Morgunblaðið - 28.12.2000, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Sala á flugeldum fyrir áramótin hefst í dag
Aldrei of varlega
farið með sprengiefni
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í gær unnu menn að því að verðmerkja flugelda í versluninni Ellingsen, sem er einn 24 aðila
sem leyfí hafa til að selja flugelda í umdæmi Lögreglustjórans í Reykjavík.
Vesturbær
ALLS hafa 24 aðilar leyfi til
að selja flugelda í umdæmi
Lögreglustjórans í Reykjavík
fyrir þessi áramót, en um-
dæmið nær yfir Reykjavík,
Seltjarnarnes, Mosfellsbæ,
Kjalarnes og Kjós. Sölustað-
irnir eru um 50 talsins og einn
þeirra er verslunin Ellingsen,
sem einna lengst hefur selt
landsmönnum flugelda, eða
allt frá því snemma á þriðja
áratug 20. aldar.
„Flugeldarnir og kökurnar
sem við erum með eru frá
Kína og Þýskalandi. Og svo
erum við með blys úr Garða-
bæ; þau eru með tréhandfangi
svo það er allt í lagi að halda á
þeim. Við höfum selt þau allt
frá árinu 1957, og raunai’
einnig flugelda þaðan lengi
vel,“ sagði Ragnar Engil-
bertsson, þegar Morgunblað-
ið leit þar inn og spurði hvað-
an flugeldarnir og önnur
sprengivara þar væri fengin.
Er eitthvacf um nýjungar á
flugeldamarkaðinum þetta ár-
ið?
„Það kemur alltaf eitthvað
nýtt á hverju ári af kökum og
rakettum, og það er eins
núna.“
En fjölskyldupakkarnir?
„Þeir eru svipaðir og verið
hafa undanfarin ár. Þeir eru
fernskonar og kosta 2.000,
3.000, 5.000 og 7.000 krónur.
Við vorum með eina stærð í
viðbót í fyrra, minnstu gerð,
en tókum þann pakka út núna,
enda var hann ekkert sérstak-
iega vinsæll."
Er eitthvað sem fólk þarf
að huga sérstaklega að, þegar
kemur að því að leggja eld að
þessu púðurdóti öllu?
„Já, að muna að það er aldr-
ei of varlega farið, þegar
sprengiefni er annars vegar.
Þetta er vara sem þarf að um-
gangast með ákveðinni virð-
ingu og mikilli gát, sama
hvort um litla eða stóra hluti
er að ræða,“ sagði Ragnar að
lokum.
Óánægja vegna þriggja alvar-
legra atvika á Reykjakoti
„Vítavert
kæruleysi“
Mosfellsbær
NOKKRIR foreldrar barna á
leikskólanum Reykjakoti í
Mosfellsbæ eru harðorðir í
garð leikskólastjóra og
starfsmanna, m.a. vegna til-
tekins atviks, þegar leik-
skólastjóri ók með hóp barna
á opnum pallbfl sínum frá
Reykjakoti að íþróttahúsi
Mosfellsbæjar. Það mál hef-
ur verið kært til lögreglu.
Hafa foreldrarnir farið þess
á leit við bæjaryfirvöld að
þau kanni það atvik nánar
og að auki tvö önnur, en öll
þrjú munu hafa gerst á tíma-
bilinu september-desember
árið 2000. Þetta kemur fram
í bréfi sem foreldrarnir rit-
uðu 14. desember síðastlið-
inn og sem tekið var fyrir á
bæjarstjórnarfundi 20. des-
ember. Var samþykkt með
þremur atkvæðum að óska
eftir greinargerð forstöðu-
manns fræðslu- og menning-
arsviðs um málið. Um atvikið
á pallbflnum segir í bréfi for-
eldranna, að akstursleiðin
hafi verið eftir hrjúfum og
holóttum malarvegi sem
allajafna sé mjög laus í sér
og sé ein brött brekka á leið-
inni. Auk þess hafi verið að
hluta til ekið eftri Vest-
urlandsvegi og um hring-
torg, sem sé eitt hættuleg-
asta hringtorgið á
Vesturlandsveginum. Segja
þeir „vftavert kæruleysi að
láta fimm ára börn aftan á
pall þar sem lítið sem ekkert
er til að halda sér í og eru
þau gjörsamlega óvarin ef
eitthvað kemur uppá“.
