Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBBR 2000 13
Utflutningur á íslensku lambakjöti
til Færeyja leggst ekki af þrátt
fyrir hertar ESB-reglur
Fimm íslensk
sláturhús viður-
kennd af ESB
HERTAR reglur Færeyinga um
innflutning landbúnaðarvara til
eyjanna, sem taka gildi 1. febrúar
næstkomandi samkvæmt samningi
við Evrópusambandið, hafa lítil sem
engin áhrif á útflutning á íslensku
lambakjöti til Færeyja, að sögn Að-
alsteins Jónssonar, formanns
Landssamtaka sauðfjárbænda.
Samkvæmt samningnum við ESB
munu Færeyingar ekki taka við
kjöti nema frá sláturhúsum sem
hlotið hafa viðurkennt leyfi frá
ESB. Um helmingur alls útflutn-
ings á íslensku Iambakjöti hefur
farið til Færeyja, eða um 500 tonn
af 1.000-1.200 tonnum, en kjötið
hefur að langmestu leyti komið frá
þeim fimm sláturhúsum sem hafa
fyrrnefnt leyfi frá Evrópusamband-
inu. Þetta eru sláturhús á vegum
Sláturfélags Suðurlands á Selfossi,
Goða á Höfn í Hornafirði og
Hvammstanga, Norðlenska mat-
borðsins á Húsavík og Sölufélags A-
Húnvetninga á Blönduósi. Reglurn-
ar gætu þó haft áhrif á einstaka
minni sláturleyfishafa, m.a. Kaup-
félag Skagfirðinga sem hefur flutt
nokkurt magn til Færeyja. En þar
hefur verið óskað eftir leyfi frá
ESB og reiknað er með að það
verði komið fyrir sláturtíð næsta
hausts.
Nægjanlegt magn
í útflutninginn
Aðalsteinn sagði að nægjanlegt
magn af kjöti kæmi frá þessum
fimm sláturhúsum í þann útflutning
sem þyrfti að sinna. Hann sagði
ennfremur að Færeyjar væru síð-
asta landið í Evrópu, sem íslenskt
lambakjöt væri flutt til, sem tileink-
aði sér hertar reglur Evrópusam-
bandsins. Auk Færeyja hefur tölu-
vert verið flutt út af kjötskrokkum
til Danmerkur og Noregs og þá ein-
göngu frá viðurkenndum sláturhús-
um. Unnar kjötvörur hefur ekki
verið hægt að flytja út, þar sem
engin kjötvinnsla hér á landi hefur
tilskilin leyfi sem ESB hefur kraf-
ist. Fram hefur komið í Morgun-
blaðinu að Sláturfélag Suðurlands
áformi rekstur kjötvinnslu í Dan-
mörku til að geta selt unnar kjöt-
vörur fyrir markaði Evrópusam-
bandsins.
Skagfírðingar bíða úttektar
frá Evrópusambandinu
Sá sláturleyfishafi sem einna
mest hefur flutt til Færeyja, en
ekki haft viðurkennt leyfi ESB, er
sláturhús Kaupfélags Skagfirðinga
á Sauðárkróki. Að sögn Vésteins
Vésteinssonar sláturhússtjóra komu
tíðindin frá Færeyjum kaupfélags-
mönnum á óvart en hann taldi að
megnið af útflutningi yfirstandandi
sláturtíðar, um 80 tonn, yrði komið
til Færeyja fyrir 1. febrúar nk. Á
síðustu sláturtíð fóru um 100 tonn
af skagfirsku lambakjöti til Fær-
eyja.
„Við erum að vinna að því að slát-
urhúsið fái útflutningsleyfi á Evr-
ópumarkaði og sú vinna var hafin
áður en við vissum þetta með Fær-
eyjar. Liður í því er að við gerðum
töluverðar breytingar á húsinu í
haust og bíðum eftir því að úttektir
heilbrigðisyfirvalda Evrópusam-
bandsins fari fram. Við bindum von-
ir við að því ljúki á næsta ári þannig
að við verðum í hópi þeirra slát-
urhúsa sem komin eru með leyfi.
