Morgunblaðið - 28.12.2000, Blaðsíða 86
86 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
ANTÍGÓNA eftir Sófókles
3. sýn. í kvöld fim. 28/12 örfá sæti laus, 4. sýn. fim. 4/1 örfá sæti laus, 5.
. sýn. fös. 5/1 örfá sæti laus, 6. sýn. lau. 13/1 nokkur sæti laus, 7. sýn.
' sun. 14/1 nokkursæti laus.
HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eftir John Osborne
Fös. 29/12, örfá sæti laus, lau. 6/1, sun. 7/1, fös. 12/1.
Smíðaverkstæðið kl. 20.00:
MEÐ FULLA VASA AF GRJÓTI eftir Marie Jones
Frumsýning lau. 30/12 kl. 16.00. uppselt, mið. 3/1, fös. 5/1, lau. 13/1,
sun. 14/1.
ÁSTKONUR PICASSOS - Brian McAvera
Fim. 11/1 ogfös. 12/1.
www.teikhusid.is midasalagiej!dlM§ML§ Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
Miðasalan er opin mán.—þri. kl. 13—18, mið.—sun. kl. 13—20.
Símouarsou
Jólasýn, 29. des, örfá sæti laus
fös. 5. jan. laus sæti
fös. 12 jan. laus sæti
lau. 13. jan. laus sæti
Sýnlngar hefjast kl. 20
Vicleysingarnir eru hluci af dagskrá Á mörkunum,
Leiklistarhátíðar Sjáifstæðu leikhúsanna.
MiðasaJa í síma S55 2222
Ú___________og á www.visir.is_____________
DRAUMASMIÐJAN
G.ÓBAR HÆG-ÐIR
eftir Auöi Haraids
Aukasýning fös 29/12 kl. 20
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningin er á leiklistarhátíðinni Á mörkunum
Hidapantanir í Iðnó í síma: 5 30 30 30
Fimmtudaginn 4. janúar kl. 19.30 - örfá sæti laus
Föstudaginn 5. janúar kl. 19.30 - laus sæti
Laugardaginn 6. janúar kl. 17.00 - laus sæti
Hijómsveitarstjóri: Peter Guth
Einsöngvari: Arndís Halla Ásgeirsdóttir
Félagar úr Kór (slensku óperunnar
Kórstjóri: Garöar Cortes
(Z) LEXU5
IHáskólabió v/Hagatorg
Sími 545 2500
Miöasala alla daga kl. 9~17
www.sinfonia.is
www.mbl l.is
BORGARLEIKHÚSIÐ
Leikfélag Reykjavíkur
Næstu sýningar
MÓGLÍ e. Rudyard Kipling
Þri 26. des kl. 14 FRUMS. - UPPSELT!
Lau 30. des kl. 14 -ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sun 7. jan kl. 14
Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson.
Tónlistarstíóri: Óskar Einarsson.
Leikarar: Friðrik Friðriksson, Ellert A. Ingi-
mundarson, ThedórJúKusson, Jóhann G.
Jóhannsson, Gunnar Hansson, Halldór
Gylfason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Jónanna Vigdís Arnardóttir og Edda Björg
Eyjólfsdóttir.
Lýsing: Ögmundur Þórjóhannesson. Hljóð:
Jakob Tryggvason. Búningar: Linda Björk
Ámadóttír. Leikmynd: Stígur Steinþórsson.
Leikgervi: Sóley Björt Guðmundsdóttir.
Litla svið
ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh
Fös 29. des kl. 20
Lau 30. des kl. 20
Stóra svið
SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason
Fös 29. des kl. 20
Lau 30. des kl. 20
Gjafakort í Leikhúsið
- skemmtileg jólagjöf sem lifir lengi
552, 3000
Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL 20
Frumsýn. fim 28/12 UPPSELT
fös 29/12, A kort gilda örfá sæti laus
lau 30/12, B kort gilda örfá sæti laus
fös 5/1, C&D kort gilda örfá sæti laus
fim 11/1 UPPSELT
lau 13/1, E&F kort gilda örfá sæti
fös 19/1, G&H kort gilda örfá sæti
SJEIKSPÍR EING 0G
HANN LEGGUR SIG
lau 6/1 kl. 19 örfá sæti laus
fös 12/1 kl. 20
lau 20/1 kl. 20
530 3O3O
SÝND VEIÐI
fös 29/12 kl. 20 örfá sæti laus
lau 6/1 kl. 20 örfá sæti laus
fös 12/1 kl. 20
TRÚÐLEIKUR
fös 5/1 kl. 20
fim 11/1 kl. 20
Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18
um helgar og fram sýningu alla sýningardaga.
Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er
í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga.
Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst.
midasala@leik.is — www.leik.is
0
SINFÓNÍAN
Jason Robards allur
BANDARÍSKI leikar-
inn Jason Robards er
látinn, 78 ára að aldri,
eftir að hafa tapað lang-
vinnri baráttu sinni við
krabbameinið. Robards
hafði í nær hálfa öld ver-
ið einn virtasti skap-
gerðarleikari sem um
getur en meðal fræg-
ustu tilþrifa hans er
túlkun hans á leikrita-
„sjjáldinu Eugene
O’Neill og ritstjóra The
Washington Post Bill
Bradlee í All the Presid-
ent’s Men, sem fjallar
um afhjúpun Watergate-hneykslis-
ins. Hans hinsta hlutverk á hvíta
tjaldinu reyndist hlutverk deyjandi
föður Tom Cruise í Magnolia. Rob-
-srds hlaut tvenn Óskarsverðlaun,
bæði fyrii- aukahiutverk, fyrir áður-
nefnt hlutverk Bradl-
ees, og sem hinn drykk-
felldi rithöfundur
Dashiell Hammett í
myndinni Julia frá
1977.
Sjálfur þreytti Rob-
ards langdregna rimmu
við Bakkus og þung-
lyndið og lét eitt sinn
hafa eftir sér: „Ég hef
gjaman leikið ógæfu-
menn. Ég kann kannski
ekki mikið fyrir mér á
leiklistarsviðinu en þær
manngerðir get ég auð-
veldlega leikið.“
Robards var fjórkvæntur og þar á
meðal Lauren Bacall - í stormasömu
hjónabandi sem varði í átta ár. Eft-
irlifandi eiginkona leikarans er Lois
O’Connor og hann lætur eftir sig sex
böm.
FOLKI FRETTUM
ERLENDAR
OOOOOO
Skarphéðinn Guðmundsson
fjallar um The Hour of Bewild-
erbeast, fmmraun breska
listamannsins Badly Drawn
Boy, handhafa Mercury-
tónlistarverðlaunanna.
★★★★☆
Dásamlega
dreg’inn drengur
ÞAÐ hljóta flestir sannir tónlistar-
unnendur að vera sammála um að fátt
fullnægir áhuganum frekar en að
uppgötva ný eftirlæti - einhverja
hæfileikaríka tónlistarmenn sem
skjóta upp kollinum að því er virðist
upp úr engu og falla að smekk
manns eins og flís við rass - rétt
eins og lögð hafi verið inn pöntun.
Þannig leið mér þegar ég heyrði
fyrst í þessum litla og snaggara-
lega Breta sem kallar sig Badly
Drawn Boy, sem er tilvísun í
myndasögufígúru, en heitir
réttu nafni David Gough. Dav-
id þessi hefur verið á hvers
manns vörum innan tónlistar-
bransans breska á árinu og
um hann hefur verið rætt
sem bjargvætt þessa árs sem ann-
ars er búið að vera sérdeilis dapurt -
að minnsta kosti hjá tjallanum. Hann
hlaut nýverið hin virtu Mercury-tón-
listarverðlaun fyrir að eiga bestu
plötu ársins í hópi nokkurra fram-
bærilegra sem áður höfðu verið til-
nefndar. Ekki verður annað sagt en
að drengurinn sé vel að þeim heiðri
kominn því að The Hour of Bewilder-
beast er aldeilis glæsileg frumraun og
almennt séð magnaður gripur.
