Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nautgripir drápust úr gaseitrun Hrunamannahreppi. Morgunblaðið. SEX nautgripir drápust af metan- gasmyndun úr haughúsi á bænum Bjargi hér í sveit nú fyrir jólin. Bóndinn á bænum, Karl Jónsson, var að hræra upp mykju í haughúsi með haugsugu, hann brá sér í síma- viðtal sem tók innan við tíu mínútur. Þegar hann kom til baka lágu all- nokkrir nautgripir í valnum, fjórir kálfar drápust, kvíga komin að burði og ein kýr sem var í geldstöðu. Aðrir nautgripir í húsinu jöfnuðu sig. Þrátt fyrir að Karl hefði opnað stórar dyr áður en hann byrjaði að blása kom þetta fyrir. Hann sagðist strax hafa gert sér grein fyrir hvað var að gerast og því passað sig á að verða ekki fyrir þessu sjálfur. Nokkru áður lét hann renna heitt vatn í haughúsið og telur hann það hafa magnað upp gasmyndunina. Áður hafa komið upp tilfelli hér á landi þar sem gripir hafa drepist af gasmyndun úr haughúsum. Þá hafa menn í nokkrum tilfellum verið hætt komnir af þessum sökum og má nefna dæmi héðan úr hreppnum þar sem sonur bjargaði föður sínum sem fallið hafði í ómegin af gaseitrun. Er- lendis munu dauðsföll af þessum sökum vera alþekkt. Verkfall framhaldsskólakennara hefur nú staðið í sjö vikur Aftur kominn gangur í samningaviðræður Morgunblaðið/Kristinn Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakcnnara, og Hjördfs Þorgeirsdótiir varaformaður líta á gögn hjá sáttasemjara í gær. VIÐRÆÐUR samninganefnda Félags framhaldsskólakennara og samninganefndar ríkisins hófust aft- ur hjá ríkissáttasemjara í gær og verður fram haldið í dag. Upp úr við- ræðunum slitnaði á föstudag fyrir jól eftir ágreining um vinnutímaþátt kjarasamnings, en að sögn Þóris Ein- arssonar ríkissáttasemjara var kom- inn nokkur gangur í viðræðurnar aft- urígær. Gert er ráð fyrir að samningur Félags framhaldsskólakennara og Verslunarskóla íslands verði borinn undir atkvæði kennara við skólann öðru hvorum megin við áramótin, en skrifað var undir nýjan kjarasamning kennara við skólann til fjögurra ára sl. föstudag. Mikil hækkun á grunnlaunum kennara Verslunarskólans Kjarasamningurinn sem kennarar gerðu við Verslunarskóla íslands fel- ur í sér mikla hækkun grunnlauna strax um áramót vegna stórtækra til- færslna milli yfirvinnu og dagvinnu og vegna þess að kennarar skipta nú með sér ábyrgð á störfum s.s. deild- arstjóm og umsjón með nemendum. Áætlað er að grunnlaun kennara hækki um allt að helming á samn- ingstímanum. í lyarasamningi VÍ er haldið í öll helstu atriði er varða vinnutíma kennara s.s. 9 mánaða starfstíma, 175 kennslu- og prófadaga er fara skulu fram innan níu mánaða starfstíma, fjóra daga eða 32 klst. við upphaf og/ eða lok starfstíma og 80 klst. til end- urmenntunar. I samningnum er skil- greindur kennslustuðullinn 1,7 m.v. 24 stunda kennsluskyldu. Sérstök bókun fylgir samningnum um kennsluskylduafslátt. Á heimasíðu Kennarasmbandsins kemur fram að ein helsta tilslökunin af hálfu kennara er vai'ðandi kennslu- aflslátt og er hann minnkaður í skil- greindum áföngum gagnvart starf- andi kennurum við skólann á löngum tíma. Inn í kjarasamninginn bætist grein um samstarfsnefnd við VI. Kjarasamningurinn gildir frá 22. desember 2000 til 30. apríl 2004 og kemur síðasta áfangahækkun hans til framkvæmda 1. desember 2003 og er hún 9%. Aldamótabrennur Morgunblaðið/ Kristinn NTJ ERU ekki eftir nema örfáir dagar af árinu og 20. öldinni að sumra mati, en talna- fróðir menn telja að öldinni ljúki með árinu 2000, en ekki árinu 1999 eins og sumir vildu haida fram um siðastliðin áramót. Það er því tímabært að huga að hefðbundnum áramóta- og í þessu tilviki jafnvel aldamótabrennum, sem nú er verið að hlaða og kveikt verður í víða um land að kvöldi gamlársdags. Tölvum og skjá- vörpum stolið úr Tækniskóla Islands Tjónið metið á 8 til 9 millj- ónir króna BROTIST var inn í Tækniskóla íslands á Höfðabakka í Reykja- vík um jólin og stolið þaðan 18 tölvum, 10 skjávörpum og auk þess skemmdarverk unnin á innanstokksmunum. Guð- brandur Steinþórsson, rektor Tækniskólans, sagði í samtali við Morgunblaðið að tjónið væri metið á 7 til 8 milljónir króna. Málið er óupplýst og er í rannsókn hjá lögreglu. „Það er auðvitað mjög slæmt að vera án þessara tækja, en við verðum að þola það fyrst um sinn,“ sagði Guðbrandur. Guðbrandur segir að þjóf- arnir hafi líklega brotist inn á jóladag eða jólanótt þegar eng- ir starfsmenn voru í húsinu. Innbrotið uppgötvaðist í fyrra- dag og var strax tilkynnt til lög- reglu. Ljóst er að þjófarnir hafa brotið upp aðaldyr hússins og farið þar inn. Þeir brutu upp milli 40 og 50 dyr í skólanum til að komast inn í kennslustofur. Þeir höfðu á brott með sér 18 einkatölvur og 10 skjávarpa. Guðbrandur sagði greinilegt að fleiri en einn maður hefðu verið að verki í innbrotinu. ISérblöð í dag SSÍMK Sérblað nm viðskipti/atvinnulíf ÍHémR Eiður Smári fór á kostum með Chelsea / C2 Keflvíkingar endurheimta þrjá leikmenn / C1 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.