Þetta er nauðsynlegur áfangi sem
þarf að nást,“ sagði Vésteinn.
Staðgreiðsluhlut-
fallið hækkar um
0,39 prósentustig
STAÐGREIÐSLUHLUTFALLIÐ
verður 38,76% á árinu 2001 og
hækkar um 0,39 prósentustig frá
því í ár, en hlutfallið hefur verið
38,37%.
Staðgreiðsluhlutfallið hækkar
þrátt fyrir að tekjuskattshlutfallið
lækki um 0,33 prósentustig þar
sem útsvarsprósentan hækkar
meira en nemur lækkun tekju-
skattsins. Á næsta ári verður hlut-
fall tekjuskatts af staðgreiðslunni
26,08% en var 26,41%. Hlutfall
meðalútsvars á næsta ári verður
12,68%, en meðalútsvar var 11,94%
og hækkar því um 0,74 prósentu-
stig.
Samkvæmt lögum hafa sveitar-
félög heimild til að leggja að há-
marki 12,70% á skattskyldar
tekjur og að lágmarki 11,24%. Öll
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu
nýta heimild sína til að leggja á
hámarksútsvar nema Garðabær og
Seltjarnarnes sem leggja á 12,46%
í útsvar og Mosfellsbær sem legg-
ur á 12,65%. Sama gildir um lang-
flest sveitarfélög á landinu, þ.á m.
Akureyri, Isafjörð, Vestmannaeyj-
ar, Hornafjörð og fleiri. Einungis
fjórir sveitahreppar leggja á lag-
marksútsvar. Það eru Hvalfjarð-
arstrandarhreppur, Skilmanna-
hreppur og Skorradalshreppur í
Borgarfirði og Ásahreppur í Rang-
árvallasýslu.
Persónuafsláttur eykst um
rúmar 700 kr. á mánuði
Persónuafsláttur eykst á næsta
ári um rúmar 700 kr. á mánuði og
verður 25.245 kr. í stað 24.510 kr. í
ár. Þá verður heimilt að millifæra
90% af ónýttum persónuafslætti
maka, en hlutfallið var 85% á árinu
2000. Hlutfallið hækkar í 95% á
árinu 2002 og heimilt verður að
millifæra hann að fullu árið 2003.
Þá er heimilt að halda 4%
gi-eiðslu í lífeyrissjóð utan stað-
greiðslu og 4% til viðbótar sé um
viðbótartryggingavernd að ræða
samkvæmt sérstökum samningi
þar um. Tryggingagjald verður
óbreytt milli ára, 5,23% í öllum at-
vinnugreinum nema hjá útgerðum
bætast við 0,65 prósentustig vegna
slysatryggingar og er hlutfallið
þar 5,88%.
Þá verður næsta ári lagður á
sérstakur 7% hátekjuskattur á
tekjur umfram 3.360 þúsund hjá
einstaklingi og tvöfaldast sú upp-
hæð ef um hjón eða sambýlisfólk
er að ræða. Hátekjuskattur er
ákvarðaður við álagningu og er
ekki greiddur í staðgreiðslu.
Barist fyrir bættri
umferðarmenningu
Á FJÓRÐA hundrað
manns minntist í gær
vinar síns Guðmundar
Isars Ágústssonar sem
lést af slysförum þennan
dag fyrir tveimur árum
en Guðmundur var á
þrettánda ári þegar
hann lést. Minning-
artónleikar og helgi-
stund var haldin í Nes-
kirkju þar sem fjöldi
listamanna kom fram til
að minnast látins vinar.
Að Iokinni helgistund-
inni var „Gúndaganga"
gengin þar sem kirkju-
gestir fóru fylktu liði
með kyndla að leiði hins
látna í Fossvogs-
kirkjugarði undir kjör-
orðinu „Unglingar gegn
of hröðum akstri“.
