Morgunblaðið - 13.12.2000, Síða 70
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLADIÐ
JL
í dag er miðvikudagur 13. desem-
ber, 348. dagur ársins 2000. Lúsíu-
messa. Orð dagsins: Enginn á meiri
kærleik en þann að leggja líf sitt í
sölurnar fyrir vini sína.
(Jóh. 15,13.)
Skipin
Reykjavíkurhðfn: Sel-
foss keraur og fer í dag.
Svanur kemur í dag.
Ólafur Bjarnason, Ólaf-
ur Magnússon, Detti-
foss og Skapti fara í
dag.
Fréttir
Bókatíðindi 2000.
Númer miðvikudagsins
13. desember er 40.
Styrkur, samtök
krabbameinssj úklinga
og aðstandenda þeirra.
Svarað er í s. Rrabba-
meinsráðgjafarinnar,
800 4040, kl. 15-17.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur, Sól-
vallagötu 48. Flóamark-
aður og fataúthlutun.
Opið frá kl. 14-17.
Áheit. Kaldrananes-
kirkja á Ströndum á 150
ára afmæli á næsta ári
og þarfnast kirkjan
mikilla endurbóta. Þeir
sem vildu styrkja þetta
málefni geta lagt inn á
reikn. 1105-05-400744.
Mannamót
Aflagrandi 40. Föstu-
daginn 15. des. Jóla-
súkkulaði hefst með há-
tíðarbingói kl. 14.
. Söngur, upplestur og
hljóðfæraleikur. Allir
velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 9-12
baðþjónusta, kl. 9-16.30
klippimyndir, útsaumur
o.fl., kl. 13 smíðastofan
opin og spilað í sal, kl. 9
hár- og fótsnyrtistofur
opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8-
13 hárgreiðsla, kl. 8-
12.30 böðun, kl. 9-12
vefnaður, kl. 9-16
handavinna og fótaað-
gerðir, kl. 10 banki, kl.
13 spiladagur og vefn-
aður. Dansað í kringum
jólatréð við undirleik
Ragnars Leví föstudag-
inn 15. des. kl. 14.
Félagsþjónustukórinn
syngur jólalög og jóla-
sveinninn kemur í heim-
sókn. Súkkulaði og kök-
ur. Ommu- og afabörnin
velkomin. Skráning á
skrifstofu og í síma
568 5052 fyrir kl. 16 á
fimmtudaginn.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18-20. Kl. 9
hárgreiðslustofan og
handavinnustofan opn-
ar, ki. 13 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka í dag kl. 15-
16. Skrifstofan í Gull-
smára 9 opin í dag kl
16.30-18.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 10 hársnyrting
og verslunin opin til kl.
13, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 13.30
enska, byrjendur.
'rélagsstarf aldraðra í
Garðabæ. Lögreglan í
Hafnarfirði býður öldr-
uðum í Garðabæ í skoð-
unarferð 14. des. Farið
frá Kirkjulundi kl. 13.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli.
Línudans kl. 11. Rútur
frá Hraunseli, Höfn og
Hjallabraut 33 kl. 13 í
Nesstofu. Pílukast kl.
13:30. Á morgun verður
opið hús, jólafundur kl.
14.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 gamlir
leikir og dansar hjá
Helgu Þórarinsdóttur,
frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 13.30 Tón-
hornið, veitingar í kaffi-
húsi Gerðubergs. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
frá kl. 10-17, kl. 10.30
boccia, kl. 13 félagsvist,
kl. 17 bobb og tréskurð-
ur. Aðventukaffi verður
í Gjábakka fimmtudag-
inn 14. des. kl. 14. Dag-
skrá: Jólahugleiðing á
aðventu, söngur og upp-
lestur. Heitt súkkulaði
m/rjóma og kökuhlað-
borð. Allir velkomnir.
Gullsmári, Gullsmára
13. Opið kl. 9-17. Mat-
arþjónusta á þriðjudög-
um og föstudögum.
Panta þarf fyrir kl. 10
sömu daga. Fótaað-
gerðastofan er opin
virka daga. Leikfimi kl.
9 og kl. 10, vefnaður kl.
9, keramikmálun kl. 13,
enska kl. 13.30. Að-
ventukaffi verður mið-
vikudaginn 13. des. kl.
15. Sr. Iris Kristjáns-
dóttir flytur hugvekju.
Söngur og upplestur.
Heit súkkulaði með
rjóma og kökuhlaðborð.
Allir velkomnir.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16.30 bútasaumur, kl.
9-12 útskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla, kl. 11
banki, kl. 13 brids.
