Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 39
LISTIR
Gítarleikararnir Símon H. Ivarsson og Jörgen Brilling ásamt Ingimundi
Sigfússyni, sendiherra í Þýskalandi, og eiginkonu hans, Valgerði Vals-
dóttur, og aðstandendum afmælistónleikanna í Hamburg.
Tónleikaferð
um Þýskaland
GÍTARLEIKARINN Símon H. ív-
arsson er nýlega kominn úr tveggja
vikna tónleikaferð um Þýskaland,
þar sem hann fékk lofsamlega gagn-
rýni um leik sinn. Með Símoni lék
þýski gítarleikarinn Jörgen Brilling,
sem hefur meðal annars komið einu
sinni til íslands.
Símon og Jörgen héldu m.a. tón-
leika í Berlín, Cuxhaven og Stuttgart
og komu fram á 50 ára afmæli Þýsk;
íslenska félagsins í Hamborg. í
Bremerhaven komu þeir fram í
Teather im Fischereihaven og
spiluðu ýmist dúetta eða einleiks-
verk. A efnisskránni voru meðal ann-
ars verk eftir Gunnar Reyni Sveins-
son og Jón Ásgeirsson, en jafnframt
átti Símon eitt verk á tónleikunum.
Gagnrýnendur Nordsee-Zeitung
lýstu Gunnari sem meistaratón-
skáldi gítarsins. Þar segir m.a. „Is-
lenska tónskáldið Gunnai’ Reynir
Sveinsson er meistari gítai’sins. I
verkinu Hommega á Django Rein-
hard og einnig í verkinu Dag skal að
kvöldi lofa vinnur hann með efni úr
blús, djassi og þjóðlögum. í verki
Símonar H. ívarssonar Danza mora
töfraði Símon fram á gítarinn fjöl-
breytileika spænsk-andalúsískrar
hefðar. Hér fékk Símon H. Ivarsson
hljóðfærið til að hljóma af glæsileika
og ástríki."
Sérvalið og unnið Kálfakjöt,
Nautakjöt, Lambakjöt,
Svínakjöt og Villibráð
Sælkera sósur, krydd og olíur
Innfluttar sælkeramatvörur
Hátíðarmatur
frá Gallerý Kjöt
Tilsögn og uppskriftir eru að sjálfsögðu á staðnum og á heimasíðunni okkar.
GRENSÁSVEGUR48.
SÍMI 553 1600/553 1601 • ww.kjot.is • FAX 568 1699.
Kofareyktur Hamborgarahryggur
Sænsk Julskinka
Svinalundir fylltar með villisveppum
Svínabógur, reyktur og nýr
Svínalæri, reykt og nýtt
Svínaflæskesteg
Hreindýramedalíur
Villigæsir
Aligæsir
Aliendur
Andabringur
Rjúpur
Graflamb
Grafin gæs
Reykt gæs
Súluungar
Heimalagað rauðkál
Sælkera gjafakörfur
INautalundir fylltar
með gæsalifur
Nauta entrecðte
Nauta ribeye
Fituofið nautainnralæri
Fituofið nautaframfillet
Heitar sósur
Bláberjasósa
Rauðvínssósa
Villisveppasósa
íþróttir á Netinu
vjg'mbUs
INNKÖLLUN
Stjórn Hraðfrystihússins Gunnvarar hfv kt. 630169-2249, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga
um hlutafélög, nr. 2/1995, hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar
skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. Rafræn skráning tekur gildi mánudaginn 5. febrúar 2001 kl.
9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við heimild í ákvæði til
bráðabirgða nr. II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000,
um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð nr.
397/2000, um rafræna eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru
öll í einum flokki, auðkennd raðnúmerum frá H-000568 og í samfelldri röð nú H-002024. Bréfin eru gefin út
á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald
þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Hraðfrystihússins Gunnvarar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn
til skrifstofu Hraðfrystihússins Gunnvarar hf. á Hnífsdalsbryggju, 410 Hnífsdal. Komi í Ijós við slíka könnun
að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan þriggja
mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar.
Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignarskrán-
ingu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköllunar þessarar. Gæta skal þess að reiknings-
stofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu Islands hf.
Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa er nafnverð hluta ákveðið ein króna eða margfeldi þar af.
Að lokinni rafrænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verð-
bréfaskráningu Islands hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tilkynningar
og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000.
Hnífsdal, 9. október 2000.
F. h. stjórnar Hraðfrystihússins Gunnvarar hf.,
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri.