Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1906, Page 102

Skírnir - 01.12.1906, Page 102
390 Grundvöllur íslenzkrar stafsetningar. Skirnir. um þetta atriði en t. d. hitt, að rita y og ý fyrir i og i, þvi að dómi F. J. sjálfs hafa íslendingar eigi fyr farið að bera é fram sem je, heldur en y og ý sem i og i (Lit. hist. III, 31. bls.). Hitt er nær sanni, að það sé „málssögu-ésamræmi11, að rita é, en eigi niðurlags-r að sið fornmanna, og þó er hljóðstafur fyrir framan niðurlags-r ekki eldri í málinu en j- hljóð í é; en ætli það sé síður málssögu-ósamræmi að rita y og ý, en ekki é? Það þarf ekki að leiða fleiri vitni en stafina y og ý þvi til sönn- unar, að grundvöllur stafsetningar vorrar er ekki framburðurinn nú á tímum, heldur forn ritvenja, sem að vísu hefir lagast í ýmsum greinum eftir nútíðar framhurði. Enginn þeirra íslenzku málfræðinga, er gjörst hafa talsmenn framhurðar-stefnunnar i stafsetningu, hefir farið að rita að öilu leyti eftir framhurði, heldur lagað stafsetninguna að meira eða minna leyti eftir ritvenjunni. I’eir, sem verið hafa fastheldnastir við fornan rithátt, svo sem Guðbrandur Vigfússon og Jón Þorkelsson skólameistari, hafa eigi að eins haldið stöfunum é, y og ý, heldur einnig ritað r í stað ur i niðurlagi orða og orðstofna, þar sem fornmenn rituðu svo, en flestir hafa hafnað því (að rita r fyrir ur), þótt þeir hafi ritað é, og það aðrir eins menn og Sveinhjörn Egilsson, Jón Sigurðsson for- seti, Benedikt Gröndal og Steingrímur Thorsteinsson. Almenningur get- ur ekki heldur farið i þessu atriði nákvæmlega eftir rithætti fornmanna, en veitir miklu hægara að láta é halda sæti sínu, enda eru þeir langt um fleiri, er það gjöra, jafnvel sumir þeir málfróðir menn, er annars vilja breyta stafsetningunni eftir nútiðar-framburði, og hafa þvi slept y og ý, og vikið i fleirum greinum frá almennri ritvenju (Bjarni Jónsson frá Vogi). í grein sinni um stafsetningu i „Tim. um uppeldi og mentamál11 II. mælir Björn M. Ólsen eindregið með þvi, að hætt sé að rita stafina y, ý og z, af því að svo örðugt sé að vita, hvar rétt sé að rita þá og hvar ekki, en um é og je segir hann, að „á litlu standi, hvort heldur sé kos- ið“, þótt hann vilji heldur láta rita je, með þvi að hann heldur fram þeirri stefnu, að færa stafsetningu sem næst framburði (nær en F. J., sem amast ekkert við y og ý). Nú er svo ástatt, að menn eru alment mótfallnir því, að hreyta út- liti málsins svo mjög, sem verður með því að hætta að rita y og ý, og margir munu þeir vera, sem eigi telja það til neinna bóta, að útrýma é, því að sagt hefir verið, að j hafi aldrei átt upp á háborðið hjá Islend- ingum*), en hins vegar styður é forn ritvenja og samræmi það í táknun *) Ljótt er að sjá upptalningu Boga Melsteðs á liði Végeirs úr Sogni (alstaðar Vje-), eða orð eins og hvje, vjefengja, þar sem alment er fram horið: Vegeirsstadir, Vemundarstaðir, hve, vefengja. Er það ekki ósamkvæmni hjá þeim, er rita svona, að vilja helzt rita ket (kjet?), smjer o. s. frv., þótt forn framhurður þeirra orða (kjöt, smjör o. s. frv.) lifi enn (i Austfjörðum) ? Málfræðingar ættu ekki siður að taka til greina þann framburð, sem nálgast gullaldarmálið, heldur en aðra eins málkæki og „Hjerti“. Eg þekti líka einu sinni mann, sem sagði: „kljipa“, „kljúkka11; en ætli nokkrum þyki það eftirbreytnisvert ?
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.