Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 60
#0 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Ástkær eiginmaöur minn, faöir okkar, tengda- faöir og afi, EIÐUR SÆVAR MARINÓSSON, Hrauntúni 18, Vestmannaeyjum, lést af slysförum föstudaginn 15. desember. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju, Vestmanna- eyjum, föstudaginn 29. desember kl. 14.00. Sigurborg Engilbertsdóttir, Marín Eiðsdóttir, Sigurður M. Ólafsson, Berglind Eiðsdóttir, Matthildur Eiðsdóttir og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, BJÖRNFRÍÐUR SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR, Hjarðarholti 7, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstu- daginn 29. desember kl. 14.00. Oddur Gíslason, Ingileíf Oddsdóttir, Sævar Steingrímsson, Björn Oddsson, Kolbrún Katarínusardóttir, Gísli Páll Oddsson, Jóhanna Guðrún Gunnarsdóttir, Arnór Steinar Oddsson og barnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma okkar, CLARA JENNÝ SIGURÐARDÓTTIR, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 22. des- ember síðastliðinn. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðviku- daginn 3. janúar kl. 15.00. Jónas Halldórsson, Halldór Jónasson, Sigríður Pétursdóttir, María Jenný Jónasdóttir, Jóhann Diego Arnórsson, Sigurður Jónasson, Elsa Hrönn Búadóttir, Jónas Jónasson, Júlíana Björk Garðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Faðir okkar, GISSUR SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Hrafnistu Hafnarfirði, áður til heimilis í Grundargerði 11, Reykjavík andaðist laugardaginn 23. desember. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag, f daginn 28. desember, kl. 10.30. Fyrir hönd vandamanna, Ingigerður Gissurardóttir, Örlygur Benediktsson, Jón Bergur Gissurarson, Erna Björk Guðmundsdóttir, barnabörn og langafabarn. + Innilegar þakkir til ykkar allra er sýnduð okkur samúð, hlýju og vinarhug vegna andláts og út- farar sonar míns, bróður okkar og mágs, DAÐA SIGURÐSSONAR, Engjaseli 72, (áður Höfn í Hornafirði). Sérstakar þakkir fær Sæmundur Egili Björnsson fyrir langvarandi vináttu og stuðning svo og Sniglamir ásamt deild þeirra Gamlingjunum. Svanhildur Sigurjónsdóttir, Halldór Sigurðsson, Hulda Sigurvinsdóttir, Páll Sigurðsson, Kristjana Jakopsdóttir, Edda Antonsdóttir, Gunnar Eliertsson, Sigurbjörn B. de Lange, Astrid de Lange. + Gissur Sigurðs- son fæddist á Bergsstöðum í Bisk- upstungum, Árnes- sýslu, 6. desember 1913. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 23. desember siðastliðinn. For- eldrar hans voru Sigurður Isleifsson, f. 18.10. 1872, d. 5.8. 1945, bðndi á Bergs- stöðum, og kona hans, Sigríður Jóns- dóttir ljósmóðir, f. 31.7. 1878, d. 18.7. 1958. Hann fluttist hálfs árs gam- all með foreldrum sínum að Syðri-Gegnishólum í Gaulverja- bæjarhreppi í Flóa og ólst þar upp. Systkini hans voru: ísleifur, f. 14.8. 1909, látinn, sjómaður, síðast búsettur í Reykjavík; Sig- ríður, f. 14.1. 1911, látin, kennari og húsmóðir í Reykjavík; Jón, f. 7.5. 1912, lengst af bóndi í Syðri- Gegnishólum, nú búsettur á Sel- fossi; Hallbera, f. 28.1.1915, látin, húsmóðir í Reykjavík; Ólafur, f. 27.1. 