Morgunblaðið - 28.12.2000, Qupperneq 84
^54 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
DAGBOK
MORGUNBLAÐIÐ
í dag er fímmtudagur 28. desem-
. ber, 363. dagur ársins 2000. Barna-
^ dagur. Orð dagsins: Svo segir
Drottinn allsherjar: Dæmið rétta
dóma og auðsýnið hver öðrum
kærleika og miskunnsemi.
(Sak. 7,9.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Sofie
Theresa kemur í dag.
Remöy fer í dag.
- -.fHafnaríjarðarhöfn: Sel-
foss fór í gær.
Frímerki. Kristniboðs-
sambandið þiggur með
þökkum alls konar not-
uð frímerki, innlend og
útlend, ný og gömul,
klippt af með spássíu í
kring eða umslagið í
heilu lagi. Utlend smá-
mynt kemur einnig að
notum. Móttaka í húsi
KFUM og -K, Holtavegi
28,Reykjavík, og hjá
Jóni Oddgeiri Guð-
mundssyni, Glerárgötu
1, Akureyri.
líattholt. Flóamarkaður
í Kattholti, Stangarhyl
2, opinn þriðjud. og
fimmtud. kl. 14-17.
Félag frímerkjasafn-
ara. Opið hús laug-
ardaga kl. 13.30-17.
Áheit. Kaldrananes-
kirkja á Ströndum á 150
ára afmæli á næsta ári
og þarfnast kirkjan
mikilla endurbóta. Þeir
ifem vilja styrkja þetta
málefni geta iagt inn á
reikn. 1105-05-400744.
Mannamót
Árskógar 4. Ki. 9-12
baðþjónusta og bók-
band, kl. 9-16.30 penna-
saumur og bútasaumur,
kl. 9.45 morgunstund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin
smíðastofa, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9-16 handa-
vinna og fótaaðgerð, kl.
13 glerlist, kl. 14 dans.
Félagsstarf aldr-
aðra.Dalbraut 18-20.
Kl. 9 böðun, hár-
greiðslustofan og
handavinnustofan opn-
ar, kl. 13 opin handa-
vinnustofan, kl. 14.30
sögustund.
Félagsstarf aldraðra,
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, ki.
10 hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsst. Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
'"imíðar og útskurður,
glerskurðarnámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Aust-
urver, kl. 13.30 boccia.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Áramótadansleikur
laugard. 30. des. kl.
20.30. Caprí Tríó leikur
fyrir dansi. Happdrætti,
ásadans.
Serðuberg, féiagsstarf.
iðvikudag, fimmtudag
og fóstudag milli jóla og
nýárs er opið kl. 9-
16.30, frá hádegi spila-
salur opinn. Veitingar í
fallega skreyttu kaffi-
húsi Gerðubergs. Allar
upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í
síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum
kl. 9-15, kl. 9.30 gler- og
postulínsmálun, leikfimi
kl. 9.05, kl. 9.50 og kl.
10.45, ki. 13 klippimynd-
ir og taumálun.
Hraunbær 105. Kl. 9-
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 9.45 boccia, kl. 14
félagsvist.
Hæðargarður 31. Kl. 9-
16.30 opin vinnustofa,
glerskurður, kl. 9-17
hárgreiðsla og böðun,
kl. 10 leikfimi, kl. 13.30
bókabíll, kl.15.15 dans.
Hvassaleiti 56-58. Kl. 9
opin handavinnustofa,
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið, kl.
13.30 stund við píanóið.
Vesturgata 7. Ki. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15-12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15-
15.30 handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13-14 leik-
fimi, kl. 13-16 kóræfing.
Tréskurðarnámskeið
hefst í janúar, leiðbein-
andi Sigurður Karlsson.
Upplýsingar í s. 562-
7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaum-
ur og morgunstund, kl.
10 boccia og fótaaðgerð-
ir, kl. 13 handmennt,
körfugerð og frjálst spil.
Bridsdeild FEBK, Gull-
smára. Spilað mánu- og
fimmtudaga í vetur í
Gullsmára 13. Spil hefst
kl. 13, mæting 15 mín-
útum fyrr.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 18.15 á mánu-
dögum í Seltjarnar-
neskirkju (kjallara), kl.
