Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 49.
MINNINGAR
ANNA GUÐMUNDS-
DÓTTIR OG
#•
SIGURÐUR BJORG-
VIN GEIRSSON
+ Anna Guðmunds-
dóttir fæddist 6.
desember 1926. Hún
lést 14. júlí 1999.
Sigurður Björgvin
Geirsson fæddist 20.
maí 1921. Hann lést
23. aprfl 2000.
Börn Önnu og Sig-
urðar eru: Björgvin
Vinjar, f. 21. mars
1949, og Marta, f. 12.
desember 1952.
Björgvin er kvæntur
Ilelgu Sigríði Magn-
úsdóttur, f. 20. sept-
ember 1956, og börn
þeirra eru: Berglind, f. 6. nóvem-
ber 1977, Sylvía Dröfn, f. 6. nóv-
ember 1979, og Stella Björg, f. 26.
mars 1984. Marta er gift Tómasi
Sigurðssyni, f. 9. mars 1952, og
böm þeirra eru: Anna Margrét, f.
3. júnf 1971, Sigurður Hinrik, f. 5.
október 1973, Hlöðver Geir, f. 7.
október 1976, Birgitta Ósk, f. 2.
nóvember 1989, og Heiðrún Lára,
f. 23. febrúar 1994.
Útfór Önnu fór fram frá Akra-
neskirkju 27. júlí 1999.
Útför Sigurðar Björgvins fór
fram frá Akraneskirkju 2. maí
2000.
Mig langar hér til að minnast Sig-
urðar frænda míns og Önnu konunn-
ar hans. Sigurður var móðurbróðir
minn, sonur Margrétar Jónsdóttur
og Geirs Jónssonar kennd við Bjarg
á Akranesi. í bamæsku fór ég í
fyrsta skipti í bílferð með Sigurði
frænda og Önnu. Ástæða þess var að
foreldrar mínir áttu ekki bíl og ætl-
unin var að heimsækja ömmu og afa
á Skaganum. Vont var í sjóinn og
þótti ekki gott að fara með mig og
systkini mín í gömlu Akraborginni
uppeftir. Því var það að Sigurður og
Anna buðu foreldrum mínum og
okkur systkinunum að koma með í
bílnum þeirra. Við vissum varla hvað
bíll var nema þá helst strætisvagnar.
Að upplifa slíka bílferð er í minn-
ingunni eins og ég hafi fengið rautt
epli sem aðeins fengust fyrir jólin.
Að koma tfl afa og ömmu á Lauga-
braut 9, þar sem Sigurður og Anna
bjuggu á neðri hæðinni, var eins og
að koma í höll úr braggahverfinu í
Kamp Knox. Sigurður og Anna áttu
tvö börn, Björgvin, sem var einu ári
eldri en ég og ég leit mjög upp til, og
Marta sem var tveimur árum yngri
en ég. Ég og Sigurgeir Snorri bróðir
minn og þau systkinin brölluðum
margt saman á þessum árum. Oft er
við vorum að lita í litabækur kom
Anna með snúð og mjólk handa okk-
ur krökkunum. Snúðar voru mun-
aður sem ekki var á borðum heima
hjá okkur. En snúðurinn var borð-
aður á sérstakan hátt, fyrst var
borðað utanmeð og miðjan geymd
þar til síðar.
Sigurður og Anna giftu sig 1949
og hófu búskap að Laugabraut 9 á
Akranesi. Sigurður fór ungur til sjós
og átti um tíma bát með Guðmundi
bróður sínum. Eins keyrði hann
vörubíl og fór síðan út í leigubíla-
akstur sem hann stundaði í hálfa öld.
Mig minnir að hann hafí átt Ford
bíla, stóra og flotta í augum okkar
barnanna. Hann var íþróttamaður
mikfll og stundaði frjálsar íþróttir og
knattspyrnu á sínum yngri árum.
A síðari árum stundaði hann sund
og munaði ekki um að stökkva helj-
arstökk er hann stakk sér til sunds
svo liðugur var hann. Sigurður var
handverksmaður góður og dundaði
sér við að smíða líkön af þekktum
kirkjum landsins. Á síðari árum festi
hann kaup á sumarbústað í landi
Stórafjalls í Borgarfírði og átti hann
mörg handverkin við að breyta hon-
um og bæta hann. Fyrir áratug hjól-
aði hann til Akureyrar sér til
skemmtunar.
Anna kona Sigurðar var fædd á
Hlíðarenda og ólst þar upp þar til
hún fluttist í Nýborg á Akranesi þar
sem hún bjó þangað til hún giftist
Sigurði. Foreldrar hennar voru Guð-
mundur Einarsson landverkamaður
og Marta Jónsdóttir húsmóðir ft'á
Lundarreykjadal og bjuggu þau
uppi á lofti í Nýborg. Anna byrjaði
ung að vinna í vist eins og margar
ungar stúlkur á þessum árum og síð-
ar stundaði hún ýmis störf svo sem
síldarverkun. Anna fékk berkla 18
ára gömul og dvaldist lengi á sjúkra-
húsum af þeim sökum. Fyrst á Víf-
ilsstöðum í tvö ár og síðan um tíma á
Kristneshæli þar sem hún var
„höggvin" sem kallað var. Sem barn
fannst mér mjög skrítið að horfa á
bakið á Önnu en það vandist með ár-
unum vegna þess hvað hún var alltaf
létt í skapinu og sífellt brosandi.