„Það slær á sorgina
og er ómetanlegur
stuðningur að eiga
svona stund sainan,"
sagði Guðbjörg Guð-
mundsdóttir, móðir
Gúnda. „Tónleikarnir
voru fallegir og hug-
Ijúfir en einnig trega-
blandnir, það má eig-
inlega segja að
listamennirnir hafi snert
alla tilfinningastrengina.
Það var einnig hjart-
næmt að sjá alla vini og
skólafélaga Gúnda úr
Hagaskóla samankomna en þeir
hafa sótt það fast að fá að minn-
ast félaga síns með þessum hætti
til að öðlast styrk í sorginni.“
Morgunblaðið/Kristinn
Frá minningartónleikum um Guðmund fsar í
Neskirkju í gær.
Tilgangur tónleikanna var ekki
síst að minna á afleiðingar hrað-
aksturs og nauðsyn þess að
sporna gegn honum. „Fjöldi
dauðaslysa í umferðinni
er hörmulegur og við
verðum að efla meðvit-
und ökumanna um hvaða
afleiðingar ofsaakstur
getur haft. Það færir
okkur enginn látinn ást-
vin til baka,“ sagði Guð-
björg og lagði þunga
áherslu á að bætt um-
ferðarmenning ætti að
vera forgangsatriði í
huga landsmanna.
„Við verðum sér-
staklega að vekja ung-
linga til umhugsunar um
hætturnar sem hrað-
akstur getur haft í för
með sér. Þau sitja undir
stýri von bráðar og eru í
hvað mestum áhættuhópi
að Ienda í slysum,“ sagði
Guðbjörg.
Aðspurð hvort minn-
ingarstund sem þessi
verði árleg hér eftir
sagðist hún vona að svo
yrði og „Gúndaganga"
festist í vitund þjóð-
arinnar sem þörf áminn-
ing um hætturnar í um-
ferðinni og nauðsyn
forvarna gegn umferð-
arslysuin og hraðakstri.
„Forvarnir sem þurfa
ekki að kosta peninga og
geta byrjað með hug-
arfarsbyltingu. Draum-
urinn er að stofna minn-
ingarsjóð í nafni Guðmundar
Isars sem hægt væri að veita úr
árlega til styrktar fórnarlömbum
umferðarslysa.“
Krabbameins-
félagsins
24. (/eA'esfi/fe/*
2000
Cf'ínnínacii*
Volkswagen Bjalla. Verðmæti 1.800.000 kr.
27114
Bifreið eða greiðsla upp í íbúð, 1.000.000 kr.
82117
Úttekt hjá verslun eða ferðaskrifstofu, 100.000 kr.
844 14470 29919 43617 56595 69283 93858 104566 118185 139128
1791 16600 29957 43714 57064 72600 94248 104668 118892 139950
2343 17316 30523 44164 57972 75361 94823 104880 120727 141651
3640 18272 30573 48217 60200 77667 95537 107041 122339 143251
4053 18317 31950 48663 63414 78952 95595 110371 126581 143407
4484 19012 32194 49085 64032 79273 95884 110674 127625 144155
4556 19245 32539 49862 65357 81006 95904 110861 128903 144437
6282 19397 34283 50064 65800 82699 96330 111308 129657 144651
7882 20451 35263 50562 67373 83167 96607 112250 129879 145617
8895 20686 36043 50843 67796 86205 97177 112625 130039 146209
9968 22305 37285 53870 67861 89464 97984 113140 133607 146381
10390 22739 38568 54096 67911 89930 99389 114310 133743 146486
11979 26406 39450 54159 67936 90155 101467 115751 133831 146894
13178 26593 40121 54162 68142 90269 102234 115789 134645 147433
13290 26699 42551 54776 68708 91112 103017 116050 134698
14214 29603 42851 56134 69087 91736 103240 116634 137474
é
f4&a/>6ameies/e/agidfiaAAar
/a/u/smönmmi oeitía/i xtuAni/uj
Krabbameinsfélagið
Handhafar vinningsmiða framvísi þeim á
skrifstofu Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8, sími 540 1900.