Benda þeir á, að fyrir tveim-
ur árum hafi orðið banaslys,
þegar unglingur kastaðist til
á palli aftan á svipuðum bfl.
Annað hinna atvikanna
tveggja varðar starfsmann
leikskólans, sem fór með tíu
5 ára ganda drengi í göngu-
ferð og „var töluvert á und-
an hópnum", eins og segir í
bréfinu. Mun einn drengj-
anna hafa hlaupið út á götu
og næstum því orðið fyrir
bfl. Er snarræði bflstjórans
þakkað að ekki hlaust slys
af.
Þriðja atvikið varðar átta
stúlkur á aldrinum 4-5 ára,
sem voru sendar í gönguferð
kringum Reykjakot. „Þær
gengu einar meðfram
Reykjavegi sem er umferð-
argata og strætisvagnaleið
og einnig upp með Dælu-
stöðvarvegi. Enginn starfs-
maður gekk með stúlkunum
heldur var fylgst með þeim
úr fjarlægð." Að mati for-
eldranna hefði enginn starfs-
manna getað gripið inn í, ef
eitthvert stúlkubarnanna
hefði hlaupið út á götu. Yfir
þessu atviki var kvartað
formlega til skólayfirvalda
Mosfellsbæjar, sem komust
að þeirri niðurstöðu að við
það væri ekkert að athuga.
Deiliskipulag við
Skógarhlíð fellt úr gildi
Hlíðar
ÚRSKURÐARNEFND
skipulags- og byggingarmála
hefur fellt úr gildi samþykki
borgarráðs Reykjavíkur á
deiliskipulagi fyrir Skógarhlíð
12, þar sem gert var ráð fyrir
byggingu 5 hæða verslunar-
og skrifstofuhúss með bfla-
geymslu.
Isarni hf. hafði verið veitt
leyfi í borgarráði í júh' sl. til að
byggja þetta hús á lóðinni,
sem er í Skógarhlíð andspænis
slökkvistöðinni, en fyrirtækið
hafði upphaflega fengið vilyrði
fyrir lóðinni árið 1990. Það lét
vinna drög að byggingum þar
árið 1994, og voru þau sam-
þykkt í meginatriðum af
skipulagsnefnd í svipuðu
formi og var á því deiliskipu-
lagi sem nú hefur verið ógilt.
Ekki var hins vegar sótt um
leyfi til að hefja uppbyggingu
á lóðinni fyrr en 1999 og í júní
það ár var samþykkt að aug-
lýsa tillögu að deiliskipulagi,
sem gerði ráð fyrir 5 hæða
húsi og bílageymslum.
Skipulagsyfirvöldum barst
fjöldi bréfa og undirskriftar-
listar frá á þriðja hundrað íbúa
og hagsmunaaðila í nágrenn-
inu, einkum við Eskihlíð, með
athugasemdum við og mót-
mælum gegn byggingar-
áformunum. Skipulags- og
umferðarnefnd borgarinnar
frestaði þá meðferð málsins og
hélt fund með kvartendum þar
sem kynntar voru breytingar
á tillögunni, sem gerðar höfðu
verið til þess að koma til móts
við athugasemdirnar. íbúar
gerðu frekari athugasemdii’
og var borgarverkfræðingi
m.a. í kjölfar þess falið að
kanna hljóðstig og umferðar-
magn við húsið og einhverjar
breytingar voru gerðar á aug-
lýstum áformum en að því
loknu samþykkti borgarráð
tillöguna sem deiliskipulag í
desember sl. án þess að aug-
lýsa hana eftir breytingar.
Skipulagsstofnun taldi í
fyrstu að ekki hefðu komið
fram fullnægjandi svör við
framkomnum athugasemdum
og lagðist gegn birtingu aug-
lýsingar um gildistöku deili-
skipulagsins en féllst á hana
eftir aðra afgr’eiðslu borgar-
innar en gerði þó þá athuga-
semd að deiliskipulag skyldi
að jafnaði ekki taka yfir minna
svæði en götureit en umrædd
tillaga tók aðeins yfir eina lóð,
á svæði þar sem ekkert deili-
skipulag var fyrir í gildi.