1919, bóndi á Vorsabæjar- hóli, Gaulverjabæjar- hreppi, nú búsettur á Selfossi; Guðrún, f. 9.9. 1920, látin, hús- móðir í Vestmanna- eyjum; Áslaug, f. 25.12. 1923, húsmóðir í Kópavogi. Uppeldis- systir hans var Anna Kristgeirsdóttir, f. 14.6. 1932, húsmóðir í Reykjavík. Gissur kvæntist 16.1. 1943 Guðbjörgu Bergsdóttur, f. 6.5. 1912, d. 17.6. 1992, húsmóður, hún var dóttir Bergs Jónssonar, bónda á Helgastöðum í Biskupstungum, og konu hans, Ingigerðar Hjart- ardóttur húsfreyju. Börn Gissur- ar og Guðbjargar eru: 1) Ingi- gerður, f. 2.4. 1944, húsmóðir í Reykjavfk, gift Orlygi Benedikts- syni vélvirkjameistara og eiga þau þrjú börn, Gissur, doktor í efnafræði, búsettur f Þýskalandi, sambýliskona hans er Kirsten Strodtkötter og eiga þau einn son, Tjörva; Guðbjörgu Þuríði, líffræðing í Reykjavfk, og Olgeir, vélsmið og nema í Tækniskóla Is- lands. 2) Jón Bergur, f. 18.7.1948, húsasmi'ðameistari í Reykjavík, kvæntur Ernu Björk Guðmunds- dóttur húsmóður, og eiga þau tvær dætur; Jónu Kristínu, nema í Verslunarskóla Islands, og Dísu Björgu, grunnskólanema. Sonur Ernu er Bjarki Steinar Her- mannsson, nemi í bifvélavirkjun. Gissur hóf nám í trésmíði í Reykjavík hjá Skúla Þorkelssyni, stundaði nám við Iðnskólann i Reykjavík, lauk sveinsprófi 1938 og öðlaðist meistararéttindi 1941. Hann starfaði síðan við húsasmíð- ar á höfuðborgarsvæðinu til 1985. Gissur var í stjórn Trésmiða- félags Reykjavíkur 1941-1950. Hann var einn helsti stofnandi Meistarafélags húsasmiða 1954, sat í stjórn félagsins frá stofnun 1954-1970, var varaformaður þess 1961-1962 og formaður 1962-1970. Hann var forvfgis- maður að stofnun Einhamars, samtaka nokkurra bygginga- meistara, 1971. Gissur var fram- kvæmdastjóri Einhamars meðan fyrirtækið starfaði 1971-1977. Gissur var heiðursfélagi Meist- arafélags húsasmiða frá 1974 og hlaut heiðursmerki iðnaðar- manna úr gulli 1975. Utför Gissurar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfn- in klukkan 10.30. GISSUR SIGURÐSSON Elsku afí minn. Nú ertu allur og fórst að þínum hætti, gerðir allt með hraði og þann- ig fórstu einmitt að þennan örlaga- ríka dag sem þú kvaddir. Það helsta sem ég man úr bernsku um þig var auðvitað skjalataskan bak við stól- inn þinn með namminu í. Svo þegar þú smíðaðir rólu í garðinum sér- staklega fyrir mig. Já, margt var brallað en alltaf fór vel. Ekki leið sá dagur í bernsku minni fram að fímm og hálfs árs aldri er ég flutti úr ris- inu að ég hitti þig ekki. En það langbesta af veraldlegum hlutum sem þú gerðir fyrir mig var að koma mér af stað í gítarnámi. Eg mun aldrei gleyma því er þú spurðir hvort ég hefði áhuga á að læra að spila á gítar. Eg svaraði því játandi og tveimur dögum seinna mættir þú við dyrnar heima með risastóran kassa til mín. Ur honum kom síðan í ljós fyrsti kassagítarinn minn. Sem ég fékk síðar að vita er ég tók fyrsta stigið að væri mjög sjaldgæfur gítar sem vert væri að varðveita. Nú hef ég að mörgu leyti helgað mig tón- listinni og á það allt þér að þakka. Elsku afi minn, nú ertu allur og kominn til ömmu. Eg mun sakna þín um alla ævi og syrgja jafnvel líka. En þrátt fyrir allt vona