Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ
4'
FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 53
MINNINGAR
+ Pia Ásmunds-
dóttir fæddist í
Kaupmannahöfn 17.
júlí 1948. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 18. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ásmundur Sig-
urjónsson, f. 11.9.
1925, d. 4.8. 1997 og
Lis Ruth Sigurjóns-
son, f. 31.8. 1925, d.
3.9. 1999. Systkini
Piu eru Kjartan, iðn-
fræðingur, f. 31.10.
1950, Egill, starfs-
maður Isals, f. 11.1. 1953 og
Helga, tannfræðingur, f. 13.2.
1960, d. 20.1. 1990.
Pia giftist árið 1968 Sigurði
Bjarnasyni, lyfjafræðingi, f. 20.9.
Er lífiðofstutt?
Mér þykir mig hafa dreymt
lengi-oflengi.
(Japanskt ljóð.)
TilPiu.
Minningar standa mér ljóslifandi
fyrir hugskotssjónum. Minningamar
um þig, elsku Pia.
Fyrir mér varstu fyiinnynd að
ungri konu, eiginlega fýrsta reynsla
mín af því að sjá unga stúlku breytast
í fallega gjafvaxta konu á leið út í lífíð.
Eg var 10 ára, ég var áhorfandi að
ungri og glaðværri æsku þinni, þú
varst uppeldissystir og sldpaðir ríkan
sess í okkar fjölskyldulífí á þessum
árum.
Glaðheimamir, og hið nýja Voga-
hverfí byggðist ört upp, Glaumbær í
algleymingi, lífið framundan.
- Síðan fluttist þú, Pia, til Kaup-
mannahafnar sem var þitt annað
heimaland, þú varst sem innfæddur
Dani.
Lífínu er ekki alltaf ætlað að vera
rósum stráð braut gagnvart okkur
mönnum.
Elsku Pia, við sem ætluðum í ferða-
lag saman þegar þú værir orðin frísk.
Þú varst svo þreytt; þráðir hvíld í hita
og sandi. Nú ertu horfin á vit ástvina
þinna, Helgu systur, Lís mömmu og
1940 og er þeirra
sonur Ari Rafn Sig-
urðsson, flugnemi,
f. 9.6. 1969. Unn-
usta hans er Stein-
unn Garðarsdóttir,
f. 17.8. 1976. Pia og
Sigurður skildu.
Pia starfaði sem
lyQatæknir hér
heima og síðan sem
læknaritari í Kaup-
mannahöfn. Hún
dvaldi í Kaup-
mannahöfn nær
óslitið frá 1969 til
1997. Eftir að hún
flutti alfarin heim starfaði hún
hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Útför Piu fer fram fá Háteigs-
kirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Ásmundar pabba, fólksins sem þér
þótti vænt um og saknaðir svo mikið.
Þú hefur kvatt þetta líf og lokað aft-
ur fallegu, brúnu, möndlulaga augum
þínum.
Hvíl þú í friði.
Þín
Elín Edda (Ella).
Fyrir ofan vaskinn í eldhúsinu
mínu er h'til postulínstafla sem á er
letrað ljóð eftir Piet Hein. Þessa htlu
postulínstöflu gaf Pia, frænka mín,
konu minni sl. sumar. Pia hafði þá um
hríð baríst við illkynja sjúkdóm. Hún
tjáði sig þá vongóða um að lækningar,
sem beitt hafði verið, hefðu borið góð-
an árangur.
Eg hef ekki síðan í sumar leitt hug-
ann að þessari postulínstöflu. Þetta er
ósköp venjuleg postuhnstafla sem
víða má sjá. Eg þykist muna að hún
hafi verið í hennar eigu frá þeim tíma
þegar hún var búsett í Kaupmanna-
höfn. En nú, þegar þessi lífsþyrsta
frænka mín hefur lotið í lægra haldi
fyrir því meini, sem undir lokin hafði
heltekið hana, beinist athygh mín að
ljóðlínunum á þessari töflu. Skyndi-
lega hafa þær fengið fyllri og dýpri
merkingu, en ljóðið hljóðar í lauslegri
þýðingu eitthvað á þessa leið.
Mundu að gleyma smámunum.
Mundu að skflja, hvað skiptír máli
Mundu að elska, meðan Igark þú hefur.
Mundu að lifa, meðan þú lifir.
Ekki veit ég hvort henni hefur
sjálfri tekist alla tíð að lifa í samræmi
við orð Piet Hein. En þegar hér var
komið sögu held ég að hún hafi þegar
verið búin að skilja kjamann frá
hisminu. Henni hafi verið ljóst hvaða
gildi það eru sem mestu skipta. Þess-
ari einföldu lexíu vildi hún miðla til
þeirra sem skiptu hana máli. Mér er
enn minnisstætt að það var einhver
dularfull einurð í fasi hennar þegar
hún fékk konu minni töfluna í hendur.
Kannski var hún með þessari gjöf að
senda einhver skilaboð. Ef til vill
gerði hún sér grein fyrir að skammt
væri að bíða endalokanna þótt hún
léti allt annað í veðri vaka við okkur.
