Skírnir - 01.01.1867, Síða 37
England.
FRJETTIR.
37
hvoruga hefir orSið fram gengt til nmbóta. Á hiS fyrra minnist
drottningin eigi í ræSn sinni, en boðar uppástungur af hálfu
stjórnarinnar um hið síSara. Irar munu Jjó hafa nóg til a? setja
á vankvæSalistann, þó stjórnin Ijeti hvorugt ganga undan.
Frá öllum löndum álfu vorrar sækir fólkiS til annara heims-
álfa, einkanlega til Vesturheims, en flest fer þó frá eylöndum Breta.
í hitt eð fyrra fóru 209 þúsundir manna af landi, en hjerumbil
helmingur þeirra var frá írlandi. ÁriS sem leiS fóru 204 þús
882 úr landi, og voru af þeim írar 98 þús. 890. Af vestur-
ferlum hjeldu 161 þúsund tii Bandaríkjanna, en til nýlenda Breta
í Vesturheimi a5 eins 13 þús. 255.
J>aS er eigi um skör fram, aS menn kalla Breta ena ríkustu
og voldugustu þjóS í heimi, enda sjást hvergi meiri merki auS-
legSaraflsins — utan ef skyldi vera hjá frændum þeirra í Ameriku
— en á Englandi. Fjárhagur ríkisins er í jöfnum uppgangi,
sköttnm er hleypt niSur og stórvirkin eSa hin miklu mannvirki
aukast ár af ári. í árslok 1865 höfSu Englendingar lagt járn-
brautir um 13 þús. 289 enskar mílur á báSum eylöndunum, en
kostnaSurinn til allra brautanna þaS ár var reiknaÖur til 1?
milljóna 575 þúsunda p. sterl. Allt fyrir þaS varS afgangs af
tekjunum 18 milljóna 345 þús. p. sterl. Sá er aukakostnaSur
járnbrautarfjelaga, a8 bæta öll slys er verSa, eins líftjón manna og
örkuml, sem annaS, ef þeim má um kenna er um þær ferSir og
flutninga annast. Ári8 sem lei8 var uppbæð þeirra bóta 280
þús. p. sterl. — Öllum er kunnugt hvern þátt steinkolin eiga í
ferðaflýti á vorum tímum — a8 vjer ekki tölum um allar verkvjelar
— en úr kolanámum Englendinga unnust 1865 98 milljónir 911
þús. 169 tunnur a8 enskri mæling, en sá mælir samsvarar hjerum-
bil sex dönskum tunnum. I námunum unnu þa8 ár 315 þús.
451 verkmanna. Hjer henda opt miklir mannskaSar, er námagöng
e8a hvolf hrynja ni8ur, og þetta ár fengu líftjón 989 verkmanna,
og var þa8 þó me8 minna móti en a3 undanförnu. — Frjetta-
þráSsfjelaginu hefir nú tekizt a3 vinna þá þraut, er mistókst í
fyrra, a8 leggja rafsegulþráS yfir Atlantshaf frá írlandi og til
Nýfundnalands, en frjettastö3in þeim megin er í tengslum vi8
hrabfregnalínur Bandaríkjanna. Nýja línan var mjög vöndu3, en