Morgunblaðið - 28.12.2000, Page 68
68 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Á að flytja flugvöllinn?
ÞAÐ þurfa að koma til góðar
ástæður og fyrir því þarf að færa gild
rök hvers vegna taka á Vatnsmýrina
undir byggð og hvað réttlætir það
mikla rask sem óhjákvæmilega er
samfara því að flytja um set mið-
punkt innanlandsflugsins og um leið
að raska þeirri starfsemi sem þar
hefur blómstrað um áratuga skeið.
Hér skal nefna nokkrar helstu ástæð-
urnar.
Ný skipulagsstefna
Svo er komið í Bretlandi að sveit-
arfélögum er bannað með lögum að
byggja hverfí eins og Mosfellsbæ og
Bessastaðahrepp. Slík byggð er að
mati Breta of dýr og óhagkvæm í
rekstri. Dreifðri byggð fylgja miklar
vegalengdir sem m.a. þýðir að rekst-
ur almenningssamgangna ber sig
ekki. Dreifð byggð kallar á mikla
einkabílanotkun sem aftur veldur
stöðugt vaxandi loftmengun og fjölg-
un slysa. Þá krefst gerð slíkra hverfa
gríðarlegra landfóma. Skv. spá Þjóð-
hagstofnunar þarf að reisa á höfuð-
borgarsvæðinu byggð á stærð við
Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð á
næstu 20 árum. Ef við ætlum ein-
göngu að byggja áfram hefðbundin
úthverfí mun það krefjast þess að
taka verður gríðarleg landsvæði und-
ir byggð á næstu árum.
Borgarskipulag
Takmarka á útþenslu
byggðarinnar, segir
Friðrik Hansen
Guðmundsson, en
þétta hana og endur-
nýja innan frá.
Á altari þessarar skipulagsstefnu
er verið að fórna áratuga skógrækt-
ar- og uppgræðslustarfi í Grafarholti
er unnið var af miklum
fjölda unglinga og
greitt fyrir með útsvör-
um Reykvfldnga. Búið
var að planta trjám í
allt holtið og næsta ná-
grenni og lagður hafði
verið góður grunnur að
því að eftir 10 til 15 ár
ættum við Reykvfldng-
ar aðra „Oskjuhlíð".
Með skipulagsstefnu
sína að leiðarljósi tóku
borgaryfirvöld ákvörð-
un um að leggja „hina
Öskjuhlíðina", þ.e.
Grafarholtið, undir
byggð. Þá eru borgar-
yfirvöld að eyðileggja eina sérstæð-
ustu náttúruperlu á Suðvesturlandi,
eiðið í Eiðsvík, milli Geldinganess og
lands, með því að leggja eftir eiðinu
Friðrik Hansen
Guðmundsson
&
INNKÖLLUN
VEGNA RAFRÆNNAR SKRANINGAR
HLUTABRÉFA í PHARMAC0 HF.
Mánudaginn 8. janúar 2000 verða hlutabréf í Pharmaco hf. tekin til raf-
rænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við
ákvörðun stjórnar Pharmaco hf. þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin
viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og reglu-
gerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Pharmaco hf. tekin til rafrænnar skrán-
ingar en þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags
ergetið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja
nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá
Pharmaco hf, að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár
Pharmaco hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabæ eða í síma 535 7000. Komi í Ijós
við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að
færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra
hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reiknings-
stofnun, þ.e. banka, verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðild-
arsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf, fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða
ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er
vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika
hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskíldum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun
umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta framselt hluti sína svo
sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun í þessu skyni stofna
VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa. Hluthöfum félagsins verður kynnt
þetta bréfleiðis.
Stjórn Pharmaco hf.
Pharmaco
Hðrgatúni 2, 210 Garðabær
Pósthólf 200, 212 Garðabær
Simi 535 7000, www.pharmaco.is
veg fyrir þungavinnu-
vélar til að geta hafið
gtjótnám í Geldinga-
nesi. Með sömu skipu-
lagsstefnu að leiðarljósi
ætla Kópavogsbúar út í
miklar landfómir á
bökkum Elliðavatns.
