Morgunblaðið - 13.12.2000, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 39
Isöld í vændum?
Morgunblaðið/Þorkell
Helga Guðrún Jónasdóttir afhendir Einari Sigurðssyni
landsbókaverði bréfin.
Frumbréf Þorsteins
Erlingssonar afhent
Landsbókasafni
BÆKUR
Alþýðuvísindi
2000 Arum eftir
VÍNLANDSFUND
Eftir Friðrik Danielsson. Lifa
Islendingar annað árþúsund?
Útgefandi: Friðrik Daníelsson,
Reykjavík 2000.200 bls.
GÓÐUR maður tjáði mér að höf-
undur þessa rits væri menntaður í
efnaverkfræði í Svíþjóð. Ekki dreg
ég það í efa, en af lestri bókar hans er
ljóst, að hann er áhugamaður um
fleiri svið vísinda og fræða og má með
nokkrum rétti kallast fjölíræðingur.
meginviðfangsefni hans í þessari bók
eru umhverfismál og veðurfarssaga
og reynir hann að setja hvort tveggja
í stærra sögulegt samhengi og skýra
tengsl sögu og veðurfars á liðnu ár-
þúsundi, auk þess sem hann freistar
þess að skyggnast fram á veginn og
geta sér til um væntanlegar eða
hugsanlegar breytingar á umhverf-
inu. Hlutverki bókarinnar lýsir hann
með þessum orðum:
„Bókinni er ekki ætlað að vera
framtíðarspá heldur frekar að vekja
lesandann til umhugsunar um fram-
tíðina á grundvelli þess sem þegar
hefur gerst. Gerðir nútímamanna eru
eins og iðkun vísindanna, smávægi-
leg skekkja getur valdið grundvall-
arvillu síðar, í niðurstöðunum. Þann-
ig gætu mistök okkar núlifandi valdið
miklum skaða meðal eftirkomend-
anna á næsta árþúsundi. Því er best
að byrja á því að líta til baka og sjá
hvemig gerðir fyrirrennaranna
höfðu áhrif á nútímann. Og annað
sem er mikilvægt; hvað var það sem
fyrirrennaramir gátu ekki haft nein
áhrif á?“
Meginröksemd Friðriks í fyrri
hluta bókarinnar, þeim sem kalla má
sögulegan, er sú, að veðurfar og
breytingar á því hafi mótað alla sögu
Norðurlandamanna frá lokum síð-
ustu ísaldar og gjörvalla sögu íslend-
--------------------
Nýjar bækur
• ÚTERUkomnareftirtaldar
barnabækur: Palli var einn íheim-
inum eftir Jens Sigsgaard í þýðingu
Vilbergs Júlíussonar. Arne Unger-
mann gerði myndir. Bókin kemur nú
út í 6. útgáfu.
Bókin er 50 bls. Leiðbeinandi
verð: 1.140 krónur.
Tóta tætubuska eftir Kamma
Laurents í þýðingu Stefáns Júl-
íussonar. R. Storm-Petersen gerði
myndir.
Bókin kom áður út 1985.
Bókin er40bls. Leiðbeinandi
verð: 798 krónur.
Hjólin á strætó. íslenskur texti er
eftir Stefán Júlíusson. R. W. Allei
gerði myndir.
Bókin er númer 41 í bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurnar.
Bókin er32 bls. Leiðbeinandi
verð: 342 krónur.
Þekkir þú hljóðin? eftir Melanie
Bellah. íslenskur texti er eftir Stef-
án Júlíusson. Kathy Wilburn gerði
myndir.
Bókin er númer 42 í bókaflokknum
Skemmtilegu smábamabækurnar.
Bókin er32bls. Leiðbeinandi
verð: 342 krónur.
Tralli eftir Viktor Mall. íslenskur
textiereftir Vilberg Júlíusson.
Bókin er númer 5 í bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurnar.
Hún kemur nú út hér í 6. sinn.
Bókin er32bls. Leiðbeinandi
verð: 342 krónur.
Bangsi litli eftir Grete Janus. Is-
lenskur texti er eftir Vilberg Júl-
iusson. Mogens Hertz gerði myndir.
Bókin er númer 8 í bókaflokknum
Skemmtilegu smábarnabækurnar.
Hún kemur nú út hér í þriðja sinn.
Bókin er32 bls. Leiðbeinandi
verð: 342 krónur.
Utgefandi bókanna er Bókaútgáf-
an Björk.
inga. Ekki deili ég við höfundinn um
að veðurfar hafi haft mikil áhrif á
gang Islandssögunnar, en hvort það
réð svo miklu sem hann vill vera láta
er ég alls ekki viss um. Fjöldamargir
aðrir þættir höfðu einnig mikil áhrif.
