Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 66

Morgunblaðið - 28.12.2000, Side 66
£6 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ NY OG BETRI IEHILDx-\ NCS TALNINGAVOG 5 15 minni • Stór pallur • Uppfyllir CE staðla Krókhálsi 1 - Sími: 567 8888 - www.pmt.is UMRÆÐAN Árþúsundaskiptin SKIPTAR skoðanir eru um ým- islegt í þessari veröld og eitt af því er skilgreining árþúsundaskipta og ná- kvæmt ártal í því sambandi. Flestir hallast að því að þau hafi verið um seinustu áramót, 1999-2000, en sum- ir eru þeirrar skoðunar að þau verði ekki fyrr en um næstu áramót, 2000- 2001. Þeir fyrrnefndu gefa sér að tíma- tal hafi hafist árið 0 (núll) og að þeg- ar árið 1 hafi tekið gildi hafi eitt ár Si S fTTWnWmUi HNMn Vr '■ r J'-'fí1 *• < Si® pWsttlfi I. >#>!#■« W- t apótekutn og sérversJunum um laiut aflt. verið liðið frá upphafi tímatals. Það þýðir ein- faldlega að þegar árið 10 hófst, þá hafi 10 ár verið liðin frá upphafí tímatals, sem þýðir að þegar kemur að 0 (núlli) við enda tölu, þá sé búið að fylla tuginn þegar það ár hefst. Þar af leið- andi munu 2000 ár hafa liðið er árið 1999 rann sitt skeið á enda, sem þýðir (samkvæmt þess- um rökum) að nýtt ár- þúsund hófst árið 2000, sem yrði þá það fyrsta í nýju árþúsundi. Þeir síðarnefndu gefa sér hinsvegar að árið 0 (núll) hafi ekki verið til (að fyrsta árið hafi verið árið 1) og þar af leiðandi hafi heilt ár ekki liðið fyrr en árið 2 gekk í garð. Það þýðir einfaldlega að full 10 ár liðu fyrst þegar árið 10 rann sitt skeið á enda, sem þýðir að árið 11 var þá fyrsta árið í nýjum tug. Sam- kvæmt þessum rökum hefst nýtt ár- þúsund árið 2001. Þar sem tímatal þetta byggist á vestrænni trú (og til gamans má geta þess að notast er við mörg og mis- munandi tímatöl víðsvegar um heim- inn), þá væri það að mínu mati fyrst og fremst hlutverk svokallaðra vest- rænna trúarleiðtoga og sagnfræð- inga að skera úr um nákvæmt tíma- tal árþúsundaskiptanna. Það er síðan spurning hvaða leiðtogar og fræðingar nákvæmlega ættu að skera úr um þetta, og þá frá hvaða landi/löndum. Einhverra hluta vegna ákváðu flestir af stærstu fjölmiðlum hins vestræna heims að árþúsunda- skiptin hefðu verið 1999-2000, eins og rækilega var tíundað, sjónvarpað, útvarpað og prentað um seinustu áramót. Persónulega er mér nokk sama, en finnst þó grundvallaratriði að reyna að komast að því hvaða öfl og forsendur liggja til grundvallar þessari ákvörðun, sem augljóslega hlýtur að hafa víðtæk áhrif. Ef við tökum Island sem dæmi er þjóð- kirkjan undir ríldnu, sem gerir það að verk- um að þjóðkjörnir fulltrúar Alþingis Is- lendinga gætu hugs- anlega tekið um þetta pólitíska ákvörðun. Það væri einnig til í dæminu að handhafar forsetavalds (annað- hvort forsetinn sjálfur eða þá hugsanlega for- Pétur seti alþingis, forseti Einarsson Hæstaréttar og for- sætisráðherra, en þeir 3 eru handhafar forsetavalds að for- setanum sjálfum fjarverandi, að mér skilst) gætu með handafli tekið slíka Tímatal Hvað er rétt í þessu sambandi er Pétri Ein- arssyni hulin ráðgáta. geðþóttaákvörðun. Þá er það aftur spurning hvers vegna Islendingar ættu að vera í forsvari slíkrar ákvörðunartöku, eða hvers vegna ekki, ef svo ber undir. Ymsir reiknimeistarar og