20.30 á fimmtud. í
fræðsludeild SÁÁ, Síðu-
múla 3-5, og í Kirkju
Óháða safnaðarins við
Háteigsveg á laugard.
kl. 10.30.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðara á höfuðborgar-
svæðinu. Jólaball verður
29. des kl. 15 í Félags-
heimili Sjálfsbjargar,
Hátúni 12. Jólasveinar
og annað skemmtiefni á
dagskrá.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi: í
Vestmannaeyjum: hjá
Axel Ó. Láruss. skó-
verslun, Vestmanna-
braut 23, s. 481-1826. Á
Hellu: Mosfelli, Þrúð-
vangi 6, s. 487-5828. Á
Flúðum: hjá Sólveigu
Ólafsdóttur, Versl.
Grund s. 486-6633. Á
Selfossi: í versluninni
íris, Austurvegi 4, s.
482-1468 og á sjúkra-
húsi Suðurlands og
heilsugæslustöð, Árvegi,
s. 482-1300. í Þorláks-
höfn: hjá Huldu I. Guð-
mundsdóttur, Odda-
braut 20, s. 483-3633.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga, fást á eftirtöldum
stöðum á Rcykjanesi. I
Grindavík: í Bókabúð
Grindavíkur, Víkur-
braut 62, s. 426-8787. í
Garði: Islandspósti,
Garðabraut 69, s. 422-
7000. í Keflavík: í Bóka-
búð Keflavíkur, Penn-
anum, Sólvallagötu 2, s.
421-1102 og hjá íslands-
pósti, Hafnargötu 89, s.
421-5000. í Vogum: hjá
Islandspósti b/t Ásu
Árnadóttur, Tjarnar-
götu 26, s. 424-6500, í
Hafnarfirði: í Bókabúð
Böðvars, Reykjavíkur-
vegi 64, s. 565-1630, og
hjá Pennanum - Ey-
mundsson, Strandgötu
31, s. 555-0045.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum í Reykjavík:
Skrifstofu L.H.S. Suð-
urgötu 10, s. 552-5744,
562-5744, fax 562-5744,
Laugavegsapóteki,
Laugavegi 16, s. 552-
4045, hjá Hirti, Bón-
ushúsinu, Suðurströnd
2, Seltjarnarnesi, s. 561-
4256.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Á Akranesi: í Bóka-
skemmunni, Stillholti
18, s. 431-2840, Dalbrún
ehf., Brákarhrauni 3,
Borgarnesi, og hjá El-
ínu Frímannsd., Höfða;
grund 18, s. 431-4081. í
Grundarfirði: í Hrann-
arbúðinni, Hrannarstíg
5, s. 438-6725. í Ólafsvík
hjá Ingibjörgu Pétursd.,
Hjarðartúni 1, s. 436-
1177.
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Austfjörðum.
Á Seyðisfirði: hjá Birgi
Hallvarðssyni, Botna-
hlíð 14, s. 472-1173. í
Neskaupstað: í blóma-
búðinni Laufskálinn,
Kristín Brynjarsdóttir,
Nesgötu 5, s. 477-1212.
Á Egilsstöðum: í
Blómabæ, Miðvangi, s.
471-2230. Á Reyðarfirði:
hjá Grétu Friðriksd.,
Brekkugötu 13, s. 474-
1177. Á Eskifirði: hjá
Aðalheiði Ingimundard.,
Bleikárshlíð 57, s. 476-
1223. Á Fáskrúðsfirði:
hjá Maríu Óskarsd.,
Hlíðargötu 26, s. 475-
1273. A Hornafirði: hjá
Sigurgeir Helgasyni,
Hólabraut la, s. 478-
1653.
Heilavernd. Minning-
arkort fást á eftirtöldum
stöðum: í síma 588- 9220
(gíró) Holtsapóteki,
V esturbæj arapóteki,
Hafnarfjarðarapóteki,
Keflavíkurapóteki og
hjá punnhildi Eh'asdótt-
ur, Isafirði.
Parkinsonsamtökin.
Minningarkort Park-
insonsamtakanna á Is-
landi eru afgreidd í síma
552-4440 og hjá Áslaugu
í síma 552-7417 og hjá
Nínu í síma 564-5304.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 669 1100. Auglýsingar:
- 1111. Áskriftir: 669 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 669 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 1.900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 150 kr. eintakið.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Morgunblaðið/Ómar
Laun þingmanna
og kennara
EF ég man rétt var það
æðsti draumur alþingis-
manna þegar þeir fóru á
föst árslaun að fá það
sama og menntaskóla-
kennarar fengu þá.