Hæðargarður 31. Kl. 9
opin vinnustofa, og fóta-
aðgerðastofa, kl. 13
böðun.
Hvassaleiti 58-60. Kl. 9
böðun, fótaaðgerðir,
hárgreiðsla, keramik,
tau- og silkimálun og
jóga, kl. 11 sund í
Grensáslaug, kl. 15
teikning og málun.
Norðurbrún 1. Kl. 9-16
fótaaðgerðastofan opin,
kl. 9-12.30 útskurður,
kl. 9-16.45 handavinnu-
stofurnar opnar, kl. 10
sögustund, kl. 13-13.30
bankinn, kl. 14 félags-
vist, kaffi og verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.30
sund, kl. 9 fótaaðgerðir
og hárgreiðsla, kl. 9.15
aðstoð við böðun, mynd-
listarkennsla og postu-
hnsmálun, kl. 13-16
myndlistarkennsla,
glerskurður og postu-
línsmálun, kl. 13-14
spurt og spjallað. Tré-
skurðarnámskeið hefst í
janúar, leiðbeinandi
Sigurður Karlsson.
Uppl. og skráning í
síma 562 7077. Hátíð-
armessa verður í Dóm-
kirkjunni 17. des. kl. 11.
Prestur sr. Jakob Ágúst
Hjálmarsson. Söng-
fuglar, kór félagsstarfs
aldraðra í Reykjavík,
flytja hátíðarsöngva
Bjarna Þorsteinssonar,
stjórnandi Sigurbjörg
Hólmgrímsdóttir, und-
irleikari Marteinn H.
Friðriksson dóm-
organisti.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bankaþjónusta, kl. 10
morgunstund og fótaað-
gerðir, bókband og
bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13.30 bókband,
kl. 14.10 verslunarferð.
Hallgrímskirkja - eldri
bogarar, opið hús í dag
kl. 14—16, gestur Vil-
borg Dagbjartsdóttir
kennari. Bílferð fyrir þá
sem þess óska. Upplýs-
ingar veitir Dagbjört í
síma 510 1034.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
hittast á morgun,
fimmtudag, kl. 10 í
Keilu í Mjódd. Spiluð
keila, spjallað, kaffi.
Allir velkomnir. Nánari
upplýsingar veitir Ingi-
björg Sigurþórsdóttir í
síma 545 4500.
Háteigskirkja. Opið hús
í dag fyrir 60 ára og
eldri í safnaðarheimili
Háteigskirkju frá kl.
10-16. Ýmislegt á
prjónunum. Súpa og
brauð í hádeginu, kaffi
og meðlæti kl. 15. Ath.
takið með ykkur handa-
vinnu og inniskó. Von-
umst til að sjá sem
flesta. Gengið inn Esju-
megin. Á morgun kl. 10
foreldramorgunn kl.
16-17.30. Bros og bleiur
fyrir foreldra um og
undir tvítugu.
Bústaðakirkja. Starf
aldraðra miðvikudaga
kl. 13-16.30 spilað,
föndrað og bænastund.
Boðið upp á kaffi. Allir
velkomnir.
Barðstrcndingafélagið.
Spilað í kvöld í Konna-
koti, Hverfisgötu 105,2.
hæð, kl. 20.30.
Gigtarfélagið. Leikfimi
alla daga vikunnar. Létt
leikfimi, bakleikfimi
karla, vefjagigtarhópar,
jóga, vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Nánari
uppl. á skrifstofu GI, s.
530 3600.
Minningarkort
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings mál-
efnum barna fást af-
greidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma
561 0545. Gíróþjónusta.
Barnaspftali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551 4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1,103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 6691100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 669 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 669 1166,
séfblðð 5691222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 5691115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS,/Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Erfiðiskonur
og eftirlaun
ELLILAUN, tekjutrygg-
ing og heimilisuppbót
hrekkur skammt hjá þeim
konum sem nálgast lögboð-
inn eftirlaunaaldur og hafa
unnið svokölluð erfiðis-
vinnustörf, til að mynda
umönnun aldraðra og
sjúkra, og fá þar af leiðandi
sáralítið úr lífeyrissjóði.
Eitt dæmi: Ellefu barna
móðir, 30 barnabörn
o.s.frv. sem nú er að verða
heilsulaus eftir áralangt
ævistarf, innanhúss og ut-
an. Launakerfið þarf að
gera einhverjar ráðstafanir
til að laga kjör þessara
mæðra og erfiðisvinnu-
kvenna. Vitaskuld dettm-
einhverjum í hug, að það sé
afkomendanna að þakka
fyrir sig, leggja foreldri
sínu eitthvað af mörkum
mánaðarlega, en ungt
barnafólk í dag er bara svo
skuldsett vegna húsnæðis-
skulda því ekki lækka lánin
þegar borgað er af þeim, að
almennt er það ekki aflögu-
fært.