Með nýrri stefnu í
skipulagsmálum er
hægt að vernda nátt-
úruperlur í útjaðri
byggðarinnar og draga
úr notkun bifreiða og
þar með loftmengun og
slysum. Takmarka á út-
þenslu byggðarinnar en
þétta hana og endur-
nýja innan frá. Það er í anda slíkrar
stefnu að taka Vatnsmýrina undir
miðborgarbyggð í stað þess að fórna
tíu- til tuttugufalt stærra landsvæði
undir jafnfjölmenna úthverfabyggð.
Búið er að taka ákvörðun um að
flugvöllurinn verði um sinn í Vatns-
mýrinni. Öll vitum við að stjórnvöld
eiga auðvelt með að breyta fyrri
skipulagsákvörðunum. Það sáum við
t.d. þegar núverandi borgarstjóm
ákvað að hætta við íbúðabyggð í
Geldinganesi og valdi í staðinn að
hefja framkvæmdir í skógræktar-
svæði borgarinnar í Grafarholti. Er-
um við á réttri leið þegar við leggjum
skógræktina í Grafarholti undh-
íbúðabyggð, gemm alþjóðaflugvöll í
miðbænum, leggjum Eiðsvík og
Geldinganesið undir hafskipahöfn og
grjótnám og ýtum íbúunum út á jað-
arsvæðin þar sem byggingaland er í
60 m-140 m hæð?
Umferðar- og öryggismál
Önnur meginástæða þess að taka á
Vatnsmýrina undir miðborgarbyggð
em umferðar- og öryggismálin.
Dreifð byggð kallar á mikla einkabíl-
anotkun sem aftm- veldur aukinni
loftmengun og fjölgun slysa. Ef gerð
yrði 20.000 til 30.000 manna byggð í
Vatnsmýrinni, í stað þess að leggja
tíu til tuttugu sinnum stærra svæði
undir jafnfjölmenna úthverfabyggð,
munu árlega sparast milljarðar
vegna minni bifreiðanotkunar og
færri slysa. Spamaður samfélagsins
af því að hafa slíka byggð í Vatns-
mýrinni í stað þess að hafa hana uppi
á Álfsnesi eða úti í Kapelluhrauni
mun borga upp gerð nýs Reykjavík-
urflugvallar á örskömmum tíma. Þá
liggur fyrir að kostnaður við gerð
samgöngumannvirkja yrði svipaður,
hvort heldur byggð á stærð við Kópa-
vog yrði gerð í Vatnsmýrinni eða á
Álfsnesi. Með ákvörðun borgaryfir-
valda að áfram verði flugvöllur í
Vatnsmýrinni, í stað þess að nýta
svæðið undir miðborgarbyggð, var
verið að taka ákvörðun um sóun mik-
illa verðmæta. Með því var borgar-
stjórn að taka ákvörðun um að auka
bifreiðanotkun í borginni, að auka
loftmengun og fjölga slysum.
Ný miðborg
Þriðja en ekki sísta ástæða þess að
við eigum að taka Vatnsmýrina undir
byggð er að við eigum enga miðborg.
Hér hefur aldrei verið byggð mið-
borg. Mikilvægasta verkefni okkar á
komandi árum á að vera að skapa hér
þær aðstæður að við getum haldið í
athafna- og menntafólkið okkar og
þau fyrirtæki sem hér eru, ekki síst
þau sem sprottið hafa upp á síðustu
árum. Við þurfum að bjóða slíkt um-
hverfi að íslensk iyrirtæki vilji um
ókomin ár hafa höfuðstöðvar sínar
hér og borgin þarf að vera það aðlað-
andi að hingað komi erlend fyrirtæki
vegna þeirrar aðstöðu sem hér standi
til boða. Þessi grundvöllur verður
ekki tryggður nema. hér rísi ný og
glæsileg miðborg. Slfka miðborgar-
kjarna er víða verið að gera í Evrópu
og við eigum að taka þátt í þeirri þiró-
ún. Við eigum að færa næstu kynslóð
nýja miðborg með blandaðri starf-
semi, miðborg iðandi af mannlífi,
miðstöð verslunar, fjármála-, tölvu-
og hátæknifyrirtækja ásamt þéttri
íbúðabyggð. Við eigum að bjóða sem
kost, á móti hinum sannarlega glæsi-
legu úthverfum okkar, miðborgar-
umhverfi þar sem 5 mínútna gangur
er frá vinnustað og heimili að fjölda
matsölustaða, kaffihúsa og verslana.
Slíka miðborg er hvergi hægt að gera
nema í Vatnsmýrinni.
Höfundur er verkfræðingur.