Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Kaup- og þjónustusamningur milli Akureyrarbæjar og Hugfangs
Bærinn kaupir 530 ritþjálfa
að andvirði um 13 milljónir
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, og Viðar Ágústsson,
framkvæmdastjóri Hugfangs, handsala samning um kaup bæjarins á
530 ritþjálfum, en þeir verða notaðir í grunnskólum bæjarins.
VIÐAR Ágústsson, framkvæmda-
stjóri Hugfangs, og Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Ákureyri,
undirrituðu í gær kaup- og þjónustu-
samning sem felur í sé stórfellda
fjölgun ritþjálfa í grunnskólum bæj-
arins. Samningurinn er að upphæð
ríflega 13 milljónir króna en alls
verða nú keyptir 530 ritþjálfar. Fyrir
eru í grunnskólum bæjarins 105 rit-
þjálfar þannig að þeir verða alls 635 í
upphafi vorannar.
Viðar sagði að um tímamótasamn-
ing væri að ræða, bæði fyrir Akur-
eyrarbæ og fyrirtækið. Nemendur
grunnskólanna á Akureyri myndu
nú strax frá fyrsta bekk fá tækifæri
til að kynnast töluvtækninni, en rit-
þjálfarnir verða til taks í skólastof-
um og hvað Hugfang varðar sagði
Viðar að fyrirtækið nyti með þessum
samningi staðfestingar á því að hug-
myndir höfunda tækisins sem fædd-
ist fyrir fimm árum hefði skapað sér
fastan sess í íslensku grunnskólalífi.
Stórt skref
í tölvuvæðingu
í samningnum felst einnig þjálfun
kennara í notkun ritþjálfa, sameig-
inleg kennsla fyrir kennara og nem-
endur og eftirlit með notkun tækj-
anna á vorönn.
Ritþjálfi er ah'slensk kennslutölva
sem kennir grunnatriði í upplýsinga-
tækni, fingrasetningu og textaritun
auk þess sem unnt er að leggja fyrir
nemendur verkefni úr fjölmörgum
bóklegum greinum. Ritþjálfi hefur
verið í notkun í gi-unnskólum bæj-
arins síðastliðin fjögur ár. Reynslan
hefur þótt góð og rekstrarkostnaður
lágur og hefur það leitt til þess tækj-
unum hefur smám saman fjölgað.
Skólamir hafa keypt slík tæki og þá
hafa foreldrar sýnt því áhuga og gef-
ið skólunum þau í einhverjum mæli.
„Við erum með þessu að stíga
býsna stórt skerf í tölvuvæðingu
grunnskólanna og með kaupum á rit-
þjálfunum munum við ná mun betri
nýtingu á tölvubúnaði grunnskól-
anna,“ sagði Gunnar Gíslason, for-
stöðumaður skóladeildar Akureyrar.
Áætlað er að bæta einnig mjög úr
tölvueign grunnskóla bæjarins og er
áformað að kaupa 80 nýjar tölvur í
skólana á næsta ári. I kjölfarið verða
tölvur notaðar mun meira en áður í
skólastarfi og sagði Gunnar að þetta
væri liður í því að færa skólastarf
meira frá bókum yfir í tölvur.
I fremstu röð
Við undirritun samninganna kom
einnig fram að með þeim skipaði Ak-
ureyrarbær sér í fremstu röð hvað
varðar innleiðingu upplýsingatækni í
almenna kennslu. Ritþjálfamir
verða notaðir til að kenna ritgerð-
arsmíð með aðferðum ferlisritunar
og auðvelda kennurum að gefa leið-
beiningar með skjalaskiptum í sér-
smíðuðu PC-forriti. Áðstaða til
kynningar á lyklaborði tövlunnar og
kennslu réttrar fingrasetningar
batnar til muna sem og einnig mögu-
leikar kennara á að fylgjast með
framförum nemenda og finna þá
nemendur sem þurfa einstaklings-
bundna aðstoð. Nemendur hafa með
þessu tæki aðgang að miklum fjölda
verkefna sem þeir fá samstundis að
vita hvort rétt hafi verið af hendi
leyst og einnig hafa kennarar mögu-
leika á að semja eigin verkefni á rit-
þjálfa.
Grímseyj-
arbörnin
birtuna
bera
Grímseyjarbömin birtuna bera
jólin þau minna á
megi þau vera
gleðileg öllum hér
það okkar óskin er
Santa Lúsía - Santa Lúsía.
Þetta sungu skólabörnin í
Grunnskólanum í Grímsey á
Lúsíufagnaði sem haldinn var
í 7. sinn. Já, sannarlega minn-
ir Lúsíuhátið skólabarnanna á
að jólin eru á næsta leiti.
