúði, og lögðust
þau bæði á bekkinn og létu draga
úr sér blóð. Ekki fylgir sögunni
hvort þau hjónin hafi gert þetta af
áður óþekktri góðmennsku sinni og
hjartahlýju, eða hvort þau hafi
hreinlega farið húsavillt.
Dómsmálaráðherra með lagafrumvarp er breytir hjúskaparlögum
Sýslumenn kanni skilyrði fyr-
ir hjónavígslu í stað presta
DÓMSMÁLARAÐHERRA kynnti
á ríkisstjórnarfundi í gær frumvarp
til laga um breytingu á hjúskap-
arlögum frá 1993. Til þessa hefur
vígslumaður, oftast prestur, séð um
alla þætti kirkjulegi-ar hjónavígslu
og þar með talda könnun á hjóna-
vígsluskilyrðum. Með lagabreyting-
unni verða skilyrðin ævinlega könn-
uð hjá sýslumönnum eða löglærðum
Færst í vöxt að erlendir ríkisborg-
arar komi hingað til að giftast
fulltrúum þeirra og þurfa væntan-
leg brúðhjón að leggja fram vottorð
um að slík könnun hafi verið gerð af
sýslumanni eða löglærðum fulltrúa
hans. Slíkt vottorð má þó ekki vera
meira en 30 daga gamalt. Verði
Morgunblaðið/Ásdís
frumvarpið samþykkt á Alþingi tek-
ur það gildi 1. apríl á næsta ári.
Frumvarpið var samið í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu að höfðu
samráði við biskupinn yfir Islandi
og Sýslumannafélag Islands.
Litið er á könnun hjónavígsluskil-
yrða sem lögfræðilegt úrlausnar-
efni. Kanna þarf hvort gögn sem
eru sett fram sanni nægjanlega vel
að hjónaefnin séu þau sem haldið er
fram og ekki sé hjúskapur í gildi
fyrir hjá viðkomandi.
Önnur breyting á hjúskaparlög-
unum er sú að ef svonefndur könn-
unarmaður, áður vígslumaður, hafn-
ar því að gefa út vottorð getúr hvort
hjónaefni um sig skotið niðurstöð-
unni til dómsmálaráðuneytisins. Ef
ráðuneytið felst á sjónarmið aðila
fellir það synjun könnunarmanns úr
gildi og er hjónavígsla þá heimiluð.
í athugasemdum með frumvarp-
inu kemur m.a. fram að á síðustu
árum hafi það færst í vöxt að er-
lendir ríkisborgarar komi hingað til
lands til að ganga í hjónaband og
einnig að erlendir ríkisborgarar
stofni til hjúskapar við íslenska rík-
isborgara. Um flóknari mál er að
ræða og breyting frá því sem var
fyrr á tímum þegar prestar þekktu
vel til beggja hjónaefna.
Mál af þessum toga kom upp ný-
lega þegar maður, sem sagði sig
vera frá Tsjetsjníu, gekk að eiga ís-
lenska konu. Manninum hafði verið
neitað um pólitískt hæli hér á landi
og eftir vígsluna einnig neitað af
stjórnvöldum um dvalarleyfi, þar
sem hann gat ekki fært sönnur á
hver hann væri. Samkvæmt upplýs-
ingum úr dómsmálaráðuneytinu var
vinna við breytingu á hjúskaparlög-
unum hafin áður en mál hins ætlaða
Tsjetsjena kom upp.
Breyting á
norrænum samningi
Dómsmálaráðherra kynnti einnig
á rikisstjórnarfundi í gær breyting-
ar á samningi milli Islands, Dan-
merkur, Noregs, Svíþjóðar og Finn-
lands um alþjóðleg einkamála-
réttarákvæði um hjúskap, ættleið-
ingar og lögráð, frá árinu 1931.
Akvæðin eru samræmd við þau lög
sem gilda innan Evrópusambands-
ins (ESB), en sum ríkin eru innan
ESB og taka breytingum þaðan,
þ.e. Finnland og Svíþjóð, en Dan-
mörk, sem einnig er í ESB, er und-
anskilin einkamálaréttarákvæðum
sambandsins.
Með breyttum samningi nú er
meðal annars tekið á því fyrir hvaða
dómstólum má taka mál fyrir og
hvaða skilyrði eru t.d. fyrir því að
lögskilnaður er tekinn fyrir af ís-
lenskum dómstóli. Samningurinn
tekur einnig á forsjámálum og
hvar þau eru tekin fyrir. Með breyt-
ingunni nú er m.a. styrkt sú regla
að miða við það ríki þar sem barnið
á lögheimili. •
Hægt verður að höfða mál í ólík-
um ríkjum og þá gildir sá dómstóll
sem málið er fyrr sent til.
Samþykkt borgarráðs
Kosið um flug-
völl 3. febrúar
BORGARRAÐ samþykkti í gær að
stefnt skuli að því að atkvæða-
greiðsla borgarbúa um framtíðar-
nýtingu Vatnsmýrar og staðsetn-
ingu Reykjavíkurflugvallar fari
fram hinn 3. febrúar 2001 án þess
að ákveða þó um hvaða kosti borg-
arbúum verði gert að velja.