fræð- ingar hafa fært mörg og „augljós" rök fyrir þessu máli, en þó komist að sitthvorri niðurstöðunni. Það mætti alveg eins réttiæta tilfinningarök í þessu máli, byggð á trúarsannfær- ingu. Ef við gefum okkur dæmi, þá þætti mér mjög forvitnilegt að sjá hvemig Hæstiréttur hefði skorið úr um mál, þar sem eitthvað hafi verið auglýst frítt til árþúsundaskipta (eða aldamóta, sem verða um þau sömu áramót), sem aðeins hafi átt að vera frítt til 31. des. árið 1999. í því tilviki gætu neytendur hæglega skilið það á þann veg að það yrði frítt til 31. des. árið 2000). Þannig auglýsti fyrirtæki á Islandi ákveðna þjónustu frítt til aldamóta, um mitt seinasta ár, en svo tók ég eftir því að þeim auglýs- ingum var kippt úr fjölmiðlum stuttu síðar. Á grundvelli þessara auglýs- inga hefði mjög sterklega komið til greina að fara dómstólaleiðina og látið á það reyna hvort þetta tilboð hefði fengist út árið 2000, hafi ein- hver haft áhuga á því. Hvað er rétt í þessu sambandi er mér hulin ráðgáta, enda einfalt sé að sýnafram á hvoru tveggja með eft- irfarandi dæmum. Þegar klukkan er 12 á miðnætti, þá táknar það sömu- leiðis að hún sé 00:00 (núll). Ef þú bíður þangað til klukkan slær 10:00 (tíu) þá ertu búinn að bíða í tíu klukkutíma. Um mánaðamót kemur strax dag- ur 1 og ef þú bíður þar til dagur 10 kemur (á miðnætti á milli 9 og 10 á dagatalinu), þá ertu bara búinn að bíða í 9 daga. Það er einfaldlega vegna þess að ekki er til sá mán- aðardagur sem heitir 0 (núll) í okkar vestræna tímatali. Niðurstaðan gæti verið eitthvað á þá leið að flestir trúa því sem betur hljómar en sannara reynist. Þó talan 2000 sé kannski töff, þá sannar hún ein og sér ná- kvæmlega ekki neitt. Það er senni- lega réttur hvers og eins og alger- lega þeirra mál að kveða upp sinn dóm, en verður kannski vandamál í sumum tilvikum þegar fólk reynir að troða skoðunum sínum í þessu samb- andi yfir á aðra, eins og gæti átt sér stað í auglýsingum, sem hlýtur þá að vera lögformlegt álitamál þar sem hagsmunir eru í húfi, enda sýnist mér að tímasetningar af þessu tagi séu túlkunaratriði, þar sem selj- andinn túlkar sér í hag og neytand- inn sér í hag, en komast samt að sitt- hvorri niðurstöðunni. Rökstutt svar óskast sent. Höfundur er kvikmynda- gerðarmaður. eða allt að 80% afslætti Nú fer hver að verða síðastur! Allt á að seljast! Verslunin hættir sölu á fatnaði* dæmi:Verðáður Verðnú Bamabuxur 2.2CX) 990 Bama T-bolir 1.360 695 Bama stuttbuxur 1.490 745 Háskólapeysur 4.990 frá 990 Hettupeysur 4.800 frá 990 Rennd bein hettupeysa 5.990 2.895 Rennd hettupeysa 4.990 2.495 Anorakkar 9.900 frá 1.990 Brettajakkar 12.900 6.450 Bakpokar 14.900 7.450 Öndunanílpur 9.900 4.950 Öndunarbuxur 7.990 3.995 Rennilásabuxur 6.990 3.495 Sundbolir 390 ídag frákl. 11-18 Föstudag kl.10-18 Laugaraag kl. 10-16 Risarýmingarsala k Hreysti opnar nýja og breytta verslun árið 2001 HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL --Skeifunni 19 - S. 568 1717 • Russell Athletic - Columbia - Convert - Jansport - Gilda Marx - Avia - Tyr - Schwinn - Slendertone - Polar - Weider - Metaform - ABB - EAS - Muscletech - Twinlab - Designer - Labrada - Natures Best - Leppin - MLO

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.