Ef eitt rúm á sjúkradeild
kostar 180 þús. kr. á mán-
uði eins og komið hefur
fram í fréttum og fjöldi ein-
staklinga nýtur árum ef
ekki áratugum saman, and-
lega eða líkamlega búnir ef
ekki hvort tveggja, þá ættu
þær konur sem vinna við
aðhlynningu þessara skjól-
stæðinga þjóðarinnar að fá
þann bita af þjóðarkökunni
sem þær fá ekki í dag, svo
þær þræli ekki úr sér heils-
unni en margar hverjar eru
orðnar heilsulitlar eða
heilsulausar um fimmtugt.
Ég hef grun um að ungir
Islendingar muni ekki gefa
kost á sér í þessi störf í
framtíðinni nema um
skammtímabil, eins og þau
eru lítilsvirt af þeim sem
aldrei hafa þurft að gegna
þeim.
Guðrún Jacobsen,
Bergstaðastræti 34.
Einkarekin
sjúkrahús
UNDARLEGASTA viðtal
um heilbrigðismál sem ég
hefi hlustað á lengi var í
sjálfu Ríkisútvarpinu einn
morguninn. Þar ræddi ein-
hver fréttakonan, Jóna
Kristín held ég að hún heiti,
við Sigríði Snæbjörnsdótt-
ur sem hefur verið að pré-
dika um einkaspítala. Eitt
mál truflar mig í þessum
efnum. Hvaðan koma allir
læknarnir sem ætla að
vinna á þessum nýja spít-
ala, eða ætla þeir bara að
stofna nýjan aðgerðaspít-
ala í samkeppni við sinn
eigin vinnustað sem er
Landspítalinn? Er það ekki
þar sem þeir
læknarnir fá
dagvinnulaun-
in sín, orlofið
sitt, ferða- og
ráðstefnufé og
18prósentílíf-
eyrisiðgjöld?
Ég veit ekki
betur. Þetta
virðist mér
vera argasta
dæmið um nið-
urgreiddan einkarekstur
sem ég hef heyrt um lengi.
Þetta hlýtur að stangast á
við ákvæði EES-samnings-
ins þessi meðgjöf. Ljótt er
að heyra.
Svava H. Friðgeirsd.,
Vallarási 4, Rvík.
Tapad/fundió
Svefnpoki og fatnaður
í óskilum
SVEFNPOKI og fatnaður
fannst íyrir utan Mennta-
skólann við Hamrahlíð fyr-
ir um það bil þremur vik-
um. Upplýsingar í síma
553-8635.
Dýrahald
Hefur einhver
séð Pflu?
PÍLA sem er brún Irish
Setter-tík, hvarf frá Selja-
hverfi í Breiðholti sl. mið-
vikudagskvöld. Ef til vill
hefur hún orðið fyrir bíl. Ef
einhver hefur orðið var við
Pílu, sem er blíð og vel upp
alin með símanúmer um
hálsinn (er orðið máð), vin-
saml. látið vita í síma 557-
7133/893-1643.
Kári er týndur
KÁRI Snæland er tveggja
ára fressköttur sem á
heima í Stangarholti í
Reykjavík. Hann er stór og
fagurlimaður, dökkgrá- og
brúnbröndóttur. Kári er
eyrnamerktur og var með
ól og bjöllu þegar hann fór
að heiman fyrir nokkrum
dögum. Hann er gæfur og
gegnir nafni en virðist ekki
hafa ratað heim úr síðustu
ævintýraferð. Síminn
heima hjá Kára er 562-4622
og systur hans og móðir
sakna hans sárt. Vinsam-
lega látið vita ef þið hafið
séð Kára nýlega, lifandi eða
dauðan.
Síminn er 562-4622 eða
897-0032.
Krossgáta
LÁRÉTT;
1 sjóðvitlaus, 8 sporið, 9
svali, 10 endir, 11 setja í
óreiðu, 13 niðurfelling,
15 viðlags, 18 reiðar, 21
streð, 22 ósönnu, 23 smá-
gerði, 24 handavinna.