Hvað sem því hður þá reyndi hún að
njóta lífsins svo lengi sem kraftar
hennar leyfðu.
Ég mun hafa verið að nálgast ung-
lingsárin þegar Ásmundur föðurbróð-
ir minn flutti heim til Islands með fjöl-
skyldu sína einhvem tíma á 6.
áratugnum. Á þeim ámm finnst
manni aldursmunur mun meiri en
þegar maður er uppkominn. Því
kynntist ég þessari frænku minni
ekki náið lengi framan af. Fyrir rúm-
lega 20 ámm, þegar hún var aftur
flutt til Danmerkur, heimsótti ég
hana þangað. Saman ferðuðumst við
síðan til Stokkhólms og áttum þar eft-
irminnilega daga. Eftir það reyndi ég
að heimsækja hana þegar leið mín lá
um hennar heimaslóðir. Hún var mik-
ill unnandi djasstónlistar og í þessum
heimsóknum vígði hún mig inn í
djassheima Kaupmannahafnar. Eftir
að hún flutti heim til Islands fyrir
nokkmm ámm tengdist hún einnig
vináttuböndum við konu mína og böm
okkar. Pia var greind kona og næm á
lífið í kringum sig. Hún hafði til að
bera einhverja lífsvisku, sem erfitt er
að skilgreina, en maður skynjaði í ná-
vist hennar og tali. Á góðri stund var
oft stutt í einlægan, gleðiríkan hlátur
en þess á milli einkenndist svipur Piu
af alvörugefni. Nú er þessi gleðiríki
hlátur þagnaður og svipur hennar að-
eins mynd í hugskoti okkar.
Sá sem öllu ræður hefur veitt henni
hvfld frá þjáningum þessa lífs. Megi
sá hinn sami veita okkur, sem ennþá
lifum, styrk í sorginni.
Sigmundur Om Amgrímsson.
PIA
ÁSMUNDSDÓTTIR
GUÐRUN SVANDIS
HANNESDÓTTIR
WOLFE
+ Guðrún Svandís
Hannesdóttir
Wolfe fæddist í Kefla-
vík 11. október 1922.
Hún andaðist í Balt-
imore í Bandaríkjun-
um 17. þessa mánað-
ar. Faðir hennar var
Hannes Júlíusson,
skósmiður og sjómað-
ur, f. 29.8. 1885, d.
3.5. 1962, og móðir
hennar var Margrét
Einarsdóttir, hús-
móðir, f. 31.5.1886, d.
28.5. 1942. Systkini
hennar voru: 1) Svava, f. 1908, dó
nýfædd. 2) Sigurður Einar, f. 7.9.
1909, d. 21.9. 1969. 3) Júlíus Svav-
ar, f. 25.6.1911, d. 6.4.1930.4) Ell-
ert, f. 1.11. 1917, d. 23.12. 1991. 5)
Ásta Sigrún, f. 16.7. 1922. 6) Haf-
steinn, f. 29.4. 1924, d. 21.3. 1980.
7) Ragnheiður, f. 2.11. 1926. 8)
Júlía Sæunn, f. 26.8. 1929. 9)
Dagný Björk, hálfsystir, samfeðra.
Guðrún Svandís giftist Richard
H;uper Wolfe hinn 15.5. 1943.
Richard var fæddur í
Virginíuríki í Banda-
ríkjunum hinn 14.9.
1915. Hann andaðist
6.9.1974.
Börn þeirra em: 1)
Richard Harper
Wolfe jr., f. 19.8.
1943. Kona hans er
Jarmei Frances
Harper Wolfe. Börn
þeirra eru Jereme
Dwight Wolfe, f.
16.2. 1979, og Adam
Harper Wolfe, f. 4.8.
1980. 2) Elisabet
Margret Evans, f. 8.10. 1952.
Hennar maður er William L. Ev-
ans. 3) James Dwight Wolfe, f.
11.1. 1954. Kona hans er Jani Sig-
mar Wolfe. Sonur þeirra er Nichol-
as Dwight Wolfe, f. 25.3.1986.
Guðrún Svandís flutti til Banda-
ríkjanna síðla árs 1943 og hefúr
búið erlendis síðan.
Utför Guðrúnar Svandísar fer
fram í Washington í Bandaríkjun-
um í dag.
Látin er í Bandaríkjunum frænka
mín Guðrún Svandís Wolfe, eða
Gunna eins og hún var kölluð á mín-
um uppvaxtarárum. Reyndar gekk
hún undir nafninu Svandís erlendis.
Gunnar frænka fæddist í Keflavík og
bjó þar í tæp þrjú ár. Hún ólst upp í
stórum systkinahópi, við naum kjör
eins og algengt var á þeim árum,
þegar börnin voru mörg. Því fylgdu
miklir flutningar á fjölskyldum, þar
sem leiguhúsnæði var af skomum
skammti og var oft leigt til skamms
tíma. Hún talaði þó mikið um Laug-
arnesveginn, en þar bjó fjölskyldan
hennar í sjö ár í húsi sem nefnt var
Steinar og stendur þar enn. Reyndar
er búið að bæta oft við húsið og er
það nú miklu stærra en það var í þá
tíð. Þegar þau bjuggu þar var húsið
aðeins tvö herbergi og loft og þar
bjuggu allir í sátt og samlyndi þótt
þröngt væri.
