Morgunblaðið - 13.12.2000, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 57j
UMRÆÐAN
Ahrif sykurumræðu
og ábyrgð foreldra
MIKIL umfjöllun
hefur verið í fjölmiðl-
um í kjölfar málþings
um sykur, sem Nátt-
úrulækningafélag ís-
lands hélt þann 17.
október sl. Umfjöllun-
in hefur verið á ýmsa
lund og sýnir að brýn
þörf er á umræðunni
og er henni ekki lokið.
Mest er um vert að
umræðan skili sér til
almennings á manna-
máli.
Mörgu hefur verið
svarað og sýnt fram á
að ekki er um að vill-
ast að sykurneysla er
allt of mikil hjá okkur íslending-
um. Umræðan hefur verið kröftug
en því miður hafa ýmsir þættir orð-
ið undir í umræðunni svo sem sykr-
aðar mjólkurafurðir handa börn-
um, sykrað morgunkom, gos-
drykkjaþamb og sælgætisát barna
og unglinga.
Til að opna betur augu almenn-
ings við skaðsemi ofneyslu sykurs
er auðsynlegt að umræðan og
fræðslan fari meira inn á heimili og
skóla. Foreldrar bera mikla ábyrgð
á því sem þeir bera á borð fyrir
börnin sín. A málþinginu um sykur
var deilt á Mjólkursamsöluna
vegna mikils sykurs í afurðum sem
eiga sérstaklega að höfða til barna.
Skorað var á markaðsstjóra Mjólk-
ursamsölunnar að sjá til þess að
framleiddar yrðu umbúðir fyrir
ósykraðar eða sykurlitlar mjólkur-
afurðir sem höfða til barna.
Það ætti að vera skýlaus krafa
foreldra og allra annarra sem hafa
ábyrgðartilfinningu og vilja að
börn sín búi við sem besta heilsu,
að forstöðumenn Mjókursamsöl-
unnar sjái sóma sinn í því að bjóða
sykurminni/sykurlausar afurðir.
Kaupmenn ættu að sjá til þess að
sælgæti og gosdrykkjum sé ekki
stillt upp á of áberandi stöðum, svo
sem við afgreiðslukassa. Þessir að-
ilar segja að við höfum val, en það
er staðreynd að framsetning og
markaðssetning hefur mikil áhrif á
neysluvenjur okkar. Hver er sjálf-
um sér næstur, segir máltækið, og
ætti því hver viti borinn maður að
aa
TISSOT
Anna
Pálsdóttir
Ingi Þór
Jónsson
Swiss 1853
Garðar Ólafsson
úrsmiður, Lækjartorgi
-ilmandi œvintýri-
DVLIILO R
huga betur að neysluvenjum sínum
og sinna nánustu.
Ýmis málefni tekin
fyrir á málþingum
Mörg málþing hafa verið haldin
undanfarin ár á vegum náttúru-
lækningafélaganna í samvinnu við
Heilsustofnun NLFÍ og hefur efn-
isval verið mjög fjölbreytt. Fyrstu
þingin hélt NLFR, en árið 2000
varð breyting á og hefur nú verið
stofnuð sérstök fræðslunefnd á
vegum NLFÍ.
Fyrsta málþingið í markvissu
starfi félaganna á síðustu árum var
haldið í nóvember 1996 í Þjóðleik-
húskjallaranum og bar yfirskrift-
ina: Lækningamáttur líkamans.
Síðan hafa verið haldin málþing
um: Fæðubótarefni; „gagnleg eða
einskis virði?“ 20. janúar 1998. Er
ruslfæði heilbrigðisvandamál á Is-
landi? 4. maí 1998. Líf án streitu;
16. mars 1999. Nálarstungur: 18.
janúar 2000. Lækningamáttur
jurta; „mikill eða orðum aukinn?“
23. maí 2000. ísland sem heilsulind:
23. ágúst 2000, og nú síðast: Sykur;
„hættulaus orkugjafi eða skaðvald-
ur“?
Málþingin hafa verið mjög vel
sótt og oft hafa skapast miklar og
Sykur
Foreldrar bera mikla
ábyrgð á því, segja
Anna Pálsdóttir og
Ingi Þór Jónsson,
sem þeir bera á borð
fyrir börn sín.
góðar umræður. Mjög góðir frum-
mælendur hafa fengist á þingin.
Fræðslunefnd NLFI hefur ákveðið
að halda sér við Hótel Loftleiðir
sem þingstað í Reykjavík því þar
er öll þjónusta og aðstaða í
tengslum við ráðstefnur og mál-
þing fyrsta flokks.
Næsta málþing verður um:
Skammdegisþunglyndi; „dagsbirta
og útivist"! og verður það haldið á
Hótel Loftleiðum þann 30. janúar
2001.
Fyrirlestrana sem fiuttir voru á
málþingunum er flesta að finna á
heimasíðu Náttúrulækningafélags
íslands www.heilsuvernd.is
Anna er upplýsingafulltníi HNLFÍ
en Ingi Þór er formaður fræðslu-
nefndar NLFÍ.
4
Teg 155 24.900,-stgr.
Tegm 59.900,-stgr.
Teg 2001 98.000,-Stgr.
Teg 704 57.600,- Stgr. Teg 395 18.900,-Stgr.
Teg 2071 28.900,-Stgr.
Teg 2064 48.900,-stgr.
H.euctsöluMrgðif: 5:&Q>8. M44
Skápar
kommóður
sófaborð
úóhr..
...M fullt afhmgögnum
Teg 307 51.900,-Stgr.
Teg44 9.500,- Stgr.
Teg 544 25.900,-Stgr.
Rococostólarmarglrlttlr
möfró 22.900,- stgr.
Teg45 19.500,-stgr.
Teg287 8.600,-stgr.
Ieg97 149.600,- stgr.
HUSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIRÐI SÍMI 565 4100
Teg50 14.100,-stgr.
Teg 199/6 17.900,- stgr.
stállínan
TT 390
Tveggja sneiða brauðrist - electronic
4.490.- kr
TT990
Fjögurra sneiða brauðrist - electronic
5.490,- kr
BL306
Blandari 1 líter - 300 vött
3.990.-kr
SK950
Þráðlaus hraðsuðuketill
6.490.-kr
FP676
Matvinnsluvél
12 fylgihlutir
14.900.- kr
h
KM400
Classic hrærivél - 750
29.900.-kr
HEKLA L*Uc£ÍíuS>
HIKLUHÚSINU • LAUOAVIOI 173 •
S RIYKJAVlK • slm IM m«