Ibúar við Eskihlíð kærðu
staðfestingu deiliskipulagsins
til úrskurðarnefndar skipu-
lags- og byggingarmála og
byggðu mál sitt m.a. á því að
málsmeðferð við undirbúning
ákvörðunar borgarinnar hafi
verið áfátt, auk þess sem ann-
mai’kar væru á efni málsins.
Töldu samráð
ófullnægjandi
Hvað varðar fyrra atriðið
var því haldið fram að ekki
hafi verið haft fullnægjandi
samráð við nágranna um gerð
skipulagsins og ákvæða skipu-
lagsreglugerðar ekki gætt í
því sambandi. Þá hafi ekki
verið farið að ábendingu
Skipulagsstofnunar um að
auglýsa tillöguna að nýju eftir
þær breytingar sem á henni
urðu, auk þess sem svör við at-
hugasemdum hafi verið ófull-
nægjandi. Þá hafi rannsóknir
á áhrifum byggingarinnar á
umferð og loft- og hljóðmeng-
un, af völdum aukinnar um-
ferðar, verið ófullnægjandi.
Þá bentu kærendur á ýmis
atriði, sem lutu einkum að
stærð, umfangi og hæð húss-
ins, en þeir töldu engin rök
standa til þess að nauðsynlegt
væri að reisa svo háa bygg-
ingu í því viðkvæma umhverfi
sem um sé að ræða. Miðað við
aðalskipulag sé nýtingarhlut-
fall yfir efri mörkum og bygg-
ingin varpi skugga á eignir
sumra kærenda og geti rýrt
verðmæti þeirra. Þá valdi auk-
in umferð sem fylgi bygging-
unni slysahættu og torveldi
gangandi umferð á svæðinu.
Eins sé ekki nægilega Ijóst
hvers konar starfsemi verði í
húsinu og nauðsynlegt sé að
skilgi’eina notkun þess betur
en gert hafi verið í deiliskipu-
laginu.
Borgaryfirvöld höfnuðu því
að málsmeðferð hafi verið
áfátt og töldu að samráð hafi
verið haft við íbúa umfram það
sem lögskylt er. Þá hafi ekki
verið skylt að auglýsa tillög-
una að nýju vegna þeirra
óverulegu breytinga sem á
henni voru gerðar í meðförum.
í ljósi athugunar á áhrifum
byggingarinnar á nánasta um-
hverfi, m.a. hvað varðar
minnkun hávaða og óveruleg
áhrif skuggavarps, verði að
telja að byggingin hafi ekki
áhrif á fasteignaverð á svæð-
inu. Komi hið gagnstæða í ljós
eigi þeir sem fyrir slíku verða
hins vegar rétt á greiðslu bóta
eða þá að borgaryfirvöld leysi
til sín eignir þeirra. Þá hafi
það verið talið hagstæðara
fyi-ir íbúa fjölbýlishúsa við
Eskihlíð að hafa húsið langt,
grunnt og fremur hátt fremur
en lægra og meira um sig enda
taki það þannig minna útsýni
af íbúum fjölbýlishúsanna og
skerðing útsýnis sé svipuð, séð
frá efri og neðri hæðum. Stað-
setning og fjarlægð hússins
varpi ekki skugga á lóðir við
Eskihlíð nema ef til vill um há-
vetur.
Skipuleggja eina
lóð eða heilan reit
Byggingarleyfishafinn hafði
vefengt að úrskurðamefnd
væri til þess bær að fjalla um
hvort rétt hefði verið að deili-
skipuleggja eingöngu lóð
hússins en ekki allan götureit-
inn en í niðurstöðu úrskurðar-
nefndarinnar er því hafnað og
sagt að hún sé æðra stjórnvald
sem hafi það hlutverk að skera
úr um lögmæti ákvarðana,
sem til hennar er skotið. Um
málsmeðferð fyiir nefndinni
gildi ekki málsforræðisregla
dómstólaréttarfars og sé
nefndin ekki bundin af kröfu-
gerð og málsástæðum kær-
enda heldur beri henni að leið-
beina ólögfróðum kærendum
og fylla og skýra kröfugerð
þeirra ef þörf krefur, auk þess
sem deiliskipulagið hafi m.a.
verið kært á grundvelli brota á
skipulagsgreglugerð og með
vísan til þessa verði að telja að
nefndinni beri að taka til úr-
lausnar hvort heimilt hafi ver-
ið að takmarka hið umdeilda
deiliskipulag við eina lóð svo
sem gert var. Með lögum sé
mörkuð sú meginstefna, að
deiliskipulag skuli að jafnaði
taka til svæða sem myndi
heildstæða einingu og að jafn-
aði ekki til minna svæðis en
götureits.
