Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Loftmyndir
af veiði-
stöðum á
geisladiskum
GEFNIR hafa verið út fímm geisla-
diskar með loftmyndum af veiðistöð-
um í ám og vötnum, eftir Einar Guð-
mann á Akureyri. Þetta er líklega í
fyrsta skipti sem ljósmyndari gefur
út ljósmyndir í þessum mæli á
geisladiskum og einnig í fyrsta skipti
sem ár og vötn eru mynduð sérstak-
lega í þessum tilgangi, segir í frétta-
tilkynningu.
Um er að ræða fimm diska með
samtals 2.700 myndum. Myndimar
er hægt að skoða eins og heimasíðu,
nema hvað ekki þarf að bíða eftir
þeim þar sem þær eru til staðar á
geisladisknum eða í tölvunni.
Fyrir veiðimenn eru myndirnar
ómetanlegt hjálpartæki til þess að
læra um veiðistaði og ár enda bygg-
ist veiðimennska að verulegu leyti á
því að þekkja ána sem veitt er í og
fjöldi veiðistaða eru merktir á disk-
unum.
Hægt er að fá frekari upplýsingar
á www.fluguveidi.is
Morgunblaðið/Kristján
Gauti, Kristín og Linda voru á
meðal gesta á opnu húsi Mennta-
smiðjunnar um helgina.
Handverk
skoðað í
Mennta-
smiðjunni
NEMENDUR í Menntasmiðju
kvenna buðu gestum í opið hús um
helgina, en alls voru 16 konur við
nám f smiðjunni nú í haust, á aldr-
inum 18 til 66 ára. Námið er þrí-
þætt, sjálfsstyrking, hagnýtt nám
og listsköpun, en sérstök áhersla
var lögð á gamalt íslenskt hand-
verk og það unnið í bland við nýrra
handverk. Nemarnir brugðu á leik
með spuna og söng og þá var efnt
til sýningar á handverki og mynd-
list. Næsta önn Menntasmiðjunnar
hefst 10. janúar næstkomandi og
verður þá sérstaklega reynt að ná
til ungra kvenna í atvinnuleit,
ungra mæðra og barnshafandi
kvenna, en námið er þó opið öllum
konum að venju.
Dagþjónusta fyrir fólk með geðraskanir opnuð
Hlýlegt andrúmsloft í Laut
NÝ DAGÞJÓNUSTA fyrir fólk
með geðraskanir hefur verið opnuð
við Þingvallastræti 32 á Akureyri,
en Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra opnaði dagþjón-
ustuna formlega og hefur hún
hlotið nafnið Laut.
Um er að ræða samstarfsverk-
efni Akureyrardeildar Rauða
kross íslands og Geðverndarfélags
Akureyrar, en auk þess taka Ak-
ureyrarbær, heilbrigðisráðuneytið,
Rauði kross íslands og Hússjóður
Öryrkjabandalagsins þátt í verk-
efninu.
Rekja má aðdraganda þess að
dagþjónustan var opnuð á Akur-
eyri til ársins 1998, en hugmyndir
komu þá fram í bréfi frá forstöðu-
sálfræðingi Fjórðungssjúkrahúss-
ins á Akureyri við Dagdeildina
Skójastíg 7 til Akureyrardeildar
RKÍ. Fljótlega barst svipað erindi
frá Geðverndarfélagi Akureyrar
og þá hófust formlega umræður
um þetta mál. Hugmyndin er nú,
með aðstoð frá ýmsum félögum,
fyrirtækjum og stofnunum, orðin
að veruleika og hefur dagþjónust-
an verið opin um nokkurra daga
skeið. Á þeim stutta tíma sem
þjónustan hefur verið starfrækt
hafa í kringum 10 manns komið í
heimsókn daglega.
Eitt af forgangs-
verkefnunum
Rauði kross Islands hefur síð-
ustu daga gert kannanir þar sem
reynt er að fínna út hvaða hópar
standa höllustum fæti í íslensku
samfélagi og hafa þær leitt í Ijós
að fólk með geðraskanir er einn
þeirra hópa sem erfiðast eiga í
félagslegu og efnahagslegu tilliti.
Einkenni geðraskana eru oft og
Kennarar við MA og VMA á Akureyri
Lýsa vanþóknun á tilboði ríkisins
UM það bil 50 kennarar komu saman
í verkfallsmiðstöð sinni í Hamri á
fóstudag og ræddu þau tilboð sem
komið hafa írá samninganefnd ríkis-
ins og frá samninganefnd félags fram-
haldsskólakennara. í tilefni af því var
borin upp tillaga að ályktun og sam-
þykkt með öllum greiddum atkvæð-
um. Ályktunin hljóðar svo:
„Kennarar við Menntaskólann á
Akureyri og Verkmenntaskólann á
Akureyri lýsa yfir vanþóknun sinni á
tilboði SNR dags. 6. des. í vinnudeilu
ríkisins og framhaldsskólakennara.
Tilboðið lýsir ótrúlegri lítilsvirðingu á
þörf skólanna fyrir hæfa starfsmenn
og tekur á engan hátt á þeim grund-
vallaratiiðum í skólastefnu sem verða
að ráða ferðinni þegar samið verður
um starfshætti og kjör starfsmanna í
framhaldsskólum á Islandi.
