Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
, Verðbréfareikningur
Islandsbanka
---■---- ■
V V. ■■ ■
Tilkynning
til viðskip tavina
Vegna breytinga við framkvæmd á útboði ríkisvíxla
mun vaxtagrunnur Verðbréfareiknings íslands-
banka breytast frá 1. janúar 2001. Vextir reiknings-
ins hafa til þessa tekið mið af þriggja mánaða
ávöxtun ríkisvíxla á eftirmarkaði en útboð þeirra
hafa nú verið felld niður. Frá áramótum mun
ávöxtunin taka mið af þriggja mánaða innlánsvöxt-
um á millibankamarkaði (Reibid) eins og þeir eru
að meðaltali í hverjum mánuði að frádregnum 50
punktum (0,50 prósentustigum).
Ofangreind breyting á viðmiði hefur engin áhrif
á það að Verðbréfareikningur íslandsbanka er
góður kostur fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem
ekki vilja binda fjármuni sína en njóta samt sem
áður hámarksávöxtunar með lágmarksáhættu.
Breytingar á kjörum eru háðar ákvörðun bankans
hverju sinni.
ISLAN DSBAN Kl
- hluti af Íslandsbanka-FBA
ÚRVERINU
Skötuveizla um borð
AÐ UNDIRLAGI kokksins Garðars Gunnarssonar
var ákveðið að halda heljar skötuveizlu um borð, við
komu úr siðustu veiðiferð fyrir þessi jól.
Þar sem Harðbakur, togari IJA, kom heim rétt, fyr-
ir hádegi þann 23. des. var allt undirbúið fyrir síð-
ustu veiðiferð og svo er Harðbakur lagðist að
bryggju var mökum og börnum og nokkrum stjórn-
endum ÚA boðið að koma og snæða við þær að-
stæður sem sjómenn snæða daglega. Var þessu uppá-
tæki kokksins vel tekið af öllum og þakkarvert hjá
einhverjum að losna við ilminn (!) af skötunni af
heimilinu.
Morgunblaðið/Böðvar Eggertsson
Töluverður Qöldi fólks smakkaði á skötunni um borð í Harðbaki á Þorláksmessu.
Veður og færð á Netinu
^mbl.is
f-------------------------------------\
Hf. Eimskipafélag íslands
Hlutafjársala
Hf. Eimskipafélag íslands hefur ákveðið að bjóða hluthöfum til kaups eigin bréf
félagsins. Tekið er fram að hér er ekki um hlutafjárhækkun að ræða heldur sölu
á eigin bréfum. Salan fer fram dagana 20.- 29. desember.
Fjárhæð hlutabréfa
Nafnverð hlutabréfanna er 61.158.104 kr. sem er um 2% hlutur í félaginu, og
bjóðast þau á genginu 7,1.
Fyrírkomulag og skilmálar sölu
Hluthöfum er heimilt að skrá sig fyrir hærri fjárhæð en þeir eiga hLutfallslegan rétt
á. Nýti hluthafi ekki rétt sinn til kaupa að fullu, þá skiptast eftirstöðvar miLLi
hluthafa, sem hafa skráð sig fyrir hærri fjárhæð, í htutfalli við eignarhlut þeirra.
Verði eftirspurn eftir hlutafé meiri en það hlutafé sem tit sölu er, verður sala til
hluthafa skert hlutfallslega. Ef eftirspurn eftir hlutafé verður minni en það hlutafé
sem til sölu er, mun félagið bjóða einum eða fleirum aðilum það tiL sölu án þess
að bjóða hluthöfum forkaupsrétt að nýju.
Áskriftarblöð verða send til hluthafa. Einnig er mögulegt að fylla út áskriftarblað
á heimasíðu félagsins www.eimskip.is. ÚtfyLltum áskriftarbLöðum skat skilað tiL
fjárreiðudeildar Hf. EimskipaféLags íslands, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík,
myndsími 525 7009, fyrir kL. 17:00 þann 29. desember n.k. Hluthöfum verður
sendur gíróseðill fyrir keyptum hLutum að forgangsréttartímabili loknu, en hann
þarf að greiða eigi síðar en 2. febrúar 2001.