„í máli því sem hér er til
meðferðar ákváðu borgaryfir-
völd að vinna deiliskipulag fyr-
ir eina lóð á athafnasvæði þar
sem ekki var í gildi deiliskipu-
lag. Var þessi ákvörðun tekin
þrátt fyrir að ítrekað hefði
komið fram það álit Skipulags-
stofnunar að aðstæður á svæð-
inu og nálægð þess við
slökkvistöð ættu að leiða til
þess að tekið væri á skipulags-
málum svæðisins með heild-
stæðari hætti. Allar athuganir
á áhrifum skipulagsgerðarinn-
ar voru miðaðar við þá bygg-
ingu eina, sem fyrii’huguð var
á umræddri lóð. Þó bera gögn
málsins það með sér að vænta
megi frekari uppbyggingar á
svæðinu, a.m.k. á lóðunum nr.
8 og 10 við Skógarhlíð, auk
þess sem nokkurt svæði er
vestast á landnotkunarreitn-
um, sem ekki hefur verið ráð-
stafað til framtíðamota svo
séð verði.
Ljóst er af þeim aðstæðum
sem nú var lýst að við gerð
deiliskipulags fyrir lóðina nr.
12 við Skógarhlíð var ekki tek-
ið tillit til þein-a gi-undvallar-
sjónanniða sem líta ber til við
skipulagsgerð. Voru mörk
skipulagssvæðisins ekki mið-
uð við það svæði sem augljós-
lega myndar heildstæða ein-
ingu í umræddu tilviki, en
svæðið er í senn götureitur og
sérgreindur landnotkunar-
reitur. Af þessu leiddi að ekki
var gætt að heildaráhrifum
enduruppbyggingar á svæð-
inu á umferð, öryggi vegfar-
enda, loftmengun og hljóðvist,
svo dæmi séu nefnd. Ekki
verður heldur séð að gerð hafi
verið athugun á hagsmunum
annarra lóðarhafa á svæðinu
með tilliti til jafnræðis og
mögulegrar nýtingar ein-
stakra lóða. Fólst í hinu um-
deilda deiliskipulagi lítið ann-
að en það sem fram hefði
komið á aðaluppdráttum við
hönnun mannvirkja á lóðinni
og er vandséð hvaða skipu-
lagsforsendur borgaiyfirvöld
höfðu að leiðarljósi við ákvai’ð-
anir sínar í málinu. Að vísu var
hugað að áhrifum byggingai’-
innar á næsta nágrenni, eink-
um með tilliti til aukinnar um-
ferðar. Leiddi sú athugun til
þess að byggingunni myndi
fylgja umferðarvandi á gatna-
mótum Bústaðavegar og
Flugvallarvegar. Hefði í deili-
skipulaginu þurft að gera
grein fyrir því hvernig úr þeim
vanda yrði leyst. Þess í stað
var ákveðið að fela sérft’æð-
ingi að gera tillögur til úrbóta
án þess að fyrir lægi á hvaða
forsendum þær tillögur yi’ðu
gerðar eða hvort þær yfirhöf-
uð gætu falið í sér lausn á fyr-
irsjáanlegum vanda. Var því,
að mati úrskurðarnefndarinn-
ar, ekki einu sinni tekið á full-
nægjandi hátt á þeim þáttum
sem með beinum hætti tengj-
ast því skipulagi, sem sam-
þykkt var,“ segir í niðurstöð-
unum og að samkvæmt því
hafi skort lagaskilyrði til að
gera deiliskipulag fyrir lóðina
nr. 12 við Skógarhlíð án þess
að jafnhliða væri unnið og
samþykkt deiliskipulag fyiir
götureitinn í heild. Beri því að
fella hina kærðu ákvörðun úr
gildi.