Morgunblaðið - 13.12.2000, Blaðsíða 80
Heimavörn
Sími: 580 7000
ATLANTSSKIP
- ÁREIBANLEIKI í FLUTNINGUM -
Leitið upplýsinga í sima 520 2040
www.atlantsskip.is
MORGUNBLAÐID, KRINGLUNNII,103 REYKJAVÍK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ&MBL.IS, AKUREYRl: KAUPVANGSSTRÆTII
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Morgunblaðið/Halldðr Sveinbjöms
- it/Pmfr^
;.W ■' - ' ??%&&&
-■* ■■ - , M* ■ '5 -
. >4’' .
SIF rifar seglin í rekstri í Noregi
Erfið skilyrði
og taprekstur
Róandi
jólasveinn
JÓLASVEINARNIR koma nú hver
á fætur öðrum eftir strangt ferða-
lag ofan úr fjöllunum og þurfa þá
stundum að fara sjóleiðina til að
stytta sér leið til byggða. Ljós-
myndari rakst á Giljagaur á ferða-
lagi sínu í gær þar sem hann kom
róandi á árabát inn Dýrafjörðinn.
Morgunblaðið/Björgvin Pálsson
Bflarnir voru mikið skemmdir
eftir áreksturinn.
Harður
árekstur
TVEIR voru fluttir á slysadeild eftir
harðan árekstur jeppa og fólksbfls á
Reykjavíkurvegi á móts við Hraun-
brún og Flatahraun í Hafnarflrði rétt
fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi.
Meiðsl fólksins voru talin minnihátt-
ar. Bflamir voru mikið skemmdir eft-
ir áreksturinn og þurfti að kalla
tækjabfl slökkviliðsins á vettvang.
GUJ&GAGR
m m m mmm.i.m m SS n m.'K s
11 dagar til jóla
Minni líkur á greiðslu kauptrygging-ar hjá Isfélaginu
Framkvæmdastj óri
ósáttur við svör ríkis
Morgunblaðið/Sigurgeir
Rúmlega fímmtíu manns unnu í gær hörðum höndum að hreinsun og
uppbyggingu í þeim hluta húss ísfélagsins í Vestmannaeyjum sem best
slapp frá eldsvoðanum um helgina.
SÍF hf. hefur ákveðið að draga úr
þátttöku sinni í veiðum og vinnslu í
Noregi vegna erfiðra starfsskilyrða
-“rog tapreksturs.
Öm V. Skúlason, framkvæmda-
stjóri markaðssviðs hjá móðurfélagi
SIF, segir að rekstrarskilyrði fyrir
vinnslufyrirtæki séu erfið í Noregi
og SIF hafi tapað peningum á
rekstrinum þar í landi. „Okkur finnst
útlitið ekki alveg nógu gott og höfum
þess vegna ákveðið að draga okkur
út úr þessari vinnslu og einbeita okk-
ur að kjarnastarfsemi fyrirtækisins,
sem er sala á afurðum á þeim mörk-
uðum sem við störfum á.“
Að sögn Arnar voru öll skilyrði
mjög hagstæð á ámnum 1997 og
1998 þegar ákvörðun var tekin um að
vera með umræddan rekstur í Nor-
egi, en um var að ræða þrjú vinnslu-
. ftvrirtæki. Starfsemi fiskrinnslufyr-
irtækisins Nykvag Fisk AS í
Vesteralen hefur nú verið stöðvuð og
hús og tæki þess seld. Fiskvinnslu-
fyrirtækið Eidet Fisk AS í Vester-
alen hefur verið selt Ágústi Sigurðs-
syni, framkvæmdastjóra fyrirtæk-
isins, og útgerðaraðilum á svæðinu,
en við sölu fyrirtækisins var jafn-
framt gerður samningur um að SÍF
hf. annist alla sölu afurða Eidet Fisk
AS á komandi árum. Þá standa yfir
viðræður um sölu á fjórum bátum
sem SÍF hf. hefur verið aðili að.
Ennfremur hefur verið dregið úr
rekstri fiskvinnslufyrirtækisins
Loppa Fisk AS í Finnmörku, en fyrir
liggur að leita eftir sölu á fyrirtæk-
inu eða samstarfi við aðila á svæðinu
um breytingar á rekstri þess.
Öm segir að samfara fyrrnefndum
breytingum komi starfsmenn skrif-
stofu SIF í Tromsö til með að ein-
beita sér að innkaupum á hráefni
fyrir alla þá starfsemi sem SÍF er
með um allan heim. „Við seljum fisk
til meira en 60 landa í heiminum en
mest í 16 löndum,“ segir Öm. „Þessi
vinnsluþáttur í Noregi er því ekki
stór þáttur af heildarstarfsemi fyr-
irtækisins en í heildina eram við að
skerpa línurnar í fyrirtækinu öllu í
því sem er okkar kjamastarfsemi, en
við lítum fyrst og fremst á okkur sem
markaðs- og sölufyrirtæki.“
EF ísfélagið hyggst greiða starfs-
mönnum sínum kauptryggingu
mun ríkið aðeins greiða því til baka
hluta af þeirri upphæð, eða þá upp-
hæð sem nemur atvinnuleysisbót-
unum, en mismunurinn getur num-
ið allt að 30 þúsund krónum á
mánuði fyrir fulla vinnu, að sögn
Jóhanns Péturs Andersen, fram-
kvæmdastjóra ísfélagsins.
Jóhann Pétur sagði að þetta
væru viss vonbrigði, en að fyrir-
tækið ásamt verkalýðsfélögunum í
bænum myndi áfram berjast fyrir
betri kjörum starfsfólksins og at-
huga hvort þetta væri lokasvar
hins opinbera.
Jóhann Pétur sagði að með því
að bjóðast til að sjá um greiðslur
kauptryggingar hefði hann vonast
eftir því að ríkið myndi koma betur
til móts við fólkið, þar sem fyr-
irtækið væri með þessu að spara
Vinnumiðlun svæðisins vinnu og
peninga. Hann sagði að fólkið væri
á launaskrá hjá fyrirtækinu og því
ætti það hægt um vik með að sjá
um þessar greiðslur.
Guðmundur Gunnarsson, yfir-
verkfræðingur hjá Brunamálstofn-
un, kannaði brunarústimar í Eyj-
um á mánudag og sagði við
Morgunblaðið að brunahólfun hefði
verið ábótavant hjá ísfélaginu þótt
talsvert hafi verið gert til að koma
til móts við athugasemdir stofn-
unarinnar frá því fyrir fjóram áram
við ástand brunavarna í fyrirtæk-
inu.
Rúmlega fimmtíu manns unnu
hörðum höndum að hreinsun og
uppbyggingu í þeim hluta húss ís-
félagsins sem best slapp frá elds-
voðanum og segist Daði Pálsson,
vinnslustjóri, vonast til að loðnu-
vinnsla geti hafist þar í janúar.
Hópur starfsmanna Isfélagsins
hittist í Alþýðuhúsinu í Vestmanna-
eyjum í gærmorgun, fór saman í
gönguferð og söng jólalög fyrir
starfsmenn Tryggingamiðstöðvar-
innar - tryggingafélags ísfélagsins.
Tryggvi Ólafsson, lögreglu-
fulltrúi í Eyjum, sagði í gær að
eldsupptök væra enn óljós en lög-
reglan í Eyjum vinnur að rannsókn
á brunastað ásamt starfsmönnum
ríkislögreglustjórans.
■ Starfsfólk/40-41
n
Maestro
ÞITT FE
HVAR SEM
ÞÚ ERT