LÓÐRÉTT;
2 ákvað, 3 ávöxtur, 4
tæla, 5 snaginn, 6 ólmar,
7 tölustafur, 12 hrós, 14
illmenni, 15 gleðskap, 16
ráfa, 17 frétt, 18 dugleg-
ar, 19 dáni, 20 sleit.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU;
Lárétt: 1 Sævar, 4 borða, 7 féllu, 8 lagin, 9 fes, 11 ræða,
13 saur, 14 kaggi, 15 fána, 17 frek, 20 fró, 22 lifur, 23 lof-
ar, 24 sætum, 25 Ránar.
Lóðrétt: 1 sófar, 2 volað, 3 rauf, 4 bols, 5 rugga, 6 agnar,
10 elgur, 12 aka, 13 Sif, 15 felds, 16 nefnt, 18 rófan, 19
kærar, 20 fróm, 21 ólar.
Víkverji skrifar...
ERU jólakort að verða tíma-
skekkja? Er það bara hugs-
unarlaus kækur að senda vinum og
vandamönnum kort, fólki sem við
hittum frekar sjaldan, smávegis
kveðju þar sem varla er mikið
meira sagt en gleðileg jól og farsælt
komandi ár? Er ekki hugsanlegt að
endurskoða þennan sið eitthvað.
Víkverji hefur svo sem engar
lausnir á málinu en heyrði þó á dög-
unum af einum sem reynir frekar
að hringja í fólk um þetta leyti og
færa því þannig fréttir af högum
sínum. Fannst honum þetta ekki
fráleit hugmynd og betri en að
senda kort sem segja ekki annað en
það litla sem er prentað á þau. Hins
vegar er það líka til að menn sendi
almennileg kort, nánast bréf, með
helstu fréttum, ýmist staðlað bréf
sem allur hópurinn fær eða að
menn skrifa hverjum og einum þær
fréttir og kveðjur sem hæfa hverju
húsi. Slíkum jólakortum tekur Vík-
verji fagnandi og getur vonandi
sent einhver slík líka. Hinum kort-
unum, sem eru ekki annað en jóla-
og áramótakveðjur, fækkar kannski
og ef til vill mannar Víkverji sig
upp í þess í stað að hringja í nokkra
sem hefðu fengið slík kort og rabba
við þá.
XXX
HUGMYNDIR eni uppi um það
hjá yfirvöldum Reykjavíkur-
borgar að kjósa um framtíð Reykja-
víkurflugvallar og Vatnsmýrina.
Það getur verið gott og blessað og
ekki ætlar Víkverji að blanda sér
efnislega í þá umræðu. Eitt atriði í
sambandi við slíkar kosningar hefur
þó vakið athygli en það er að beitt
verði rafrænum aðferðum. Hefur
meira að segja verið auglýst eftir
tilboðum í framkvæmd og tilhögun
slíkrar rafrænnar kosningar.
Það er með öðrum orðum þessi
rafræna aðferð sem er spennandi.
Kjörskrá yrði á einni tölvu og hægt
að kjósa á hvaða kjörstað sem vera
skal í stað þess að kjósendur þurfi
að fara á ákveðna kjörstaði. Á kjör-
stöðunum myndu menn væntanlega
líka kjósa gegnum tölvu. Einnig er
hugsanlegt að menn kjósi að heim-
an með tölvutengingu sinni. Talning
hlýtur líka að vera mun hraðvirkari
þegar kosið er rafrænt þar sem af-
staða kjósenda liggur strax fyrir.
Hitt er þó ljóst að ekki geta allir
nýtt sér þessa aðferð með tölvu
heima og ekki er víst að allir vilji
kjósa með svona tæknibúnaði á
kjörstað og heimti kjörseðil á papp-
ír og engar refjar. Kannski er þá
nauðsynlegt að verða við slíkum
óskum og gefa kjósendum kost á að
aðlagast þessum rafrænu aðferðum.
Hugsanlega verður framtíðin sú að
flestar kosningar verði rafrænar
fyrr en síðar.
XXX
MIKIÐ er um að menn kýli
vömbina á jólahlaðborðum um
þessar mundir. Enda eru þau feikn
freistandi og í boði girnileg fæða og
fjölbreytt. Víkverji tók þátt í einu
slíku á dögunum og skammast sín
ekki fyrir að segja að hann fór sex
ferðir að hlaðborðinu góða (en við-
urkennir að slíkt er náttúrlega bara
græðgi) og tíndi á disk sinn sfld-
arrétti (tvær ferðir í sfldina!), lax,
kalda kjötrétti og heita kjötrétti og
endaði á ís og ávöxtum. Þessu var
sporðrennt í góðum félagsskap og
ekki heyrði Víkverji annað en allir
færu sáttir og saddir frá borðum.
Það má sem sagt alveg hæla hlað-
borðinu á Hótel Loftleiðum.