Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 45
Þingið var haldið á einu stærsta hát-
eli í Tel-Aviv-borg, við ströndina, svo
hæg voru heimatökin fyrir þinggesti
að bregða sér yfir götuna og fá sér
sundsprett í Miðjarðarhafinu. Og oft
ekki vanþörf á, því rakinn í loftinu við
u.þ.b. 40° hita gaf tilefni til þess. Að
sjálfsögðu var farið í skoðunarferðir,
t.d. til Jerúsalem og Haifa, helztu ná-
lægra borga, til að heimsækja þekkta
helgistaði kristindóms, islamstrúar
og gyðingdóms í Jerúsalem og
bahá’í-trúar í Haifa. Fór ég undirrit-
aður, ásamt bahá’í fjölskyldu minni,
til beggja þessara borga, og dvöldum
við þrjá daga næst á undan Heims-
þinginu við helgistaði bahá’í-trúar-
innar í Haifa og nutum þess í ríkum
mæli að eiga þess kost að hitta píla-
gríma frá ýmsum löndum og njóta
þess anda ástar og einingar, sem ríkti
meðal þeirra. Vorum við þar reyndar
í hópi 20 bahá’ía, sem eru jafnframt
esperantistar, félagar í alþjóðlegum
samtökum bahá’ía um esperanto,
BEL, Bahaa Esperanto Ligo, sem
ætluðu síðan að taka þátt í Heims-
þinginu í Tel-Aviv. Vert er að geta
þess í þessu samhengi að ein af kenn-
ingum bahá’í-trúarinnar er einmitt
alþjóðlegt hjálpartungumál, sem
muni í fyllingu tímans verða tekið
upp af þjóðum mannkynsins, og verði
það annaðhvort ein af þjóðtungum
þess eða að nýtt tungumál verði búið
til, sem verði notað jafnframt þjóð-
tungunum. Gæti því vel orðið um að
ræða tungumál eins og esperanto,
sem er hið eina af aragnía tilbúinna
mála, sem hefur lifað af allar próf-
raunir nú í meir en heila öld.
Að sækja heimsþing sem þetta er
vissulega dýrmæt reynsla, bæði upp-
byggjandi og menntandi; það að eiga
þess kost að ræða við fólk úr fjar-
lægum heimshornum á hlutlausu al-
þjóðatungumáli á þann hátt sem
ómögulegt hefði verið annars að
kynnast er vissulega ómetanlegt og
þakkarvert. Það veitir vitund um að
við mennimir eigum svo sannarlega
sameiginlegan uppruna, og að það er
sami andinn sem tengir okkur og gef-
ur okkur von um einingu mannkyns-
ins í framtíðinni. Það er hins vegar á
valdi ríkisstjóma þjóðanna að taka
um það ákvarðanir síðar meir. Þörfin
fyrir gagnkvæman skilning á milli
þjóða er knýjandi, tungumálavand-
inn blasir við, misskilningurinn er
hvarvetna fyrir hendi og Ijóst er að
nýtt hjálpartungumál gæti gerbreytt
samskiptum þjóða. Að lokum vil ég
hvetja þá sem hugsanlega hefðu
áhuga á að kynna sér þessi mál eða
jafnvel hefja nám í esperanto að snúa
sér til skrifstofu Esperantosam-
bands íslands, Skólavörðustíg 6 b,
Reykjavík.
Höfundur er ritari
Esperantosambands íslands.
SiMECALUX
Fullkomið
kerfi með
heildarlausn
fyrir
lagerrýmið
UMBOÐS- OG HEILDVERSL UN
Sisrszsmisr
AUÐBREKKU 1 200 KÓPAVOGI
SlMI: 544 5330 FAX: 544 5335
I www.straumur.is I
OPELVECTRA
frá Bílheimum
EINN ifjj-J:
EFTI1F4 ENNS
sem bíða.
eru margir
KANARl
frSð^Wssjónvörp
70.000 kr.hvert)
playstation I
leikiatölvur ,
fró Sktfunnl (um 4U UU --
evjaferðir fyrir
úwoll-Ú“Vn (um 15
Samtals 190 þúsund vinningar að verðmæti á annað hundrað milljónir króna!
Hver miði verður að mörgum trjám
Fyrir hverja póstkröfu sem þú leysir út fást um 40 trjáplöntur og ef allir
sækja vinninginn sinn á pósthúsið dugar ágóðinn til gróðursetningar
á um 1000 ha svæði. Til samanburðar þá er stærsti skógur landsins,
Hallormsstaðarskógur, um 700 ha að stærð.
Ert þú búin(n) að sækja vinninginn þinn?
ÍSLANDSBANKIFBA
íslandssfmi
SKOGARSJOÐURINN
Upplýsingasími 581 1770
013/ BWOIR / 334