ég að þú og amma vakið yfír mér og minni fjöl- skyldu og bíðið eftii* okkur er okkar dagar eru taldir. Eg mun elska þig afí minn og ömmu um alla ævi. Þín sonardóttir, Jóna Kristín Jónsdóttir. Elsku afí minn. Þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefíð mér í lífinu. Hér ætía ég að segja þér sem er sérstaklega um þig. Að eiga þig sem vin var gott, að eiga þig sem afa var það besta í heiminum. Afi minn, engillinn sem þú gafst mér hangir uppi í herberg- inu mínu, ég horfi alltaf á hann áður en ég fer að sofa. Ég á margar minningar um stundirnar sem við höfum verið saman. Ég man eftir töskunni þinni sem þú hafðir alltaf bakvið stólinn þinn, sem ég var allt- af að kíkja í og gá hvort þú ættir nammi, og ég man líka eftir rólunni í garðinum þínum. Ein minning er í uppáhaldi hjá mér og þá er ég í pössun hjá þér. Bara ég og þú sitj- um í stólunum, ég í stólnum og þú í gamla hásætinu þínu. Við vorum að borða nammi, lakkrískalla, hlusta á útvarpið þitt og tala saman. Þá sofna ég og þegar ég vakna aftur er mamma komin að sækja mig. En þú varst svo góður að ná í teppi og breiða yfir mig. Já afi minn, ég þakka fyrir mig og vona að þú hafir átt gott líf. Þú munt alltaf eiga sér- stakan stað í hjarta mínu, elsku afi. Þín sonardóttir, Dísa Björg Jónsdóttir. Ég bý í húsi, það er traust og gott hús enda byggði hann afi það. Já ætli það hafi ekki einkennt hann, þann tíma sem ég þekkti hann, að það var allt traust sem kom frá hon- um. En núna er hann kominn til feðra sinna og ekkert við því að gera, það er nú bara svona, sem það gengur. Ég á nú margar minningar um hann afa, það er helst það að ég gat alltaf komist í spýtur og fengið að smíða eins og mig lysti þegar ég var lítill og ætli ég búi ekki að því enn, þótt ég sé farinn að smíða úr járni. Ég man að afí sagði við mig þegar ég var sextán ára að hann yrði stoltur ef ég yrði góður iðn- aðarmaður og það hefur verið gott að geta hugsað til þess þegar erfitt hefur verið í skólanum. Það eru margar sögur sem afi hefur sagt mér gegnum tíðina og það er gott að hafa þær í minningunni, minningin lifir. Olgeir Örlygsson. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, JÓNU SIGRÍÐAR STEINGRÍMSDÓTTUR, áður til heimilis í Krummahólum 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Holtsbúðar. Grétar Óskarsson, Sigríður Sigurðardóttir, Stefanía M. Jónsdóttir, Ægir Kópsson, Ásgerður Jónsdóttir, Axel Oddsson og barnabörn. + Alúðarþakkir faerum við öllum þeim, sem sýnt hafa okkur samúð og vinarhót við andlát og útför EYJÓLFS INGIBERGS GEIRSSONAR, Hátúni 7, Keflavík. Elfn Þorleifsdóttir, Ólafur Eyjólfsson, Bergþóra Jóhannsdóttir, Geir Eyjólfsson, Sigríður Ingólfsdóttir, Margrét Eyjólfsdóttir, Sveinn Pálsson, Daníel Eyjólfsson, Hugrún Eyjólfsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Helga Hildur Snorradóttir. + Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður og afa, KNUDS KRISTJÁNS ANDERSEN, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Guð gefi ykkur gott nýtt ár. Pétur Andersen, Ingibjörg J. Andersen, Óskar Þórarinsson, Sigurbjörn Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.