Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 63
MORGUNB LAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000 63
FÓLK sem verður vart við ölvaða
ökumenn á ferð geta nú hringt til
Neyðarlínunnar í símanúmer henn-
ar, 112, og látið vita og mun lög-
regla þá grípa í taumana. Með
þessu móti vonast lögregla, Um-
ferðarráð og Neyðarlínan til að lík-
ur aukist á að hægt sé að stöðva
viðkomandi áður en þeir valda sjálf-
um sér eða öðrum tjóni, segir í
fréttatilkynningu.
„Desembermánuði fylgir ávallt
margvíslegt skemmtanahald og þar
með hjá mörgum neysla áfengra
drykkja af ýmsu tagi,“ segir í til-
kynningunni. „Til að leitast við að
koma í veg fyrir að fólk blandi sam-
an neyslu áfengis og akstri taka
Afengis- og vímuvamaráð, lögregl-
an og Umferðarráð höndum saman
til að vekja athygli á þeim hættum
sem fylgja ölvunarakstri og afleið-
Giljagaur í
Ráðhúsinu
GIUAGAUR kom til byggða í
morgun og verður í Ráðhúsi
Reykjavíkur klukkan 14 í dag.
Jólasveinarnir tínast nú til byggða
einn af öðrum og munu þeir koma í
Ráðhúsið dag hvern fram á að-
fangadag.
í sambandi
við jólin...
SOOmW sendistyrkur,
drægi 7-10 km. Fjöldi
aukahluta, svo sem
hljóðnemi
4
Spillum ekki
jólunum með
ölvunarakstri
ingum hans. Bifreiðatryggingafé-
lögin og Slysavarnafélagið Lands-
björg leggja einnig sitt af mörkum í
sama skyni.
Lögreglan í Reykjavík hefur lagt
fram kæru gagnvart 1.302 öku-
mönnum fyrir meinta ölvun við
akstur á fyrstu ellefu mánuðum
þessa árs. 937 slík mál komu til
kasta lögreglu allt síðasta ár og
1.018 árið 1998. Fjöldi þessara al-
varlegu mála er því um 30-40%
meiri í ár áður en desember byrjaði
en í desember hafa komið upp mörg
slík mál á síðustu tveimur árum.
Lögreglan leggur mikla áherslu á
eftirlit með ölvunarakstri í desem-
ber og einnig er lögð áhersla á að
koma upplýsingum og fræðslu á
framfæri samhliða eftirliti.
Ökumaður sem veldur slysi undir
áhrifum áfengis getur lent í miklum
vandræðum. Umferðarlög gera ráð
fyrir að þeir sem valda tjóni sem
rekja má til vítaverðs gáleysis séu
krafðir um bætur. Flest slík mál
koma til vegna ölvunar við akstur
eða um 90%. Eitt slys getur kostað
tugi milljóna, þannig að sá sem
veldur slíku getur misst allar sínar
eigur vegna slíkra mistaka. Ölvun-
arakstursmál af því tagi hafa oft
komið upp í desembermánuði og um
áramót.
Góð regla þegar fólk ætlar að
skemmta sér og neyta áfengis er að
skilja bílinn eftir heima. Með því
móti komast allir hjá því að freist-
ast til að aka þegar leikurinn stend-
ur hæst. Munum að gamla, góða
kjörorðið „Eftir einn - ei aki neinn“
á alltaf við.“
HITABLÁSARAR
Reykjavlk: Ármúla 11 - slmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - sími 461-1070
www.mbl.is
Nit stowiur yfir umfaugsmtkii söfnun til styrktar krahi>ameinssjúkuni hönunn. í öllum hötri störmörku'um landsins ttn seidir storkÍT og endingargó>ir pokar á
a>«ns kr. 599. Ailur ágó»i rennur óskiptur til féiags krahhamoinssjúkra hama. Kauptu faílegan imikaupapoka og styrktu um Iei> gott málefni. Verndari áuiksins
er Hr. Ólafur Ragnar Grfmssoru forseti fsfands.
HAGKAUP
£ Ö
FJARÐARKAUP
'SÍÍAX:
Umlinðsmcnn um alll Inmt
- fnsi í bolslu úÍivislorvBrslunum