Skírnir - 01.08.1909, Qupperneq 16
208
Prestarnir og játningarritin.
■Gallíu á 6. öld sem frekari útskýring Níkeu-játningarinnar
handa munkunum, og hafi síðar (á 8. og 9. öld) smámsaman
orðiðjátningfrankverskukirkjunnar; þá fyrsthafisíðarihelm-
ingnum verið bætt við, en um uppruna hans sé með öllu
-ókunnugt. Með viðurkenningu þessarar játningar er þrenn-
ingarlærdómurinn, í stað þess að vera trúarhugsun, sem
manninum ber að tileinka sér með hjartanu, orðinn að
kirkjulegri réttarreglu, sem hann verður að lúta, eigi hann
að geta orðið sáluhólpinn1).
Þegar vér nú vitum, að sanngildi fornkirkju-játning-
anna, hvað sem innihaldi þeirra líður, stendur á mjög
svo veikum fótum, að engin þeirra er svo til komin í
upphafi, sem alment var álitið um þær mundir, er fyrst
var tekið að eiðbinda prestana við þær í kenningu sinni,
og að engin þeirra getur til fulls kallast allsherjar-játning
kristilegrar kirkju2), — og þegar vér því næst minnumst
þess, hvernig á evangelisku sérjátningunum tveimur stendur,
í hvaða tilgangi þær voru upphaflega samdar, þá fer
óneitanlega að verða erfitt að réttlæta hina hátíðlegu heit-
bindingu prestanna við slík rit í kenningu sinni, eins og
tiðkast hefir hjá oss síðan í lok 17. aldar. —
2. En ekki verður auðveldara að réttlæta heitbindingu
prestanna við játningarritin, þegar athugað er hvernig
þau hafa náð viðurkenningu og öðlast lagagildi í hinum
lútersku löndum, — hvernig þeim blátt áfram hefir að
oss fornspurðum verið neytt uppá oss afhinu
veraldlega valdi.
Það er mjög svo algeng skoðun, að þótt rit þessi
hafi ef til vill ekki í upphafi verið samin í þeim ákveðna
tilgangi, að þau skyldu gilda sem réttarregla viðvíkjandi
trú og kenningu i kirkjunni um ókomnar aldaraðir, þá hafi
nú kirkjan einu sinni samþykt að svo skuli vera;
*) Sbr. Harnack: Lehrb. d. Dogmengesch. II. bls. 296—298.
2) Grísk-katúlska kirkjan viðurkennir að visu „játninguna frá Níkeu
og Konstantinópel11, þó ekki i þeirri mynd sem vér böfum hana (með
viðbótinni „og syninum11 — f i 1 i o q u e). Hvorug hinna játninganna
ihefir þar „symbólskt11 gildi.