Menntaskólakennarar
þurfa að hafa lokið há-
skólaprófi í sínum
kennslugreinum og að
auki prófi í svonefndri
uppeldis- og kennslufræði.
Alþingismenn þurfa
engin próf. Þrátt fyrir
þetta hefur verulega
dregið sundur í launum og
það svo að nú þarf tvo til
þrjá kennara á móti einum
þingmanni.
Við hverjar kosningar
sækjast mun fleiri eftir
þingsæti heldur en þing-
sætin eru. Það er því auð-
velt að manna þau. Þegar
ráða þarf kennara er
þessu öfugt farið.
Því legg ég til að mark-
aðslögmálið verði látið
ráða og laun kennara
hækkuð að því marki að
jafnauðvelt verði að ráða
þá og þingmenn.
Almennt má segja að
það sem lýst er hér að
framan sé dæmi um kolvit-
laust launakerfi í landinu,
launakerfi sem er í
tengslum við markaðinn.
Launin eiga að ráðast af
ásókninni í starfið.
Einar Kristinsson,
Funafold 43.
Léleg dagskrá
um jólin
EG vil koma á framfæri
óánægju minni með dag-
skrá sjónvarpsins yfir jól-
in. Finnst mér dagskráin
hafa verið til skammar. I
þættinum Milli himins og
jarðar voru t.d. spekingar
sem að mínu mati lítils-
virtu Maríu og Jósef og
fannst mér það til skamm-
ar. Það ætti að leggja þann
þátt niður.
Eins var ég óhress með
bíómyndir sjónvarpsins,
það voru sýndar eintómar
glæpamyndir sem hæfa
ekki jólunum, t.d. var í
fyrri myndinni sem sýnd
var á annan dag jóla
mjögslæmt orðbragð.
Ég tel að dagskrárdeild
sjónvarpsins ætti að bæta
sig því ég er mjög ósátt við
dagskrána sem sýnd var
um jólin.
Rúna.
Hvað er að gerast?
ER það með vitund og
vilja R-Iistans að starfs-
menn Reykjavíkurborgar
séu að stuðla að því að fá
unglinga til að fremja lög-
brot með því að fá þeim
peninga til að reyna að fá
kaupmenn til að selja þeim
vindlinga.
Ég reyki ekki og er á
móti reykingum en ég trú
því ekki fyrr en á reynir að
borgarlögmaður hafi sam-
þykkt þessa gerð starfs-
mannanna, að tæla ung-
linga til að fremja lögbrot.
Það hlýtur að vera ólög-
legt að stuðla að því að fá
annan mann með gylliboð-
um til að brjóta lög og
reglur.
280925-3579.
Tapað/fundiö
Týnd jólagjöf
Á Þorláksmessu varð það
óhapp í Kringlunni eða
þar í kring að jólagjöf til
sjö ára drengs tapaðist.
Um er að ræða Gameboy-
leikjatölvu og með henni
er svokallaður „rauður“
leikur. Tölvan og það sem
henni fylgir er í poka frá
versluninni Heimskringl-
unni. Ef einhver skilvís og
heiðarlegur hefur fundið
pokann er hann vinsam-
legast beðinn um að hafa
samband í síma 553-7496
eða 569-1230. Fundarlaun.
Svört úlpa týndist
SVÖRT úlpa með gulu flís-
fóðri týndist um mánaðar-
mót nóv.-des., sennilega á
gervigrasvellinum í Laug-
ardal. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 557-9096.
Dýrahald
Dúskur er týndur
DÚSKUR, sem er 5 mán-
aða högni, rauðbröndóttur,
hvarf frá Holtsgötunni í
vesturbæ Reykjavíkur á
hádegi á jóladag. Ef ein-
hver hefur séð til hans þá
vinsamlega hringið í síma
552-2864. Hans er sárt
saknað.
Krossgáta
LÁRÉTT:
1 gamansemi, 4 málms, 7
starfsvilji, 8 glerið, 9
pikk, 11 sjá eftir, 13
skriðdýr, 14 sjái eftir, 15
verkfæri, 17 þvaður, 20
blóm, 22 illa þefjandi, 23
slæmt hey, 24 hlaupa, 25
erfðavísirinn.