Nánari uppLýsingar og aðstoð við skráningu eru veittar
af hlutahafaskrá Hf. Eimskipafélags íslands í síma 525 7188.
EIMSKIP
S_____________________J
Aukinn afli hjá frystitog'aranum
Júlíusi Geirmundssyni ÍS
Verðmætið um 943
milljónir á árinu
JÚLÍUS Geirmundsson, ftystiskip
Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf.,
kom til Isafjarðar á gamlársdag með
ríflega 90 milljóna króna ailaverð-
mæti, en þetta var síðasta veiðiferð
ársins. Samtals aflaði skipið fyrir um
943 milljónir króna á árinu og er það
mesta aflaverðmæti þess á einu ári
fráupphafi.
Um 13% grálúðukvótans
Aflaverðmæti Júlíusar Geir-
mundssonar í fyrra var um 725 millj-
ónir króna og segir Einar Valur
Kristjánsson, framkvæmdastjóri
Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf., að
verðmætisaukninguna milli ára
megi fyrst og fremst rekja til meiri
veiðiheimilda. Þorskur var uppi-
staða aflans en eins veiddist mjög
mikið af grálúðu. „Á fiskveiðiárinu
fiskaði hann 1.200 til 1.300 tonn af
grálúðu eða um 13% af heildarkvót-
anum,“ segir Einar Valur, en fyrir
síðustu löndun hafði Júlíus komið
með tæplega 2.000 tonn af þorski á
árinu.
„Það hefur gengið mjög vel á
árinu,“ segir hann. „Tíðin hefur ver-
ið mjög erfið undanfarnar vikur og
skyndilokanir hafa sett strik í reikn-
inginn, stórum svæðum hefur verið
lokað, en annars hefur gengið mjög
vel.“ I áhöfn eru 25 manns en Gunn-
ar Árnason og Ómar Ellertsson eru
skipstjórar til skiptis.
Tekist á
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
NORSKIR hvalveiðimenn og græn-
friðungar deila nú enn einu sinni hart
um hvort leyfa eigi sölu á hvalspiki,
sem safnast hefur fyrir í Noregi. Þeir
fyrmefndu vilja fá leyfi til að selja
um 600 tonn af spiki af tegundum
sem leyft er að veiða en grænfrið-
ungar fullyrða að það muni ýta undir
veiðar á tegundum í útrýmingar-
hættu.
Alls hafa 130 sveitarfélög í Noregi
nú krafist þess að fá leyfi til að selja
hvalspikið en markaður fyrir það er
einkum í Japan. Samtök grænfrið-
unga á Norðurlöndum sendu hins
vegar frá sér fréttatilkynningu þar
sem segir að slíkt muni auka veiðar
og sölu á tegundum sem ekki sé leyfi-
legt að veiða og þar með tegundum í
útrýmingarhættu. „Ekki þarf að leita
langt til að sjá að erfitt er að stöðva
smygl á mat og drykkjarvöru ef eft-
um spik
irspurn er fyrir hendi,“ segir í til-
kynningu grænfriðunga.
Þeir létu nýlega framkvæma skoð-
anakönnun í Noregi þar sem fram
kemur að 42% þjóðarinnar eru ósam-
mála grænfriðungum um að lögleg
sala á hval og hvalaafurðum leiði til
ólöglegra veiða og sölu. Tæplega
þriðjungur er sammála grænfriðung-
um.
Hánorðursamtökin, sem eru sam-
tök íbúa á norðurslóð, einkum jieirra
sem hafa lifibrauð sitt af sjávarút-
vegi, gagmýna þessa könnun græn-
friðunga þar sem þeir segja að spurt
hafi verið leiðandi spurninga. Minna
samtökin á að tekin séu DNA-sýni úr
hverjum einasta veiddum hval til að
koma í veg fyrir ólöglega sölu. Þá
takast grænfriðungar og samtökin á
um hve mikið magn eiturefna, svo
sem díoxíns, sé að finna í hvalkjöti.