Fyrir fundi borgarráðs lágu til-
lögur sérfræðihóps til undirbún-
ings almennrar atkvæðagreiðslu
um framtíðamýtingu Vatnsmýrar
og staðsetningu Reykjavíkurflug-
vallar þar sem tillaga var gerð um
fyrrgreinda dagsetningu almennr-
ar atkvæðagreiðslu um málið.
Samþykkt borgarráðs felur í sér
að áskilið er að þeir kostir sem
greidd verða atkvæði um komi til
sérstakrar skoðunar þegar skýrsla
hópsins liggur endanlega íyrir sem
og niðurstaða úr þeirri vinnu sem
unnin hefur verið á vegum sam-
vinnunefndar um svæðisskipulag
höfuðborgarsvæðisins. Fyrirliggj-
andi tillögur meirihluta sérfræði-
hópsins gera ráð fyrir að borgarbú-
um verði gert að velja milli
fjöguiTa kosta og gera tveir ráð
fyrir að flugvöllurinn fari en tveir
íyrir að hann verði áfram í Vatns-
mýri. Tveir fulltrúar í hópnum skil-
uðu hvor sínu séráliti og vildu að
valið yrði um færri kosti.
Með samþykkt borgarráðs írá í
gær var þróunarsviði Reykjavíkur-
borgar falið að annast frekari út-
færslu, undirbúning og skipulagn-
ingu atkvæðagreiðslu undir stjóm
stýrihóps, sem í sitja Stefán Ólafs-
son, formaður sérfræðihópsins,
Kristín A. Árnadóttii', aðstoðar-
kona borgarstjóra, Helga Jóns-
dóttir borgarritari og Jón Bjöms-
son, framkvæmdastjóri þróunar-
ogfjölskyldusviðs borgarinnar.
Borgarráð samþykkti þessa af-
greiðslu með fjómm samhljóða at-
kvæðum meirihlutans en fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins sátu hjá.
Útlán í húsbréfakerfínu 27 milijarðar fyrstu 11 mánuðina
Lægri heildarfjárhæð
lána á þessu ári
TÖLUVERT hefur dregið úr heild-
arfjárhæðum samþykktra lána í
húsbréfakerfinu á þessu ári miðað
við síðasta ár. Samkvæmt yfirliti
íbúðalánasjóðs fyrir þá 11 mánuði
sem liðnir eru er heildarfjárhæð
lánanna um 27 milljarðar króna en
var 29,1 milljarður á sama tíma í
fyrra sem er 7,2% samdráttur.
Áætlað markaðsverð húsbréfa,
sem gert er ráð fyrir að gefin verði
út í tengslum við þessi lán, er alls
24,7 milljarðar en var 29,4 millj-
arðar í fyrra og er það 16% sam-
dráttur. Samdrátturinn hefur kom-
ið fram alla mánuði ársins nema þá
tvo fyrstu.
Endurmeta útgáfu
húsbréfa 2001
íbúðalánasjóður hefur endur-
metið áætlun varðandi lánveitingar
og útgáfu húsbréfa á árinu 2001.
Gerir áætlun þessi ráð fyrir að út-
gáfa húsbréfa verði nokkuð undir
því, sem áætlanir gera ráð fyrir að
verði á yfirstandandi ári og þó-
FARGJÖLD Almenningsvagna bs.
hækka að meðaltali um 11% hinn 2.
janúar. Engin hækkun verður þó á
verði Græna kortsins.
í fréttatilkynningu írá fyrirtækinu
segir að almennui' rekstrarkostnaður
hafi hækkað um 16% frá því síðast
voru gerðar breytingar á gjaldskrá
hinn 1. febrúar 1999.
Fram kemur að aðildarsveitarfélög
fyrirtækisins leggi því til stöðugt
hærra hlutfall tekna og stefni í að
nokkuð undir því sem frumvarp til
fjárlaga fyrir árið 2001 gerði ráð
fyrir.
hlutfallið verði 65% af heildai'tekjum
á næsta ári. „Þessu valda miklar
kostnaðarhækkanii- sem orðið hafa á
liðnum misserum, sem sveitarfélögin
hafa að öllu leyti borið fram að þessu,
þar sem fargjöldum hefur ekki verið
breytt í tæp tvö ár,“ segir í frétta-
tilkynningunni. t>á segir að fyrirtækið
vilji koma til móts við fasta viðskipta-
vini og hækki afsláttarfargjöld þvi
minna en einstök staðgreiðslufargjöld
og verð Græna kortsins breytist ekki.
11% hækkun hjá
Almenningsvögnum
SSÍBUR
jlloirtunlilníuíi
4SÍMJR
m\wm
Morgunblaðinu í
dagfylgir blað
frá íþrótta- og
ólympíusambandi
íslands.
JHorpimliInbit
MKVSiNC
LISTIR
BÆKLR
4stetm
► Teiknimyndasögur
► Myndir
► Þrautir
► Brandarar
► Sögur
► Pennavinir