Morgunblaðið - 28.12.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 31
ERLENT
Harmi slegnir ættingjar fórnarlamba eldsvoðans. Beðið eftir björgun.
Mörg hundruð manns létu lífíð í bruna í Kína
• •
Oryggismál bygging-
arinnar voru í ólestri
Luoyang. AP, AFP.
Á FJÓRÐA hundrað manns létust í
stórbruna í borginni Luoyang í Mið-
Kína á kvöldi jóladags. Flest fórn-
arlambanna voru stödd í nætur-
klúbbi í byggingunni sem m.a. hýsir
einnig stórmarkað.
Harmi slegnir ættingjar fóru í
gær yfir myndir af fórnarlömbunum
til að bera kennsl á líkin. Upptök
brunans eru í rannsókn en komið
hefur í ljós að öryggismál í bygging-
unni voru í mjög miklum ólestri.
Að sögn kínverska rfldssjónvarps-
ins hafa um tuttugu manns verið yf-
irheyrðir vegna brunans en lögregl-
an hefur ekki viljað tjá sig nánar um
málið. Talsmaður Luoyang-borgar,
sem ekki vill láta nafns síns getið,
sagði að þeir sem hafa verið yfir-
heyrðir bæru ábyrgð á byggingunni.
Flestir létust úr reykeitrun
Eldurinn kviknaði í kjallara bygg-
ingarinnar klukkan hálftíu að stað-
artíma á mánudagskvöld. Þaðan
breiddist hann út upp á þriðju hæð.
Næturklúbburinn er á fimmtu og
sjöttu hæð hússins en þar voru flest
fórnarlambanna stödd. Flest þeirra
létust úr reykeitrun eða köfnuðu, en
þykkan reyk lagði upp á efri hæðir
byggingarinnar. Auk gesta nætur-
klúbbsins voru byggingarverka-
menn staddir á þriðju hæð hússins,
en þeir voru að leggja lokahönd á
frágang stórverslunar sem átti að
opna í dag, fimmtudag.
Að sögn þeirra sem komust lífs af
var önnur tveggja útgönguleiða úr
næturklúbbnum full af reyk og hin
þannig staðsett að gestirnir tóku
ekki eftir henni. Kínverskt dagblað,
Southem Daily, hefur eftir Wang
Weihong, sem komst lífs af ásamt
unnusta sínum að það hafi bjargað
lífi þeirra að þau brutu glugga á her-
bergi sem þau voru stödd í og þannig
hafi þau fengið nægt súrefni þar til
slökkvilið kom þeim til bjargar. Hún
segir að hræðflegt hafi verið um að
litast á slysstað, slíkur var fjöldi lík-
anna.
Stjórnvöld heita
rannsókn og refsingum
Kínversk stjórnvöld hafa brugðist
harkalega við fregnum af brunanum
og ónógum brunavömum. Zhu
Rongji forsætisráðherra og Hu
Jintao varaforseti hafa, að sögn kín-
verska sjónvarpsins, fyrirskipað ít-
arlega rannsókn á slysinu og krafist
þess að þeir sem bera ábyrgð á brun-
anum verði refsað harðlega.
Kínverska fréttastofan Xinhua
hefur greint frá því að byggingin hafi
verið sett á lista yfir 40 hættulegustu
byggingar í Henan-héraði fyrir
þremur árum. Þrátt fyrir það var
ekkert gert til að bæta úr öryggis-
málum í byggingunni.
Yfirvöld í Luoyang drógu til baka
leyfi sem veitt hafði verið til að leigja
út rými í byggingunni en þrátt fyrir
það héldu umsjónarmenn hennar
áfram að leigja þau út, m.a. fyrir
næturklúbbinn. Nýverið var skrifað
undir samning um endurnýjun bygg-
ingarinnar, en sú vinna var ekki haf-
in þegar eldsvoðinn átti sér stað.
Talsmenn Luoyang-borgar hafa
staðfest þessa frétt fréttastofunnar
en neituðu að tjá sig frekar um mál-
ið. Sömuleiðis hafa lögregla og önnur
yfirvöld ekki viljað greina frá fram-
gangi rannsóknarinnar.
Meðal annars hefur getum verið
leitt að því að neisti í kjallara bygg-
ingarinnar, þar sem verkamenn voru
að logsjóða, hafi valdið brunanum.
Einnig hefur því verið haldið fram að
um íkveikju hafi verið að ræða.
Sýning á antik-
bútasaumsteppum
í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfjarðar, Strandgötu 34
Sýningin er opin á opnunartíma
safnsins frá kl. 11.00 - 17.00 27. - 30.
desember og 3. - 7. janúar.
