Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 34

Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Nítján plötur frá Smekkleysu Smekkleysa gefur út nítján plötur á þessu ári, en plata Sigur Rósar, Agætis byrjun, sem kom út í fyrra hefur nú selst í yfír 12.000 eintökum hér á landi, kom út í Bretlandi í ágúst sl. og vonir standa til að hún fari á Bandaríkja- markað í byrjun næsta árs. Magnús Blöndal Jóhannsson UTGAFUR Smekkleysu á árinu eru: Björn Jörund- ur hefur sett saman geisla- plötuna Have a Nice Trip ásamt félögum sínum í Luxus en reynd- ar samið öll lög og texta sjálfur. Um er að ræða poppplötu skrýdda fjörug- um lagasmíðum. Hilmar Örn Hilmarsson & Sigur Rós: Englar alheims- ins er tónlist Hilmars við kvikmjmdina Englar alheims- ins, sem hlaut Edduverðlaunin í ár sem besta tónlist í kvikmynd. Tvö lög á plötunni eru í flutningi hljómsveitarinn- ar Sigur Rósar, en það eru Dánarfregnir og jarðar- farir og Bíum bíum bamb- aló. Mínus: Jesus Christ Bobby er önnur breiðskífa rokksveitarinnar Mínuss. Öm Thoroddsen, var upp- tökustjóri plötunnar og læddi hann straumum úr óhljóða- listinni inn í lögin og á milli þeirra. Egill Sæbjörnsson: Tonk of the Lawner önnur breiðskífa mynd- listarmannsins Egils Sæbjörns- sonar. Óvæntir bólfélagar. Motoriab #1 inniheldur upptökur úr serí- unni Óvæntir bólfélagar sem Til- raunaeldhúsið stóð fyrir mánaðar- lega árið 2000 í samvinnu við Menningarborgina. Plottið að baki hverjum viðburði var að leiða saman listamenn úr ólíkum horn- um svo úr yrði ný og ögrandi sam- suða. Björk: Selmasong inniheldur tónlist Bjarkar Guðmundsdóttur úr kvikmynd danska leikstjórans Lars von Trier, Dancer in the Dark. Öll lög og textar eru eftir Björk sjálfa nema þau sem urðu til í samvinnu hennar við Sjón, Mark Bell, Lars von Trier eða Siobhan Fallon. Margrét Örnólfsdóttir. Mar er geisladiskur með tónlist Margrét- ar Örnólfsdóttur, fyrrum Sykur- mola, úr kvikmyndum, sjónvarpi og leikhúsi ásamt tónlist sem hún samdi fyrir þátttöku íslands á Expo 2000 í Hannover og Expo 1998 í Lissabon. Óskabörn þjóðarinnar er safn- diskur með tónlistinni úr sam- nefndri kvikmynd Jóhanns Sig- marssonar. Nokkrar helstu rokk- hljómsveitir landsins spiia lögin. Elsa Sigfús-. Ykkar einlæg er plata með „Flauelsröddinni þýðu“. Upptökurnar á diskinum spanna allan söngferil Elsu, frá árunum 1937 til 1962. Nokkrar af helstu Björk Guðmunds- dóttir dægurlagasveit- um Dana á þess- um tíma leika undir söng Elsu og hljómsveit Bjarna Böðvars- sonar. Helga Ing- ólfsdóttir. Bach-Goldberg- varíasjónir. Platanvarhljóð- rituð á sumar- tónleikum í Skálholtskirkju í ágúst 1999. Helga Ing- ólfsdóttir og Jaap Schröder. Sónötur fyrir fiðlu og sembal. Tveir brautryðj- endur í flutningi barokktónlistar heima- Sveinbjörn Svein- björnsson i sinum löndum sameinast á þess- ari plötu. Jórunn Viðar. Slátta geymir fjögur verk Jór- unnar þar sem hljóðfæri hennar, píanóið, kemur alls staðar við sögu. Peirra á meðal er píanó- konsertinn Slátta sem fyrst heyrðist árið 1977 í