Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
'1
tw*»a «o iw*Móoi«f I
Morgunblaðið/Jim Smart
Fiskur í
fragt
ÞAÐ var glatt á hjalla þegar vcrið
var að stafla frosnum fiskblokkum
á bretti á hafnarbakkanum í
Grindavík í gær. Ekki þurfti að
hafa áhyggjur af því að varan eyði-
legðist á hafnarbakkanum enda lítil
hætta á að fiskurinn þiðnaði í frost-
inu.
Breytingar
á skipastól
Samherja
SAMHERJI hf. hefur nýtt sér rétt,
samkvæmt kaupsamningi sem gerð-
ur var við færeyska útgerðarfélagið
E.M. Shipping, um að láta kaup
félagsins á nótaveiðiskipinu Jóni Sig-
urðssyni ganga til baka.
I fréttatilkynningu segir að það sé
gert samhliða því að Samherji hafl
ákveðið að hætta við að selja fjöl-
veiðiskipið Þorstein EA-810 til
þýska útgerðarfélagsins DFFU. Sú
ákvörðun hafl verið tekin samhliða
þeim breytingum sem urðu á rekstri
og eignaraðildi þýska félagsins fyrir
skemmstu.
Þorsteinn EA-810 hefur verið í
lengingu í Póllandi að undanförnu en
er væntanlegur hingað til lands í lok
janúar.
300 þúsundasti ferðamaðurinn
Metár í ferða-
þjónustunni
F.v. Tómas Þór Tómasson, markaðsstjóri Ferðamálaráðs, ferðalang-
urinn Ulrike Brieshae og ferðafélagi hennar, Hans Udo Fischer, og
Magnús Oddsson ferðamálastjóri.
Umferðar-
óhöpp í
Húnavatns-
sýslum
TVÖ umferðaróhöpp, sem
rekja má til hálku, urðu í Húna-
vatnssýslum á þriðjudaginn.
Annað slysið varð rétt aust-
an við Blönduós í svokallaðri
Ámundakinn og hitt slysið varð
í Hrútafirði. í báðum tilfellum
eyðilögðust bílar en fólk slapp
óskaddað.
Mikil hálka
á vegum
Að sögn lögreglunnar var
mjög mikil hálka á vegum og
fyllsta ástæða til að aka var-
lega. Dæmi var hins vegar um
að lögreglan hafí mælt bíl á 137
km hraða og líkti hún slíku
aksturslagi við rússneska rúll-
ettu.
ÞÝSKUR ferðalangur, Ulrike
Brieshae, reyndist vera 300 þúsund-
asti erlendi ferðamaðurinn á íslandi
árið 2000 og var heiðruð af því tilefni
við komuna til Keflavíkui-flugvallar í
gær. Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri sagði það afar gleðilegt að
svona mikill fjöldi gesta hefði sótt ís-
land heim en árið sem nú er að líða er
metár í ferðaþjónustu á íslandi þar
sem um 42.000 fleiri gestir komu til
landsins í ár en í fyrra. Spurður um
ástæður þessa sagði Magnús: „Þetta
eru ótal samverkandi þættir þar sem
fyrirtæki og einstaklingar hafa sam-
hæft sín vinnubrögð auk þess sem
stjómvöld hafa einnig komið sterkar
inn í gi-einina á undanfömum árum.
Það hafa allir unnið mjög markvisst
og skipulega að þessum árangri og
samvinna verið rneiri en oft áður,“
sagði Magnús og minnti á að mikil
umfjöllun í erlendum fjölmiðlum á
árinu hefði beint kastljósinu að Is-
landi. „Síðast en ekki síst hafa grunn-
þættir í móttöku gesta hér á landi
verið byggðir upp. Það er nefnilega
ekki nóg að byggja aðeins upp mark-
aðsvinnuna heldur verður að vera
samræmi á milli þess sem verið er að
kynna og þess sem mætir gestunum
þegar þeir koma til landsins." Magn-
ús segir árangurinn hafa orðið meiri
en gert hafði verið ráð fyrir.
„Fyrirtækin í greininni hafa í heild
sinni ekki náð þeirri arðsemi sem von-
ast var eftir. Þrátt fyrir þetta höfum
við allar forsendur til þess að vera
bjartsýn, en það má hvergi slaka á
þar sem samkeppnin í atvinnugrein-
inni er gríðarleg og það krefst agaðra
og samræmdra vinnubragða áfram
svo atvinnugreinin nái að halda sínum
hlut. Árangurinn byggist á því að
stöðugt sé haldið áfram og sífellt gert
betur.“
Einna jákvæðast segir Magnús
vera hvað ferðamenn sæki nú til Is-
lands utan hefðbundins ferðatíma. Nú
komi fólk hingað allan ársins hring en
ekki aðeins yfir hásumarið. Til marks
um þetta komi nú um 12 til 1400
ferðamenn gagngert til landsins til að
eyða hér áramótunum. „Það er mark-
aður sem var ekki til fyrir 15 árum en
verður sterkari frá ári til árs.“
Öryrkjabandalagið óskar fundar með forseta
og sendir TR kröfu um að hlíta dðmi Hæstaréttar
Eigum ekki í önn-
ur hús að venda
FRAMKVÆMDASTJÓRN Ör-
yrkjabandalags íslands samþykkti
formlega á fundisínum í gær að óska
eftir fundi með Ólafí Ragnari Gríms-
syni, forseta íslands, til að ræða við
hann um dóm Hæstaréttar í máli ör-
yrkja gegn Tryggingastofnun og við-
brögð stjórnvalda við honum. Þá
sendi lögmaður Öryrkjabandalagsins
Tryggingastofnun kröfu í gær sem
dómþola um að stofnunin fari án und-
anbragða eftir dómi Hæstaréttar.
