Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 100 manns komu saman við útivistarsvæðið Solarvé í Grindavík
Ráðist á lögreglu og
slökkviliðsmenn
RÁÐIST var að lögreglumönnum og slökkviðliðs-
mönnum við útivistarsvæðið Sólarvé í Grindavík
aðfaranótt annars dags jóla. Að sögn lögreglunnar
í Keflavík voru um 100 manns, flestir um tvítugir
að aldri, samankomnir á staðnum til þess að
skemmta sér og hafði verið kveikt í bálkesti á
staðnum, en samkoman var haldin í leyfisleysi yf-
irvalda.
Að sögn lögreglu kom til ryskinga þegar lög-
reglan hugðist senda fólk af staðnum og slasaðist
einn lögreglumaður minniháttar á andliti og fæti.
Lögreglan þurfti að beita úða til þess að kveða nið-
ur óspektirnar.
Einn maður var færður í fangageymslur lög-
reglunnar um nóttina en málið er nú í höndum
rannsóknarlögreglunnar í Keflavík og samkvæmt
upplýsingum frá henni má búast við því að ein-
hverjar kærur verði gefnar út í kjölfar atburð-
arins.
Samkoman auglýst
í útvarpinu
Auglýstur hafði verið dansleikur í Hafurbirn-
inum þessa nótt en þegar ljóst var að ekki hefði
fengist leyfi fyrir honum var auglýst samkoma við
Sólarvé á útvarpsstöðinni Bergmáli sem er stað-
bundin útvarpsstöð. Lögreglan frétti af samkom-
unni eftir að piltur, sem hafði brennt sig á fæti við'
að tendra eídinn, leitaði hjálpar. Upphaflega fóru
tveir lögreglumenn á vettvang en fljótlega vora
fleiri kallaðir til og þegar óspektirnar vora mestar
vora 9 lögreglumenn á staðnum.
Ásatrúarmenn hafa sent frá sér yfirlýsingu þar
sem tekið er fram að þeir eigi engin mannvirki eða
aðstöðu í Grindavík og þeir hafi að ósekju verið
bendlaðir við óspektir sem urðu í Grindavík þessa
nótt. í yfirlýsingunni segjast ásatrúarmenn
harma að hafa að ósekju verið bendlaðir við þessar
óspektir. í huga þeirra séu jólin heilög hátíð ljóss
og friðar en síst af öllu tilefni til átaka við lögreglu
og slökkvilið.
Útivistarsvæðið sem nefnt er Sólarvé var að
mestu unnið af Tryggva Hansen steinsmiði. Verk-
ið var byggt í nafni félags sem nefndist Vor siður
og er um að ræða eins konar hof.
Happdrætti Ilf
Vann ríf-
lega 30
millj. kr.
RÚMLEGA fertug kona í
Reykjavík datt í lukkupottinn í
gærkvöldi þegar dregið var í
Heita pottinum hjá Happ-
drætti Háskóla íslands, því
hún vann ríflega 30 milljónir
króna.
Konan átti trompmiða, sem
er fimmfaldur miði, og einn
einfaldan miða að auki á núm-
erinu 15133. Að auki fengu
þrír vinningshafar fimm millj-
óna króna vinninga á einfalda
miða, en þeir era búsettir í
Hafnarfirði, Hveragerði og á
ísafirði.
Tíu miðaeigendur til viðbót-
ar fengu einnar milljónar
króna vinning hver. Af þeim
vora fimm búsettir í Hafnar-
firði og einn búsettur í Kópa-
vogi, Reykjavík, Seltjamar-
nesi, Siglufirði og á Akureyri.
Heildarverðmæti vinninga
sem dregnir vora út í gær-
kvöldi hjá HHÍ var því um 55
milljónir kr.
Morgunblaðið/Jim Smart
Inni í útihúsunum sem brunnu á júladag voru m.a. gamlir traktorar sem bóndinn á staðnum hafði safnað.
Eldur í útihúsum á Kjalarnesi
ELDUR kom upp í útihúsum við
bæinn Útkot á Kjalarnesi á jóla-
dagsmorgun. Hvorki menn né
skepnur hlutu skaða af brunanum
en tvö útihús brannu mikið og er
ljóst að fjárhagslegt tjón vegna
þessa er töluvert. Inni í útihús-
unum sem brannu voru m.a. gaml-
ir traktorar og jeppar og síðasti
kínverski bíllinn á Islandi. Þegar
slökkvilið kom á staðinn logaði eld-
ur upp úr húsunum, en að sögn
slökkviliðsins tók um háltíma að
ná tökum á honum og tók slökkvi-
starfið í heild um tvo tíma. Sendir
voru slökkvibílar ofan úr Tungu-
hálsi og Skógarhlíðinni og einnig
var bíll frá Reykjavíkurflugvelli
sendur til öryggis. Þá tók slökkvi-
lið á Kjalarnesi einnig þátt í
slökkvistörfum.
Að sögn slökkviliðsins voru hús-
in einangruð með spónum og því
var nægur eldsmatur í þeim.
Minnst tjón varð á útihúsinu sem
er næst bænum en hin tvö
skemmdust gríðarlega mikið.
Vetrar-
stilla við
Gróttu
VEÐRÁTTAN yfir jólahátíðina hef-
ur víðast hvar um landið verið
landsmönnum með eindæmum hlið-
holl. Vetrarstillur hafa verið
ríkjandi líkt og hér má sjá við
Gróttu þegar flutningaskip siglir
þar hjá. Veðurspá gerir áfram ráð
fyrir björtu en köldu tíðarfari sunn-
an- og vestanlands um áramótin en
norðan- og austanlands er reiknað
með snjókomu eða éljagangi.
Lokið við að
hreinsa úr
vinnsluhúsi
Isfélagsins
STARFSMENN ísfélagsins luku á
Þorláksmessu við að hreinsa út úr
brunarústunum í vinnsluhúsi Is-
félagsins og eftir stendur húsatóft-
in auð og tóm. Fram kemur á
fréttavef Frétta í Vestmannaeyj-
um að málmurinn hafi verið fluttur
á Eiðið þar sem hann verður skor-
inn niður í brotajárn og fluttur til
útlanda. Aðrir hlutar hússins voru
fluttir til urðunar og brennslu í
Sorpu. Búið er að loka þeim hlut-
um hússins, sem að mestu sluppu
við skemmdir.
Fram kemur að milli jóla og ný-
árs sé ætlunin að þrífa og mála
þann hluta hússins sem nýtanlegur
er þannig að fljótlega eftir áramót-
in ætti aðstaða fyrir síldar- og
loðnuvinnslu að vera komín í
sæmilegt horf.
Þá er búið að fá lánuð frystitæki
í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar og
verða þau sótt milli jóla og nýárs.
Báðir frystiklefarnir eyðilögðust
í brananum, en í gamla ísfélags-
húsinu eru frystiklefar í ágætu
standi og verða þeir nýttir á vænt-
anlegri loðnuvertíð.
Breytt
póstnúmer
GERÐAR hafa verið breytingar
á póstnúmeram í hluta Hafnar-
fjai-ðar, Kópavogs og Reykja-
víkur. Einnig var gerð breyting
á póstnúmeri í Snæfellsbæ.
í Hafnarfirði er sú breyting
orðin að svæðið sem er austan
og sunnan megin við Reykjanes-
braut, Ásland og Setbergsland,
er nú með póstnúmerið 221
Hafnarfjörður. í Kópavogi hef-
ur svæðið sem er sunnan og suð-
austan við Kópavogslæk,
Smárasvæðið, Lindimar og Sal-
irnir ásamt Dalveginum öllum,
fengið póstnúmerið 201 Kópa-
vogur. Svæðið sem er almennt
nefnt Vatnsendablettur er með
póstnúmerið 203 Kópavogur.
Svæðið sem er austan megin
við Vesturlandsveg þegar keyrt
er norður, Grafarholtið, hefur
fengið póstnúmerið 113 Reykja-
vík. Að lokum var gerð breyting
á póstnúmeri Snæfellsbæjar
(Amarstapi, Breiðavík, Hellnar
og Staðarsveit). Snæfellsbær
hafði áður póstnúmerið 355 en
hefur nú fengið póstnúmerið 356
Snæfellsbær.
Ólafsvík er með póstnúmerið
355 eins og áður og Hellissandur
verður áfram með póstnúmerið
360.
Póstur sem hefur verið póst-
lagður til ofangreindra svæða
undir eldra póstnúmeri kemst
að sjálfsögðu til skila, að því er
fram kemur í fréttatilkynningu.
Eldri póstnúmer verða áfram
tekin gild eitthvað fram á nýár.