í síðari hlutanum ræðir höfundur
hugsanlegar breytingar á veðurfari
og loftslagi. Ólíkt því
sem flestir ræða nú,
er hann alls óhrædd-
ur við gróðurhúsaá-
hrif og hlýnun and-
rúmsloftsins, en
telur að vegna yfir-
vofandi ísaldar væri
a.m.k. okkur íslend-
ingum hollast að
reyna að stuðla að
auknum koltvísýr-
ingi í andrúmsloft-
inu. Og til varnar ís-
öldinni, þegar hún
kemur, hefur hann
tillögur. Þær eru
óneitanlega býsna
stórbrotnar, en vart
framkvæmanlegar
Eg hafði gaman af að lesa þessa
bók Friðriks Daníelssonar. Hún er
skemmtilega og fjörlega skrifuð og
höfundur kemur óneitanlega víða við.
Um gildi hugmynda hans og tillagna
á sviði náttúruvísinda kann ég ekki
að dæma, en víst er, að þær eru harla
nýstárlegar og ganga þvert á þær
skoðanir, sem nú eru almennt til um-
ræðu og a.m.k. meirihluti vísinda-
manna virðist sammála um. Söguleg
BÆKUR
Barnabók
SJÓNVARPSSÖGUR
AFFRANS
Eftir Christine Nöstlinger. Myndir
eftir Erhard Dietl. Jórunn Sigurð-
ardóttir þýddi. Mál og menning,
2000.67 s.
RITRÖÐIN um Frans er
skemmtileg og létt frásögn af strák-
ling sem er að glíma við að skilja þann
heim sem hann lifir í. Christine Nöst-
linger er austurrískm- margverð-
launaður höfundur og er þetta níunda
bókin í ritröðinni sem kemur út á ís-
lensku. Það er býsna augljóst að þess-
ar sögur eru skrifaðar í ákveðnum
uppeldisfræðilegum tilgangi og strák-
ur er látinn spyrja spuminga og leita
svara við því sem honum liggur á
hjarta. Bak við ern foreldrarnir sem
eru skynsamir en dálítið gamaldags.
Pabbi hans vinnur hjá trygginga-
félagi og mamma hans vinnur í banka.
Auk þess er í fjölskyldunni eldri bróð-
ir hans sem heitir Jósef. Besta vin-
kona Frans heitir Gunna og þau leika
sér oft saman.
Það mál sem tekið er íyiir í þessari
bók er sú staðreynd að Frans fær
ekki að horfa á sjónvarp eins mikið og
vinir hans og bekkjarfélagar. Hann er
því oft utangátta þegar sjónvarps:
þættir koma til umræðu í skólanum. í
eitt skipti fær hann ömmu sína í lið
með sér og hún horfir á þættina og
segir honum síðan frá svo hann geti
umfjöllun Friðriks virðist mér ein-
kennast af dýrkun á þjóðveldisöld-
inni og þar fer hann ekki heldur
troðnar slóðir. Ég sé ekki betur en að
hann hallist að kenningum dr. Barða
Guðmundssonar um upprana íslend-
inga, sem fáir fræðimenn munu nú
aðhyllast, og orðræða hans um fyrstu
aldir í sögu Norðurlanda sver sig í
ætt við 1. bindi í ritröð Hermanns
nokkur Lindqvists um sögu Svíþjóð-
ar. Þau rit hafa fáir sænskir sagn-
fræðingar í hávegum, svo
ekki sé fastar að orði kveð-
ið.
Þjóðernissinni er Frið-
rik mikill og.fer ekki í felur
með það. Hann virðist
telja Islendinga fremri
flestum öðrum þjóðum á
sviði menningar og
mennta, en hefur htla trú á
gagnsemi Evrópusam-
bandsins. Ég er honum
hjartanlega sammála um
að kappkosta beri að
vemda íslenska tungu og
efla veg hennar eftir föng-
um, en get á hinn bóginn
ekki fallist á þá sérvisku
að nefna lönd og jafnvel
þjóðir upp á nýtt: kalla
Norðurlönd Skaneyri, Norður-Am-
eríku Vínland (Kanada, Norður-Vín-
land) eða ensku vínlensku.
Ekki efast ég um að skoðanir Frið-
riks Daníelssonar komi mörgum á
óvart. Þær ganga þvert á ráðandi við-
horf á flestum sviðum, en engum ætti
að leiðast lestur þessarar bókar.
tekið þátt í umræðunum.
Krakkarnir spyrja hann hvort for-
eldrar hans séu svo fátækir að þeir
hafi ekki efni á fá sér kapal eða disk
eða hvort þau séu bara sérvitringar.
Hvorugt þykir Frans gott, en hann
er hugmyndaríkur og ákveður að búa
til sinn eigin sjónvarpsþátt svo hann
geti sagt félögum sínum frá mikilli
dramatík úr þætti sem er hans eigin
hugarsmíð. Eitt sinn skellur hurð
nærri hælum þegar krakkamir ryðj-
ast heim til hans til að fá að sjá þessa
spennandi mynd sem hvergi er tU
nema í huga hans. Hann skrökvar að
mamma hans sé skass og hún leyfi
ekki bömum að koma inn tU hans.
Hann sér eftir þessu og samviskan
kvelur hann. En Frans hefur slæmt
samviskubit því hann hefur fengið
krakkana til að tráa ljótri sögu um
mömmu sem spannst út af þessu
sjónvarpsmáli. Hann ákveður að biðja
mömmu um ráð og setur dæmið
þannig upp að hann þurfi að ráðleggja
vini sínum í skólanum, en í raun er
hann að biðja mömmu um lausn á eig-
in vandamáli. Mamma sér strax í
gegnum þetta og hjálpar Frans að
leysa vandann.
Sagan um Frans er vel læsileg,
prentuð með stóm letri enda er hún
ætluð fyrir litla lestrarhesta eins og
segir í kynningu. Hún hentar vel til
upplestrar en ekki síður hentar hún
vel fyrir böm sem eru að bvrja að lesa
og þurfa að fá lestrarefni sem er vekj-
andi og kallar á umræðu um mismun-
andi lausnir á vandamálum sem þau
geta ekki leyst án hjálpar.
FYRR á þessu ári kom út ritið Orð
af eldi, bréfasamband Ólafar Sig-
urðardóttur á Hlöðum og Þor-
steins Erlingssonar á árunum
1883-1914, sem Erna Sverr-
isdóttir bókmenntafræðingur bjó
til prentunar. I bókinni birtust í
fyrsta skipti bréf Þorsteins Erl-
ingssonar skálds sem hann sendi
Ólöfu á Hlöðum en þau hafa verið í
einkaeigu frá dauða Ólafar, 1933.
Að frumkvæði eiganda frumbréf-
anna var ráðist í útgáfu bók-
arinnar í samvinnu við Háskóla-
útgáfuna og ritstjóra Sýnisbókar
íslenskrar alþýðumenningar.
ritadeild safnsins.
Við það tækifæri benti Helga
Guðrún á að bréfin væru afhent til
minningar um móður hennar, Ást-
hildi Ernu Erlingsdóttur, og von-
aðist hún til þess að þau mættu
verða fræðimönnum hvatning til
frekari rannsókna á verkum þess-
ara merku skálda.
Einar Sigurðsson lands-
bókavörður þakkaði bréfagjöfina
og sagði að enn á ný bærust safn-
inu mikilvægar heimildir í menn-
ingarsöguna sem hann væri viss
um að myndi styrkja safnið sem
miðstöð rannsókna í framtíðinni.
Sigrún Klara Hannesdóttir
Cortíse
Úlpur, frakkar, dragtir o.fl.
Stærðir 36-52
Hamraborg 1 Garðarsbraut 15
sími 554 6996 Húsavík sími 464 2450
Nú hefur eigandi bréfanna,
Helga Guðrún Jónasdóttir, fyrir
hönd fjölskyldunnar, afhent Ein-
ari Sigurðssyni landsbókaverði
frumbréfin til varðveislu í hand-
Húsbréf
Innlausnarverð
húsbréfa
Innlausnardagur 15. desember 2000.
4. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 9.817.002 kr. 1.963.400 kr. 196.340 kr. 19.634 kr.
4. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.904.770 kr.
1.000.000 kr. 1.580.954 kr.
100.000 kr. 158.095 kr.
10.000 kr. 15.810 kr.
2. flokkur 1995: Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000.000 kr. 7.578.838 kr.
1.000.000 kr. 1.515.768 kr.
100.000 kr. 151.577 kr.
10.000 kr. 15.158 kr.
1. og 2. flokkur 1998: Nafnverð: Innlausnarverð:
1.000.000 kr. 1.278.420 kr.
100.000 kr. 127.842 kr.
10.000 kr. 12.784 kr.
Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig
frammi upplýsingar um útdregin húsbréf
íbúðaiánasjóður
Borgartúni 21 I 105 Reykjavík I Sími 569 6900 I Fax 569 6800
Hann benti jafnframt á að bréfa-
safnið sameinaðist nú svarbréfum
Ólafar til Þorsteins sem afhent
voru safninu fyrir tæpum fjörutíu
árum.
Friðrik
Daníelsson
Jón Þ. Þór
Nú er það
sjónvarpið