Það leikur enginn vafi á því að
Badly Drawn Boy er ríkulega gædd-
ur tónlistarhæfileikum. Hann er
djarfur og leitandi listamaður sem
enn virðist vera í mótun og af því ein-
kennist þessi fyrsta breiðskífa hans.
Fjölbreytiieikinn er með eindæmum
og stefnur og straumar liggja úr nær
öllum áttum. Upphafstónamir, nokk-
urskonar forleikur, gera manni þegar
ljóst að hér er engin venjuleg plata á
ferð, engin fjöidaframleiðsia, heldur
metnaðarfullt og úthugsað verk sem
á sér upphaf, miðbik og endi. Ná-
kvæmlega vegna þessa - vegna aug-
ljóss metnaðar, natni og vandaðra
vinnubragða verða tilraunir hins ný-
skapaða listamanns aldrei losaraleg-
ar eða stefnulausar heldur líða áfram
í fuilkomnu samhengi frá upphafi uns
yfir lýkur.
Bh'ðir inngangstónarnir eru jafn-
framt upphaf lagsins „The Shining" -
sykursætt sólarlag þar sem Badiy
Drawn Boy syngur veikri og við-
kvæmri röddu:,,Eg vil hleypa sólskini
inn í líf þitt.“ Óðurinn er vafalítið til
elskunnar í lífi hans en maður getui-
ekki annað en tekið orðin til sín og lit-
ið á þau sem veganesti - vísi að því
sem koma skal. Takturinn færist í
aukana í öðru lagi, „Everybody’s
Stalking" þar sem rauði þráðurinn er
gítarhljómur sem allt eins gæti verið
leikinn af sjálfum Hank Marvin.
Fyrstu milliréttimir koma síðan
næstir - litlir lagstúfar sem virka líkt
og sorbet, nokkurs konar bragð-
hreinsarar - en þar gefur hann hug-
myndafluginu virkilega lausan taum-
inn og ægir saman öllum
hugsanlegum og óhugsanlegum tón-
listarstraumum.
Ef fmna ætti tónlist Badly Drawn
Boy dilk og bera hann saman við aðra
sem á undan honum hafa ratt brautir
koma nokkrir í hugann við að heyra
„Stone in the Water“ - lag fyiir
kassagítar, strengi og einstaka píanó-
nótur og burstaslátt. ,g^valanche“
Leonai'ds Cohens er augljós fyrir-
mynd gítarleiksins sem líður þétt-
ingsfast en um leið undurmjúkt
áfram eins og hægfara lest. Annar
samferðamaður Cohens og um margt
áþekkur, Nick Drake, kemur hér
einnig upp í hugann en báðir vom
þeir Cohen einfarar, sérvitrir orðsins
menn sem sóttu þjóðlagaskotnum
trúbadúrslætti sínum andgift til blús-
feðranna. Það fer ekki á milli mála að
Gough hefur kynnt sér verk þessara
tveggja lágstemmdu og hlédrægu
listamanna og læðist að manni sá
gmnur að hann muni temja sér lífs-
mynstur þeirra. Það sem gerir það að
verkum að ekki er hægt að kalla
Badly Drawn Boy beinlínis trúbadúr
eða þjóðlagalistamann em lög á borð
við „Another Peari“, „Bewilderbeast"
og „Disillusion" - rakin popplög,
ávanabindandi og útvarpsvæn í meira
lagi. Það verður ekki hjá því kom-
ist að nefna til sögunnar þriðja
listamanninn, og ekki síður sérvitr-
an, sem upp kemur í hugann við að
heyra í Badly Drawn Boy, og þá sér í
lagi rödd hans, en það er hinn marg-
snúni Morrissey. Gamlir Smithstakt-
ar koma reyndar oftai- en einu sinni
upp í hugann og hlýtur maður því að
skora á gamla unnendur þeirrar forn-
frægu og alltof skammlífu sveitar að
kynna sér Badly Drawn Boy, þótt
ekki væri nema fyrir þær sakir að þar
kann loksins að vera kominn ft-am á
sjónarsviðið langþráður aiftaki
söngvarans afvegaleidda frá Man-
chester.