Hjá skrifstofu forseta Islands feng-
ust þær upplýsingar síðdegis í gær að
ósk Öryrkjabandalagsins hefði borist
en tímasetning fundar hefði ekki ver-
ið ákveðin.
Garðar Sverrisson, formaður Ör-
yrkjabandalagsins, sagði við Morgun-
blaðið að öryrkjar ættu ekki lengur í
önnur hús að venda. Vonaðist hann til
þess að forsetinn gæti beitt sér til að
„koma á eðlilegum og löglegum sam-
skiptum valdþáttanna“, eins og hann
orðaði það.
„Við höfum ekki verkfallsrétt og
getum þar af leiðandi ekki stöðvað
hjól atvinnulífsins. Við getum ein-
göngu leitað til yfirvalda. Við höfum
margítrekað mótmælt þessum gjörn-
ingi, að tengja tekjur maka við bætur
öryrkja, og bent stjómvöldum á að
verið væri að brjóta á okkur lög og
mannréttindi. Það hefur að engu ver-
ið haft, þvert á móti hefur verið reynt
að gera lögleysuna að lögum landsins.
Við vorum neydd til að leita réttar
okkar fyrir dómstólum. Við höfðum
sigur í undirrétti og stjórnvöld
áfrýjuðu til Hæstaréttar. Hæstirétt-
ur féllst á allar okkar kröfur og eftir
því ber tafarlaust og undanbragða-
laust að fara. í stað þess að fara ótví-
rætt eftir þessum dómi ætlar fram-
kvæmdavaldið að skipa einhverja
nefnd. í erindisbréfí nefndarinnar
segir að kanna eigi hvað í dóminum
felist og hvaða tillögur eigi að gera í
samræmi við hann. Það er ekki hlut-
verk framkvæmdavaldsins að leggja
mat á dóm Hæstaréttar. Ótvíræðari
dómsorð var ekki hægt að hugsa sér.
Framkvæmdavaldinu er óheimilt að
skerða tekjutryggingu öryrkja vegna
tekna maka. Löggjafarvaldið getur í
framtíðinni breytt lögum landsins.
Það er löggjafans að svara því þar
sem framkvæmdavaldið hefur hvorki
löggjafar- eða dómsvald. Eftir að hafa
unnið málið í Hæstarétti stöndum við
frammi fyi-ir því að áfram á að brjóta
á okkur lög. Ef að svona alvarleg
staða á ekki erindi til æðsta embætt-
ismanns lýðveldisins þá veit ég ekki
hvað á erindi þangað. Við væntum
þess að hann geti á einhvem hátt
beitt sér til að koma á eðlilegum og
löglegum samskiptum valdþáttanna,"
sagði Garðar. Hann sagði að öryrkj-
um líkaði það verst að heyra stjóm-
völd segja að þau ætluðu sér að halda
uppteknum hætti þar til einhver
nefnd kæmist að niðurstöðu. Bíða
ætti eftir tillögum starfshóps en
Garðar sagði að starfshópur væri
þegar búinn að fjalla um málið og sá
starfshópur væri Hæstiréttur. Hann
hefði komist að niðurstöðu og þyrfti
enga aðstoð.
Ráðherrar ekki með vald til að
skipa Tryggingastofnun fyrir
Lögmaður Öryrkjabandalagsins
sendi Ti-yggingastofnun rikisins lög-
formlega kröfu í gær sem dómþola
um að stofnunin fari undanbragða-
laust eftir dómi Hæstaréttar. Garðai-
sagði að varðandi lögbrot mætti
Tryggingastofnun ekki hlýða neinum
yfirmönnum. Það væri engin vörn í
málinu.
„Ráðherrar hafa ekkert vald til að
fyrirskipa Tryggingastofnun að fram-
fylgja ekki lögum landsins eins og þau
em túlkuð af æðsta dómstóli þjóðar-
innar. Menn, sem grípa til þess ráðs
að skipa nefnd til að kanna hvað í
dómnum felist, misskilja vald sitt og
skilja ekki þau takmörk sem stjóm-
arskráin setur valdi þeirra. Þetta er
dapurlegur vitnisburður um fólk sem
skynjar ekki straum tímans. Þessi
viðbrögð verða vonandi ekki til ann-
ars en að efla réttarvitund okkar Is-
lendinga. Ljóst er að þarna eru menn
að misbeita valdi sínu mjög gróflega-
Okkar lýðræðislega stjórnskipan
byggist á þrískiptingu ríkisvaldsins.
Ef að þessi grundvallarregla er brotin
þá erum við komin út á mjög hálan ís,
svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Við
viljum gera æðsta embættismanni
þjóðarinnar grein fyrir þessu þannig
að hann hafi það frá fyrstu hendi
hvernig mál hafa gengið til frekar en
að ríkisstjórnin sé ein um það að gefa
forsetanum skýrslu," sagði Garðar.