Anna varð aldrei fullgóð til heilsunn-
ar eftir þetta. Hún bjó fjölskyldu
sinni gott og fallegt heimili og þar
var gott að koma því hún var gest-
risin. Anna hafði mörg áhugamál svo
sem lestur góðra bóka, spila-
mennska, knattspyma og ferðalög
svo fátt eitt sé nefnt.
Hún lést á heimili dótturdóttur
sinnar, Önnu Margrétai', í Kaup-
mannahöfn 14. júlí 1999.
Þau hjónin höfðu gaman af því að
ferðast um landið og fóru margar
ferðir til Ólafsvíkur til að heimsælqa
Gróu systur Sigurðar sem þar bjó
með fjölskyldu sinni. Er Siggi, eins
og hann var jafnan kallaður, sá hóla
og fjöll varð hann helst að klífa þau
forvitninnar og ánægjunnar vegna.
Drottinn sem veittir frægð og heill til
foma,
farsæld og manndáð, vek oss endurboma!
Strjúk oss af augum nótt og harm þess
horfna,
hniginnar aldar tárin láttu þoma.
(Hannes Hafstein.)
Ragnheiður Hrefna
Gunnarsdóttir.
f Hlómabwðin
öarðskom
v/ PossvogsUi^kjwgaúð
Sími: 554 0500
+
ÞÓRÐUR JÓHANNSSON,
Bröttukinn 17,
Hafnarfirði,
sem andaðist á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 5. desember,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkapellu föstudaginn 15. desember
kl. 10.30.
Ragnheiður Hermannsdóttir.
+
Elsku móðir, amma, dóttir, systir og mágkona,
GÍGJA HERMANNSDÓTTIR,
Vesturgötu 27,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 10. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
15. desember kl. 15.00.
Sigríður Halla Guðmundsdóttir,
Geir Gígjar Ólason,
Sigríður Gísladóttir,
Smári Hermannsson, Ásdís Elva Jónsdóttir,
Dagný Hermannsdóttir, Páll Axelsson,
Hermann Hermannsson, Sigríður Guðmundsdóttir,
Gísli Hermannsson, Margrét Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Hermannsdóttir, Hugo Þórisson,
Stefán Hermannsson, Arnfríður Einarsdóttir,
ívar Smári Ásgeirsson, Þórunn Ámadóttir
og systkinabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐBRANDUR GUNNAR
GUÐBRANDSSON,
Búðargerði 5,
Reykjavfk,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítala Foss-
vogi þriðjudaginn 5. desember, verður jarð-
sunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 15. desember kl. 10.30.
Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á Styrktarfélag Krabbameins-
sjúkra barna.
Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Ásta G. Guðbrandsdóttir, Garðar Ágústsson,
Jóhanna J. Guðbrandsdóttir, S. Stefán Ólafsson,
Jón Marinó Guðbrandsson, Elín Elísabet Baldursdóttir,
Anna Kristín Guðbrandsdóttir, Benjamín M. Kjartansson,
Guðbjörg Jóna Jóhanns, Vilhjálmur B. Þorvaldsson,
afabörn og langafabörn.
Hjartaverndar
535 1835
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
1899
OSWALDS
sími 551 3485
! ÞJÓNUSTA ALLAN
j SÓLARHRINGINN |
1 AOAI.S I U/1 I I il! • 101 Ur.VKIAVÍK !
Daviö Inger Ólafur
Utfiirarstj. I hfararsij. Utfararstj.
I.ÍKKISTUVINNUSTOLA
EYVINDAR ÁRNASONAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður
Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við
útfararþj ónustu.
Sjáum um útfarir á allri Iandsbyggðinni.
HSverrir
Einarsson
útfararstjóri,
sími 896 8242
Baldur
Frederiksen
úlfararstjóri,
sími 895 9199
Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi.
Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn.
www.utfararstofa.ehf.is
y
'm
Vesturhlfð 2
Fossvogi
Sími 551 1266
www.utfor.is
Þegar andlát
ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar.
Við Útfararstofu kirkjugarð-
anna starfa nú 14 manns
með áratuga reynslu við
útfaraþjónustu. Stærsta
útfararþjónusta landsins
með þjónustu allan
sólarhringinn.
Prestur
Kistulagning
Kirkja
Legstaður
Kistur og krossar
Sálmaskrá
Val á tónlistafólki
Kistuskreytingar
Dánarvottorð
Erfidrykkja
\
¥
UTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA EHF.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi.
SKÚLI EYJÓLFSSON
kaupmaður,
Lyngholti 18,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju fimmtu-
daginn 14. desember kl. 14.00
Ragnhildur Ragnarsdóttir,
Ragnar Jón Skúlason, Bryndís Þorsteinsdóttir,
Selma Skúladóttir, Matthfas Sigurðsson,
Jórunn Skúladóttir, Ámi Már Árnason,
Elsa ína Skúladóttir, Guðni Birgísson,
Kristinn Skúlason, Drlfa Daníelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Laugarvatni,
fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn
16. desember kl. 13.00.
Jarðsett verður að Laugarvatni.
Sigríður Bergsteinsdóttir,
Hörður Bergsteinsson, Elín Bachmann Haraldsdóttir,
Kristín Bergsteinsdóttir,
Áslaug Bergsteinsdóttir,
Ari Bergsteinsson, Sigrún Skúladóttir,
ömmuböm og langömmubörn.
R