Það er meira en að segja það að
ætla sér að gera öllum átján lögunum
á skífunni greinargóð skil. Öll skilja
þau eitthvað ákveðið eftfr sig - eitt-
hvað sem togar í mann og nuðar uns
ekki er annað hægt en að sækja til
þeirra aftur, og aftur. Þar kemur fjöl-
breytileikinn sterkur inn. Hann gerir
það að verkum að leiðinn gerir hvergi
vart við sig þrátt fyrir ítrekaða
hlustun - alltaf finnur maður eitthvað
nýtt, einhverja nýja átt sem stefnurn-
ar streyma úr og maður hefur enn
ekki uppgötvað og kannað til hlítar.
The Hour of Bewilderbeast er eitt af
þessum sjaldgæfu verkum, ein af
þessum plötum sem koma til bjargar
mögram ámm. David Gough - Badly
Drawn Boy - hefur lánast að stimpla
sig inn með þeim hætti sem flesta
poppara dreymir um. Hann er búinn
að skila af sér skífu sem lifa mun árið,
og árin, ef út í það er farið. Ef hann
hefur þegar spilað út öllum trompum
sínum og honum reynist vonlaust að
rísa undir þeim væntingum sem án
vafa verða gerðar til hans, sem maður
hefur ætíð áhyggjur af þegar maður
heyrir svo fullskapaða frumraun, get-
ur hann ávallt litið til The Hour of Be-
wilderbeast og unað sáttur við sitt.
Klofinn
toppur
YMSAR þreifingar hafa átt sér stað
á myndbandalistanum síðan leiðir
skildu síðast. Myndir rjúka beint
upp á toppinn
en hlammast
óðar niður aft-
ur að því er
virðist vera.
Eins dauði er
annars brauð.
Eða öllu heldur
myndbands-
snælda í okkar
tilviki.
í þetta sinnið
er það hinn
óborganlegi
sprelligosi Jim
Carrey sem
þýtur eins og byssubrandur beint í
fyrsta sætið með myndina Me, My-
self cinú Irene í farteskinu.
Það er pínu gráglettið að myndin
Gone in 60 Seconds, sem fjallar um
hraðskreiða bfla, skuli ekki hafa
leikið sama leik en hún brunar stíft
að baki Carrey en þarf því miður
að láta sér annað sætið duga.
Önnur tíðindi voru það ekki að
sinni hér frá snælduvígstöðvunum.
Jim Carrey í
hlutverki sínu
í myndinni
Me, Myself
and Irene.
I I « 1 i I II118 18 8 1 aj..l..l..ll..l.l.JLU.I-lJULlJLp.lXlJJ
Nr. var vikur Mynd Útgefandi Tegund
1. NÝ 1 Me Myself and Irene Skífan Gaman
2. NÝ 1 Gone in 60 Seconds Sam myndbönd Spenna
3. 1. 2 Romeo Must Die Sam myndbönd Spenno
4. 3. 4 Gladiator Sam myndbönd Spenno
5. 4. 2 Keeping the Foith Myndform Gaman
6. 2. 3 Perfect Storm Sam myndbönd Spenna
7. 5. 4 Frequency Myndform Spenna
8. 9. 2 Drive Me Crazy Skífan Gaman
9. 6. 5 American Psycho Sam myndbönd Spenna
10. 8. 6 Three To Tongo Sam myndbönd Gaman
11. NÝ 1 The Cider House Rules Skífon Drama
12. 14. 8 Erin Brockovich Skífan Drama
13. NÝ 1 Where the Money Is Myndform Gaman
14. 7. 5 Hanging Up Skífan Gaman
15. 12. 4 Ordinory Decent Criminol Skífan Spenna
16. 10. 5 The Next Best Thing Hóskólabíó Gaman
17. 11. 6 Reindeer Gnmes Skífan Spenno
18. 19. 10 Englar alheimsins Hóskólabíó Drama
19. 18. 10 Deuce Bigalow: Mole Gigolo Sam myndbönd Gaman
20. 15. 5 Maybe Boby Góðar stundir Goman
- IIHI«111.1.1.1 TJLl.í 11.LM-U-U.mxi. 0X0