Kennarar við MA og VMA lýsa
fyllsta stuðningi sínum við samninga-
nefnd framhaldsskólakennara og
hvetja til þess að þeirri stefnu sem
þar hefur verið mótuð verði fram-
fylgt. “
Morgunblaðið/Kristján
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra heilsar Brynjólfi Ingvars-
syni, geðlækni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, í húsnæði hinnar
nýju dagþjónustu, Lautar við Þingvallastræti.
tíðum ekki sýnileg og því mætir
þetta fólk gjarnan ýmiss konar
fordómum. Meginmarkmið Rauða
krossins er að liðsinna þeim sem
helst þurfa á að halda og er aðstoð
við fólk með geðraskanir eitt af
forgangsverkefnum félagsins.
Hefur félagið nokkra reynslu af
þjónustu við fólk með geðraskanir,
en hafinn var rekstur slíks at-
hvarfs í Reykjavík, Vin, og þá var
Dvöl opnuð í Kópavogi, en hinu
síðarnefnda svipar mjög til Lautar
hvað þjónustu varðar.
Laut er ekki meðferðarstofnun,
heldur heimili þar sem reynt er að
skapa hlýlegt andrúmsloft fyrir
gesti, starfsfólk og sjálfboðaliða.
Fólki býðst að koma í heimsókn,
njóta félagsskaparins, lesa, spila
eða fást við tómstundir af ýmsu
tagi. Opið er frá kl. 9 til 17 og er
hægt að kaupa máltíð gegn vægu
verði í hádeginu.
Morgunblaðið/Kristján
[999 Akureyrarbær auglýsir
mml
Deiliskipulag við Klettaborg
Með vísan til greinar 6.2.3 í skipulagsreglugerð
auglýsir Akureyrarbær tillögu að deiliskipulagi
við Klettaborg á Akureyri.
Uppdráttur er sýnir tillöguna, ásamt skýringarmynd
og greinargerð, liggur frammi almenningi til sýnis í
þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1.
hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, þ.e. til miðvikudagsins 24. janúar 2001, þannig
að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og
gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig á
heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akurevri.is/.
Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 miðvikudaginn
24. janúar 2001. Athugasemdum skal skila til um-
hverfisdeildar Akureyrarbæjar. Þeim, sem telja sig
verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna samþykktar eða
framkvæmdar deiliskipulagsins, er bent á að gera
athugasemdir innan tilgreinds frests, ella teljast þeir
samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrar
Akureyrarbær og
Glæsibæjarhreppur auglýsa
Deiliskipulag svifbrautar í Hlíðarfjalli
Með vísan til greinar 6.2.3 í skipulagsreglugerð
auglýsa Akureyrarbær og Glæsibæjarhreppur
tillögu að deiliskipulagi svifbrautar í Hlíðarfjalli
við Akureyri.
Uppdráttur, er sýnir tillöguna ásamt skýringarmynd
og greinargerð, liggur frammi almenningi til sýnis í
þjónustuanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 1.
hæð, næstu 6 vikur frá birtingu þessarar auglýsing-
ar, þ.e. til miðvikudagsins 24. janúar 2001, þannig
að þeir sem þess óska geti kynnt sér tillöguna og
gert við hana athugasemdir. Tillagan er einnig á
heimasíðu Akureyrarbæjar: http://www.akurevri.is/.
Athugasemdafrestur er til kl. 16.00 miðvikudaginn
24. janúar 2001. Athugasemdum skal skila til um-
hverfisdeildar Akureyrarbæjar. Þeim, sem telja sig
verða fyrir bótaskyldu tjóni vegna samþykktar eða
framkvæmdar deiliskipulagsins, er bent á að gera
athugasemdir innan tilgreinds frests ella teljast þeir
samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Akureyrar.
Oddviti Glæsibæjarhrepps.
Margir not-
ið góðs af
tíðarfarinu
VEÐRIÐ hefur leikið við Ak-
ureyringa á þessu hausti, þótt
vissulega hafi tíðin verið óvenju
vætusöm. Færð á vegum á Norð-
urlandi hefur víðast hvar verið
góð og lítill snjór í byggð. Hins
vegar hafa skíðasvæðin í Eyja-
firði verið opin enda töluverður
snjór í fjöllum. Vetur konungur
hefur nú aðeins minnt á sig en á
sunnudag fór að kólna með snjó-
komu og áfram er spáð norð-
lægum áttum. Knattspyrnumenn
hafa eins og aðrir notið góðs af
tíðarfarinu og á laugardaginn var
2. flokkur Þórs að æfa á mal-
arvelli félagsins við Hamar við
hinar ákjósanlegustu aðstæður.
-------------
Bókakaffí
NEMENDUR unglingadeilda
Glerárskóla koma saman í kvöld,
miðvikudagskvöldið 13. desember
kl. 20 og lesa saman úr nýjum
barna- og unglingabókum. Léttar
veitingar verða á boðstólum og
ætti að gefast gott næði til að
skoða nýjar bækur, hlusta á ung-
lingana og ræða við þá um bók-
menntir. Allir eru velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.