I þetta sinn buðu börnin
foreldrum og ættingjum upp á
heitt súkkulaði og smákökur
sem þau höfðu bakað i heim-
ilisfræðinni. Vel var mætt
enda nánast enginn bátur á
sjó. Jólasnjórinn hefur látið
sjá sig eftir einmuna góða tíð
og nú keppast allir við að
skreyta húsin með jólaijósum
af öllum stærðum og gerðum.
Sönn jólastemmning ríkir hjá
okkur hér við nyrsta haf.
Aldarafmæl-
is Flóru Is-
lands minnst
Ályktun Jafnréttisráðs
Ný fæðing-
ar- og
foreldra-
orlofslög
JAFNRÉTTISRÁÐ Akureyi-ar
fjallaði nýverið á fundi sínum um
nýju fæðingar- og foreldraorlofs-
lögin og gildistöku þeirra frá og
með næstu áramótum. Jafnréttis-
ráð vill af því tilefni koma á fram-
færi hvatningu til allra verðandi
foreldra að kynna sér þessa nýju
löggjöf þar sem nú er gert ráð fyr-
ir því að foreldrar geri áætlanir
um töku orlofsins með 6 vikna fyr-
irvara.
Feður verði samtaka
Mikilvægt er að verðandi feður
verði samtaka í því að nýta sér
rétt sinn til 1 mánaðar fæðing-
arorlofs frá 1. janúar 2001.
Mikilvægt er einnig að fyrir-
tæki, ríki og sveitarfélög búi sig
undir breytt starfsumhverfi starfs-
manna sinna og taki óskum þeirra
um skipulagningu fæðingarorlofs-
ins vel.
Færðu
FSA gjör-
gæslutæki
að gjöf
KVENFÉLAGIÐ Hlíf færði
barnadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri fullkömið
gjörgæslutæki að gjöf er deild-
in var opnuð í nýju húsnæði 8.
desember sl.
Verðmæti tækisins er um 5
milljónir króna en ágóði af
styrktartónleikum félagsins
auk fjölda fjárstuðninga gerði
félaginu kleift að afla fjár til
kaupa tækisins.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Mikið fjör var í Skautahöllinni á Akureyri í gærdag enda höfðu margir drifið sig til að fara á skauta.
Margt í Skautahöllinni
MARGT var um manninn í Skautahöllinni á Akureyri
í gær enda tilvalið að hressa sig við eftir hátíðina og
renna sér á skautum. Einhverjir hafa vafalítið verið
að reyna nýju skautana sem þeir fengu í jólagjöf en
aðrir voru mættir hreyfíngarinnar vegna.
Fjöldi fólks á öllum aldri sást renna sér á svellinu
og var ekki annað að sjá en það skemmti sér hið
besta.
HUNDRAÐ ár eru í dag, 28. des-
ember, liðin frá því að Stefán Stef-
ánsson grasafræðingur og skóla-
meistari gaf út fyrstu útgáfu af
Flóru Islands.
Formálinn er undirritaður á
Möðruvöllum í Hörgárdal 28. des-
ember 1900. Útgáfa þessarar bók-
ar var mikið vísindalegt afrek en
þar var í fyrsta sinn á íslenskri
tungu gefið yfirlit um hágróður
landsins en jafnframt því að vera
vísindarit var Flóra Islands alþýð-
legt rit sem opnaði almenningi sýn
í leyndardóma gróðurfars á Is-
landi.
Athöfn á sal Menntaskólans
Þessa merka viðburðar í vísinda-
sögu landsins verður minnst lít-
illega á sal gamla Menntaskólans á
Akureyri kl. 16 í dag og eru allir
áhugamenn velkomnir.
Stefán gegndi kennaraembætti
við Möðruvallaskóla er hann samdi
Flóruna en varð síðar skólameist-
ari Menntaskólans á Akureyri.
Að viðburðinum standa Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins,
Náttúrufræðistofnun íslands, Hið
íslenska náttúrufræðifélag og
Menntaskólinn á Akureyri.
------♦_+-«-----
Nýárstrimm
í Kjarna-
skógi
SKÓGRÆKTARFÉLAG Eyilrð-
inga gengst fyrir nýárstrimmi í
Kjarnaskógi á nýársdag en þetta er í
20. skipti sem félagið efnir til þess.
Þátttaka hefur yfirleitt verið góð
þrátt fyrir að veður hafi í áranna rás
verið misjafnt. Síðast skráðu sig um
300 manns í gestabók félagsins, sem
liggur frammi í Kjarnakoti.
Upplýstar göngubrautir í Kjarna-
skógi eru um 5 km og fjöldi skóg-
arstíga liggur um skóginn. Leiktæk-
in og leikvellirnir eru einnig að
sjálfsögðu opnir á nýársdag eins og
aðra daga.
Hvetja forsvarsmenn Skógrækt-
arfélags Eyfirðinga fólk til að fjöl-
menna í Kjamaskóg á nýársdag og
hefja árið með hollri útivist í fögru
umhverfí.