Mitterrand yngri
áfram í varðhaldi
Parfs. Reuters, AFP.
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í París
hafnaði í gær beiðni um að Jean-
Christophe Mitt-
errand, sonur
fyrrverandi
Frakklandsfor-
seta, yrði látinn
laus úr gæzlu-
varðhaldi gegn
tryggingu. Hann
var handtekinn sl.
fimmtudag, grun-
aður mn að vera
viðriðinn vopna-
sölumál sem
franskir saksóknarar eru nú með til
meðferðar.
Jean-Christophe Mitterrand, eldri
sonur Francois Mitterrands heitins,
var ráðgjafi föður síns í Afríkumálum
á tímabilinu 1986-1992. Hann hefur
þegar viðurkennt að hafa þegið and-
virði um 155 milUóna króna frá fyr-
irtæki sem seldi vopn til Angóla upp
úr 1990. Eru uppi grunsemdir um að
hann hafi þegið greiðslumar fyrir að
hafa notað víðtækt tengslanet sitt í
Afríku til að liðka fyrir vopnasölu-
samningum milli rússnesks fyrirtæk-
is með vafasaman orðstír og stjóm-
valda í Angóla, sem komst til
framkvæmda á ámnum 1993-1994.
Jean-Pierre Versini-Campinchi,
lögfræðingur Mitterrands, sagði að
líkamleg heilsa hans væri ágæt „en
andlega er hann útbmnninn. Þið get-
ið rétt ímyndað ykkur hve mikil smán
þetta er honum.“
Jean Christophe
Mitterrand
Blaða-
menn í
stríði við
yfirmenn
FRÉTTAMENN á tékkneska
rfldssjónvarpinu eiga nú í harð-
vítugum deilum við yfirmenn
sína. Fréttamennirnir neituðu í
vikunni sem leið að samþykkja
ráðningu Jiri Hodac í stöðu yf-
irmanns stöðvarinnar á þeirri
forsendu að ráðning hans væri
pólitísk og hann ætti eftir að
vera stjórnarflokkunum leiði-
tamur.
I kjölfar ráðningarinnar lok-
uðu fréttamenn sig inni á
fréttastofunni og senda nú út
eigin fréttir. Þeir vom reknir á
þriðjudag en hafa neitað að
samþykkja uppsögnina. í gær
kærðu yfirmenn síðan þessa
uppreisnargjörnu undirsáta
sína.
Stuðningsmenn Hodac hafa
einnig sagt að svo geti farið að
valdi verði beitt til að rýma
fréttastofuna.
Fréttamennirnir, sem njóta
stuðnings annara vinnuveit-
enda, blaðamanna og verka-
lýðsfélaga segja að Hodac teng-
ist miðjuflokknum Borgara-
legir demókratar (ODS) og hafi
þegar hann var fréttastjóri á
ríkissjónvarpinu látið stjómast
af þeim flokki og sósíaldemó-
krötum sem sitja í ríkisstjórn
með stuðningi ODS.
Leit að mál-
verkum ár-
angurslaus
SÆNSKA lögregfan leitar nú
dyrum og dyngjum að þremur
málverkum, einu eftir Rem-
brandt og tveimur eftir Renoir,
sem stolið var úr sænska Lista-
safninu á föstudag. 25 manns
hafa verið yfirheyrðir en lög-
reglan sagði í gær að hún væri
litlu nær um þjófnaðinn á mál-
verkunum sem samanlagt eru
metin á um tvo og hálfan millj-
arð ísl. lcróna. Ránið átti sér
stað rétt fyrir lokun listasafns-
ins á fostudag. Þrír grímu-
klæddir og vopnaðir menn
ruddust inn og tóku verkin
traustataki. Þeir komust síðan
undan á bát eftir að hafa kveikt
í bflum og stráð göddum á göt-
una fýrir utan safnið.
Vinur ber
vitni gegn
Estrada
NÁINN vinur Joseph Estrada,
forseta Filippseyja, er fús til að
bera vitni gegn honum. Þetta
kom fram í fil-
ippseyskum
dagblöðum í
gær sem
segja sak-
sólmara hafa
yfirheyrt
manninn. Að
sögn þing-
mannsins
Mike Defens-
or mun vitnis-
burður mannsins koma Estr-
ada enn verr en vitnisburður
bankamanns sem sagðist hafa
séð Estrada falsa undirskrift að
skjölum. Defensor vildi elcki
gefa nánari upplýsingar um
manninn en þær að hann vissi
mikið um viðskipti Estrada
sem hefur verið sakaður um
mútuþægni og spillingu.
Joseph
Estrada