flutningi tónskáldsins sjálfs og Sinfóníuhljóm- sveitar Islands en á disk- inum er verkið í flutningi Stein- unnar Bimu. Kammerkór Suðurlands: Eg byrja reisu mín er „íslensk kirkju- tónlist í þúsund ár“ verk allt frá kristnitöku til dagsins í dag. Stjómandi kórsins er Hilmar Öm Agnarsson, organisti í Skálholti. Sverrir Guðjónsson, kontratenór, hafði listræna umsjón með útgáf- unni og upptökunum. Magnús Blöndal Jóbannsson: Elektrónísk stúdía er fyrsta geislapalatan sem tileinkuð er verkum Magnúsar og geymir upp- tökur á verkum hans frá sjöunda áratugnum. Pétur Jónasson og CAPUT: Dansar dýrðarinnar. Á þessari plötu birtist gítarinn í nýstárleg- um hljóðheimi fjögurra hljóðfæra- leikara úr CAPUT-hópnum. Á plötunni em verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Porkel Sigurbjömsson og Hafliða Hallgrímsson. Sveinbjörn Sveinbjörnsson: ís- lenska einsöngslagið er áttunda platan í samnefndri útgáfuröð Smekkleysu og er tónlistin á henni öll eftir Sveinbjörn Sveinbjöms- son. Flytjendur em söngvaramir Bergþór Pálsson og Signý Sæ- mundsdóttir og Jónas Ingimund- arson píanóleikari. Ljóð og jazz.. Á þessari plötu koma fram skáldin Jón Óskar, Matthías Johannessen, Jóhann Hjálmarsson, Nína Björk Ama- dóttir, Þorri Jóhannsson og Ari Gísli Bragason og tónlistarmenn- imir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Birgir Braga- son. Með sól í hjarta og trega í bland TÖNLIST Geislaplötur KVÖLDSTUND MEÐ MOZART Wolfgang Amadeus Mozart: Flautu- kvartett í C-dúr K. Anh. 171, Óbó- kvartett í F-dúr K. 370, Horn- kvintett í Es-dúr K. 407, Píanó- kvartett í g-moll K. 478. Flytjendur: Kammersveit Reykjavíkur: Martial Nardeau (flauta), Matej Sarc (óbó), Joseph Ognibene (hora), Selma Guðmundsdóttir (píanó), Rut Ing- ólfsdóttir (fiðla), Svava Beraharðs- dóttir (víóla), Sarah Buckley (víóla), Þórann Ósk Mannósdóttir (víóla), Inga Rós Ingólfsdóttir (selló). Heildarlengd: 74’30. Útgáfa: ÁC- Classics / Japis JAP 0076-2. Verð: kr. 2.199. KVÖLDSTUND með Mozart heitir hún nýja geislaplatan frá Kammersveit Reykjavíkur en ef til vill væri „dagstund" nær andrúms; loftinu á þessari sólríku plötu. í þremur verkanna er Mozart í sínu léttasta skapi, sjaldnast dregur fyrir sólu. Því skiptir það öllu máli að flytjendur hafi sól í hjarta þeg- ar þeir fást við þessa tónlist, sem þrátt fyrir slétt og fellt yfirborð, er samt svo erfið í flutningi vegna þess hve einföld og gegnsæ hún er. Hér hafa menn greinilega lagt sig í líma við að koma birtunni og létt- leikanum til skila og árangurinn er eftir því. Þetta er sannarlega fal- legur diskur sem ætti að falla í smekk allra sem yndi hafa af góðri tónlist. Og Kammersveitin er rausnarleg, sjötíu og fjórar mín- útur er nálægt hámarkinu sem einn diskur rúmar. Þessi fjögur kammerverk Moz- arts eru frá þeim tíma sem hann var hvað frjóastur. Flautukvartett- inn er líkast til frá 1777 og er því elstur þeirra, Óbókvartettinn er frá 1781 og Hornkvintettinn er saminn 1782. Píanókvartettinn er frá 1785, sama árið og píanókons- ertarnir nr. 