LÓÐRÉTT:
1 vinnuflokkur, 2 stakar,
3 hugur, 4 raup, 5 dáið, 6
sól, 10 krafturinn, 12 flýt-
ir, 13 málmur, 15 karl-
dýr, 16 hnötturinn, 18
ávöxtur, 19 stíf, 20 elska,
21 ófús.
LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 greinileg, 8 kolan, 9 jaðar, 10 ar.a, 11 apann, 13
norpa, 15 bjórs, 18 smeyk, 21 kát, 22 lokka, 23 illur, 24
þrásinnis.
Lóðrétt: 2 rella, 3 innan, 4 iðjan, 5 eiður, 6 ekla, 7 þráa,
12 nýr, 14 orm, 15 boli, 16 óskar, 17 skass, 18 stinn, 19
efldi, 20 kári.
Víkverji skrifar...
NÚ þegar jólahátíðin er liðin
hefst atgangurinn sem jafnan
er í kringum áramótin. Auglýsend-
ur og fjölmiðlar keppast við að æsa
fólk upp í að kaupa sem mest af
flugeldum. Stöðugar fréttir eru
sagðar af því hvort salan er meiri í
kringum þessi áramót en þau síð-
ustu o.s.frv. Víkverji hefur alla tíð
verið þeirrar skoðunar að þessi
flugeldakaup séu hin mesta pen-
ingaeyðsla. Það er sannkallað rétt-
nefni að menn séu að brenna pen-
ingum. Þar að auki verða um hver
áramót alvarleg slys af völdum
flugelda og margir bera merki
þeirra ævilangt.
Þá má ekki gleyma þeirri gíf-
urlegu mengun sem af þessum flug-
eldaskotum hlýst. Mælingar Heil-
brigðiseftirlits Reykjavíkur sýna að
á gamlárskvöld fer loftmengun í
Reykjavík talsvert upp fyrir skil-
greind hættumörk. Stærsti einstaki
þátturinn sem veldur díoxínmeng-
un hér á landi er flugeldar sem
skotið er upp á gamlárskvöld, en
sem kunnugt er álítur Evrópusam-
bandið díoxín það mikið eitur að
það áformar að banna öll matvæli
sem það finnst í.
XXX
ANÆSTU dögum verður til-
kynnt um kjör íþróttamanns
ársins. Árið hefur verið óvenju gjöf-
ult á sviði íþróttanna. Að dómi Vík-
verja hafa tveir íþróttamenn þó
skarað fram úr, en það eru Vala
Flosadóttir og Orn Arnarson. Örn
hefur tvö ár í röð unnið þennan titil
og hefur á þessu ári haldið áfram
að vinna afrek. Víkverji telur hins
vegar að það verði mjög erfitt að
ganga framhjá Völu. Verðlaunapen-
ingur hennar á Ólympíuleikunum í
Sydney var mikið afrek. Vala á
ótvírætt skilið að verða útnefnd
íþróttamaður ársins.
XXX
YÍKVERJI var um jólin að lesa
bók um frönsku stjórnarbylt-
inguna 1789. Það er afar fróðlegt að
kynna sér þessa ótrúlegu byltingu
og þau gríðarlegu þjóðfélagsátök
sem urðu í kjölfarið. Það er dálítið
merkilegt að bera frönsku bylt-
inguna saman við byltingu komm-
únista í Rússlandi. í Frakklandi
urðu átök meðal byltingarmanna
um stefnuna og í kjölfarið hófust sí-
fellt róttækari menn til valda. Sum-
arið 1793 náði Robespierre völdum
og með honum gekk í garð sann-
kölluð morðöld þar sem um 20.000
menn voru hálshöggnir á einu ári.
Ári síðar tóku menn sem óttuðust
um líf sitt í taumana og steyptu
Robespierre af stóli. í kjölfarið
tóku hófsamari menn við völdum.
Þróunin í Rússlandi varð ekki
ólík. Glundroði var á fyrstu dögum
byltingarinnar, en eftir að Lenín dó
tók Stalín við sem tók upp enn
öfgafyllri stefnu í stjórnmálum en
forveri hans. Með honum gekk
einnig í garð sannkölluð morðöld.
Rússum tókst hins vegar ekki að
losa sig við Stalín á jafnskömmum
tíma og Frakkar við Robespierre.