Gunna flytur til Bandaríkjanna
með eiginmanni sínum og syni þegar
hún er 21 árs gömul. Richard maður
hennar var atvinnuhermaður og
bjuggu þau Gunna því víða um
Bandarfltín. Eftir stríð bjó hún í þrjú
ár í Þýskalandi og flytur svo þaðan
aftur til Bandaríkjanna. Þegar mað-
ur hennar lést bjuggu þau í Balt-
imore og bjó Gunna þar eftir það.
Gunna kom nokkrum sinnum til Is-
lands, þar á meðal kom hún hingað
árið 1952 og dvaldist hér í eitt ár og
bjó þá í Keflavík. Síðan fjölgaði ferð-
um hennar þegar hún varð eldri og
síðast hélt hún upp á sjötugsafmælið
sitt hér á íslandi. I gegnum árin hef-
ur mikið af okkur skyldfólkinu farið í
heimsókn til hennar í lengri og
skemmri tíma. Allir voru alltaf jafn
velkomnir og mjög gaman að heim-
sækja hana. Gunna gat mikið dáðst
að kaupæði okkar Islendinga og
spurði hvort ennþá væri haftastefna
á íslandi og hvort allt væri skammt-
að ennþá. Hún var glettin og
skemmtileg kona, með góða kímni-
gáfu, og ég sakna hennar mikið.
Síðustu æviárin bjó Gunna við gott
atlæti hjá Betty dóttur sinni og
tengdasyni sínum William. Hjá þeim
leið henni vel og var hún mjög þakk-
lát þeim fyrir umhyggjuna.
Systrum hennar þeim Ástu,
Rögnu, Lúllu og Dagnýju sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Elsku Bettý, við vitum að þú hefur
misst mikið, guð varðveiti þig og
styrki í sorg þinni.
Mig langar fyrir hönd fjölskyld-
unnar að votta börnum hennar og
barnabörnum okkar dýpstu samúð.
Guð blessi þig og geymi elsku
frænka.
Ingunn Óskarsdóttir.
t
Tengdamóðir mín, amma og langamma,
JÓHANNA GUÐRÚN SIGMUNDSDÓTTIR
(Jobba),
lést á St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi miðvikudaginn 20. des-
ember.
Jarðsungið verður frá Hofsóskirkju föstudaginn 29. desember kl. 14.00.
Jarðsett verður í Viðvik.
Hjörtur Hinriksson,
Jóhanna Kristín Hjartardóttir,
Ástríður Hjartardóttir, Kjartan Friðjónsson,
Guðmundur Helgi Hjartarson,
Hinrik Hjartarson, Guðmunda Ragnarsdóttir,
Ragnheiður Hjartardóttir,
Óskar Hjartarson,
Ósk Hjartardóttir
og barnabarnabörn.
t
Ástkær systir okkar,
ÞÓRUNN BERGSTEINSDÓTTIR
(Tóta),
Skúlagötu 66,
Reykjavík,
lést á Landspítanum við Hringbraut miðviku-
daginn 20. desember.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstu-
daginn 5. janúar kl. 15.00.
Magnús Berg Bergsteinsson,
Sesselja Bersteinsdóttir,
Þuríður Pfeiffer,
Sigurður Berg Bersteinsson,
Ólafur Bergsteinsson,
Sigríður Bergsteinsdóttir.
i
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KRISTINN SIGURÐSSON,
Strandgötu 26,
Neskaupstað,
andaðist á Líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi mánudaginn 25. desember.
Lilja Hulda Auðunsdóttir,
Auður Helga Kristinsdóttir,
Kristín Kristinsdóttir, Karl Egilsson,
Sigurjón Kristinsson, Svanlaug Aðalsteinsdóttir,
Rán Kristinsdóttir,
Elísabet Auðunsdóttir, Fannar Jónsson
og barnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN GUÐBJARNADÓTTIR,
frá Flateyri,
Hlíf II,
fsafirði,
lést á sjúkrahúsi ísafjarðar sunnudaginn
24. desember.
Útförin verður auglýst síðar.
Svanur Jóhannsson,
Anna Jóhannsdóttir, Emit R. Hjartarson,
Guðbjarni Jóhannsson, Bára Guðjónsdóttir,
Þorsteinn Jóhannsson, Gunnhildur Brynjólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
FRIÐGEIR RAGNAR GUÐMUNDSSON,
vistheimilinu Kumbaravogi,
Stokkseyri,
sem lést miðvikudaginn 20. desember, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
29. desember kl. 13.30.
Guðlaug Rósa Friðgeirsdóttir, Hilmar Árnason,
Sigurður Friðgeirsson,
Sæbjörg Erla Friðgeirsdóttir,
Kristjana Margrét Friðgeirsdóttir, Sigurður Jónsson,
Árni Geir Friðgeirsson, Dröfn Sigurvinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.