20, 21 og 22. Enda heyrist það glöggt, oft finnst manni maður vera að hlusta á píanókonsert og ekki kammerverk. (Skyldi engum hafa dottið í hug að útsetja píanókvartettinn fyrir hljómsveit?) Píanókvartettinn, með sínum óvenju dramatíska upphafs- kafla og tregafulla miðkafla er eina alvarlega verkið, ef svo má að orði komast, sem hér er flutt. Hann er eitt meginverka Mozarts og er hér leikinn á mjög sannfær- andi hátt. Öruggur píanóleikur Selmu Guðmundsdóttur er þrótt- mikill eins og hæfir verkinu og samspil hennar og strengjaleikar- anna ágætt. Martial Nardeau stelur senunni með glitrandi flautuleik sínum í Flautukvartettinum. Hlustið bara á síðasta tilbrigðið í seinni kafl- anum til að sannfærast. Svona spila bara þeir sem algert vald hafa á hljóðfæri sínu. Meðleikarar hans úr Kammersveitinni taka þátt í gamninu af lífi og sál, leikur þeirra er lifandi og fullur gáska. Það er annars furðulegt til þess að hugsa að Mozart skuli hafa getað búið til svo ágæt verk fyrir flautu, hljóðfærið sem hann hreinlega þoldi ekki. Og samdi m.a.s. heila óperu þar sem flautan gegnir svo mikilvægu hlutverki! Einleikarinn í Óbókvartettinum er Matej Sarc. Hann er ákaflega fær hljóðfæraleikari og skilar sínu með aðdáunarverðum þokka. Sér- staklega nýtur fágaður leikur hans sín vel í angurværum millikaflan- um. Þeir lesendur sem muna eftir stressinu á sinfóníutónleikum þeg- ar hornsóló voru í aðsigi (t.d. hægi kaflinn í 5. sinfóníu Tchaikovskys eða samspil hornanna í lokaþætti Eroicu) vita að tími þess háttar blásaramistaka er sem betur fer löngu liðinn. Einn svokallaðra „tengdasona íslands", hornleikar- inn Joseph Ognibene sem hér hef- ur búið í tæpa tvo áratugi, tel ég að hafi innleitt nýjan „standard" meðal hornleikara hér á landi. Ör- yggi hans hefur ávallt verið óvið- jafnanlegt og það má glöggt heyra hér í Hornkvintett Mozarts. Við hliðina á smágerðari og e.t.v. þokkafyllri hljóðfærum eins og óbói og flautu gæti hornið auðveld- lega hljómað svolítið klossað, en þannig er það ekki í meðförum hans. Léttleiki og elegans einkenn- ir leik Ognibenes og félaga hans svo úr verður hin besta skemmtun. Hljóðritun Páls Sveins Guð- mundssonar er prýðileg og jafn- vægið milli einleikara og meðleik- ara ágætt. Þessi mætti vel fara í jólapakka til besta vinar míns. Valdemar Pálsson Jólatónleikar í Reykjanesbæ AÐRIR jólatónleikar Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar verða í Kirkjulundi fimmtudaginn 14. des- ember kl. 19.30. Þar koma fram barna- og unglingakór undir stjórn Hjördísar Einarsdóttur og með kórnum leikur Geirþrúður F. Boga- dóttir á píanó, hinn nýstofnaði bjöllukór, einnig undir stjórn Hjör- dísar, strengjasveitir, yngri og eldri, undir stjórn Unnar Pálsdótt- ur og Úlfars Inga Haraldssonar, og trompetsamspil, sem David Noote- boom stjórnar. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Dagana 13.