Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 15

Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 15 FRÉTTIR Doktor í verkfræði • RAGNHEIÐUR Inga Þórarins- ddttir varði doktorsritgerð í verk- fræði við Danska tækniháskólann í Lyngby (DTU) hinn 30. ágúst sl. Andmælendur voru Ebbe Ris- lund, FORCE Instituttet í Kaupmannahöfn, Michael Berg- gren Petersen, Kriiger Aquacare og Rudolph Bium, ELSAM. Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um tæringu málma, sérlega eirmelma í súlfíðríku hitaveituvatni. Annar hlutinn lýsir niðurstöðum úr samhliða rannsókn á endingu gúmmípakkninga í súlfíðríkum hita- veitukerfum. Leiðbeinendur voru Prof. Ernst Maahn, DTU, Kate Nielsen, FORCE Instituttet, dr. Ás- björn Einarsson og Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor. Rannsóknin fór fram á tímabilinu 1997-2000. Prófuð voru mismunandi eh-melmi, eirrör samsett með mis- munandi lóðmálmum, og auk þess nokkrar gerðir gúmmípakkninga í dreifíkerfí Orkuveitu Reykjavíkur, auk mælinga í tilraunastofum. Niðurstöður tæringarmælinganna sýndu mun á tæringarhraða og myndun útfellinga milli prófunar- staða. Lítið magn uppleysts súrefnis (50 ppb) hafði marktæk áhrif til aukningar tæringarhraða eirmelma, þeim mun meiri áhrif því hæn-a sem koparinnihald efnanna var. Afsinkun mældist ekki, þar sem súrefnis- innihald var undir 50 ppb, en eftir að magn uppleysts súrefnis hafði verið tímabundið hærra (150-300 ppb) greindist afsinkun í tveimur látúns- tegundum. Niðurstöður sem sneru að gúmmí- pakkningum sýndu að NBR hentar illa sem efni í pakkningar í hitaveitu- kerfum. Harka efnisins hafði aukist marktækt og teygjanleiki minnkað eftir 24 mánaða prófun við 80°C og eftir rúmlega 7 mánaða prófun við 125°C. Lítið magn uppleysts súr- efnis í umhverfi pakkningar hafði mikil áhrif á NBR, sem missti nán- ast allan togstyrk og teygjanleika. HNBR reyndist betur, en marktækt aukin harka var mæld eftir 24 mán- uði við 80°C og enn meiri aukning eftir 7 mánuði við 125°C. EPDM reyndist best og engin breyting mældist í eiginleikum efnisins. Bókhaldskerfi KERFISÞRÓUN HF. FÁKAFENI 11. s. 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/ Verkefnið er unnið við Danska tækniháskólann, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins og Iðntækni- stofnun Islands, í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur og Danfoss A/S í Silkeborg í Danmörku og með styrk frá Norrænu orkurannsóknar- áætluninni og Rannís. Ragnheiður er fædd 17. október 1968, dóttir Hildar Bernhöft, full- trúa við danska sendiráðið í Reykja- vík, og Þórarins E. Sveinssonar, for- stöðulæknis krabbameinslækn- ingadeildar Landspítalans við Hringbraut. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1987 og M.Sc. í efnaverkfræði frá Danska tækniháskólanum 1993. Ragnheiður starfaði sem verkefnis- stjóri á Iðntæknistofnun Islands 1994-1999 og starfar nú sem deild- arstjóri lagnadeildar Rann- sóknastofnunar byggingariðnaðar- ins. Eiginmaður Ragnheiðar er Ólafur Pétur Pálsson, Ph.D., dósent við verkfræðideild Háskóla Islands. Þau eiga þrjár dætur, Helgu Krist- ínu, Hildi Þóru og Katrínu Unni. Doktorspróf í fólagsfræði • ÞÓRODDUR Bjarnason lauk doktorsprófí í félagsfræði frá Notre Dame-háskóla í Bandaríkjunum 6. ágúst sl. Doktorsritgerð hans nefn- ist Vímuefnaneysla ungmenna: Félagsfræði að hætti Durkheim og byggist hún á samanburðarrann- sókn Þórodds meðal unglinga á Is- landi, írlandi og Bretlandi. I ritgerðinni er hugað að neyslu unglinga á lögleg- umjafntsem ólöglegum vímu- efnum og tengslum við þætti á borð við félagslega stöðu, fjölskyldu- mynstur, samskipti við foreldra og vini, námsárangur og andlega líðan. Jafnframt eru metin áhrif einstakra skóla sem félagslegra heilda á mynstur vímuefnaneyslu meðal nemenda þeirra. Foreldrar Þórodds eru Bjarni Hannesson læknir og Þorbjörg Þór- oddsdóttir kennari. Börn Þórodds og Dýrleifar Bjarnadóttur eru Val- gerður (f. 1989) og Bjarni (f. 1990). Þóroddur lauk stúdentsprófí frá Flensborgarskóla vorið 1986, BA- prófi í félagsfræði frá Háskóla ís- lands vorið 1992, og meistaraprófí í aðferðafræði frá Essex-háskóla á Englandi sumarið 1995. Hann starf- aði sem útvarpsstjóri Útvarps Rótar 1987-88, deildarstjóri við Rannsókn- arstofnun uppeldis- og menntamála 1992-1994 og framkvæmdastjóri Norræna sakfræðiráðsins 1995- 1996. Þóroddur er nýráðinn lektor í félagsfræði við Háskóla New York- fylkis í Bandaríkjunum jafnframt því sem hann leggur stund á rann- sóknir meðal íslenskra og evrópskra ungmenna í samstarfi við rannsókn- armiðstöðina Rannsóknir og grein- ingu í Reykjavík. Þóroddur Bjarnason 55 milljónir dregnar At I gsr! Seinni útdráttur 12. flokks 2000 13487F 13487H 800 6611 Hringdu núna og tryggðu þér miða! Allar tölur eru birtar meö fyrirvara um prentvillur. 670B 25232B 1435B 28577B 4140B 32078H 4661B 49101F 21992B 54722F §► HAPPDRÆTTI J) HÁSKÓLA ÍSLANDS 7 frw vænlegast til vinnings

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.