-19. desember verða jólatónleikar hinna ýmsu deilda skólans, þar sem einn eða fleiri kennarar standa saman að jólatón- leikum. Tónleikarnir fara ýmist fram á sölum skólans í Austurgötu 13 og á Þórustíg 7, á sal Heið- arskóla, í Kirkjulundi eða í Ytri- Njarðvíkurkirkju. Þessa sömu daga stendur tónlist- arskólinn fyrir jólatónleikum í grunnskólunum, þar sem bekkir eru annaðhvort kallaðir á sal eða í tónmennta- og forskólastofur á skólatíma og haldnir jólatónleikar. Á þeim tónleikum koma fram þeir nemendur tónlistarskólans sem eru í viðkomandi árgangi. Öllum þess- um grunnskólatónleikum lýkur svo með því að sungin eru jólalög. Nemendahópar úr tónlistarskól- anum flytja jólatónlist á fjölmörg- um fundum félagasamtaka í Reykjanesbæ nú í desember, auk þess að tengjast starfsemi Ytri- Njarðvíkurkirkju og Keflavíkur- kirkju. Hópar úr hljómsveitum skólans leika svo fyrir gesti og gangandi í verslunum bæjarins nánast fram að jólum. Bach í Breið- holtskirkju Aðventu- tónleikar Lögreglu- kórsins ÁRLEGIR aðventutónleikar Lög- reglukórs Reykjavikur verða í Selfjarnarneskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Gestakór verður Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju. Einsöngvari með lögreglukórnum er Hervald Rúnar Gislason, 10 ára. Stjórnandi Lögreglukórsins er Guðlaugur Viktorsson og stjórn- andi barna- og unglingakórsins er Oddný Þorsteinsdóttir. Undir- leik annast Hörður Bragason. Aðgangseyrir er 500 krónur, en ókeypis er fyrir börn og eldri borgara. Kaffiveitingar verða f safnaðarsal að loknum tónleik- unum í boði Lögreglukórsins. -----*-*-4--- Aðventutón- leikar í Laug- arneskirkju AÐVENTUTÓNLEIKAR Tónlist- arsambands Alþýðu verða í Laugar- neskirkju annaðkvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20. Á tónleikunum koma fram fjórir kórar sem eru í sambandinu, en þeir eru: SFR-kórinn, stjórnandi Páll Helgasonar, Landsímakórinn, stjórnandi Helgi R. Einarsson, RARIK-kórinn, stjórnandi Violeta Smid og Álafosskórinn, stjórnandi Helgi R. Einarsson. Að lokum munu allir kórarnir flytja saman tvö lög. Aðgangur er ókeypis. JÖRG E. Sondermann flytur orgel- verk eftir Johann Sebastian Bach í Breiðholtskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Tónleikarnir annað kvöld eru þeir níundu af alls 26 tónleikum sem eru 60-65 mínútna langir hverjir um sig. Jörg E. Sondermann fæddist í Þýskalandi og flutti til íslandB haustið 1997. Hann hefur síðan starf- að sem organisti í Hveragerðis- og Kotstrandarsóknum. Hann hefur einnig kennt kórstjórn og orgelleik við Tónskóla Þjóðkirkjunnar fré hausti 1999. Tilefni þessa tónleikahalds er 250. ártíð Johanns Sebastians Bach. Ásamt þekktari verkum Bachs er hér um að ræða allar þekktar frum- gerðir og tilbrigði, verk sem vafi er á að hann hafi samið og verk sem upp- haflega voru ekki samin fyrir orgel, •en hæfa orgelinu (t.d. Kunst der Fuge). Þetta mun í fyrsta sinn sem öll orgelverk Bachs eru flutt hér á landi af einum organista, en fyrir hálfum öðrum áratug sameinuðust íslenskir organistar um þetta viðamikla verk- efni. Aðgangseyrir er 900 krónur og rennur til Hjálparstarfs kirkjunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.