Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1913, Síða 8

Skírnir - 01.08.1913, Síða 8
200 Gnðrún Ósvifursdóttir og W. Morris. sona. Grimmir, ölvaðir og háværir bíða þeir hans. Mjög er þessi kafli fagur hjá Morris, en hve frábrugðinn Lax- dælu! Breytingin öll stafar af því að ástin á að fylla sál Guðrúnar, svo að grimdin og móðgað stærilæti komast ekki fyrir. öll sökin, sem hvílir að miklu leyti á Guð- rúnu í Laxdælu, fellur þá á bræður hennar, og, til að gera þetta hlutverk þeirra sennilegt, er þeim margsinnis lýst í kvæðinu sem grimmum oflætisaulum, sem ala heimskulega öfund til Hjarðhyltinga. Svo svartir eru þeir ekki í Lax- dælu. Þeiro fórnar Morris líka á altari ástarinnar. Nú sjáum við hvernig andinn sem hefir endurlífgað Laxdælu í kvæði Morrisar er henni ólíkur og hefir þess vegna um- steypt henni í sumum atriðum, ekki alllitlum. Þið hafið eflaust tekið eftir því í kaflanum úr kvæð- inu sem eg leiddi ykkur fyrir sjónir áðan, hvað þessi læti Guðrúnar og Bolla eru óforníslenzk. Bolli kveinar og barmar sér, Guðrún byltist á sænginni, slær sér á brjóst og nístir tönnum! Ekki segi eg að með öllu sé ómögulegt að Bolli eða Guðrún hafi nokkurntíma orðið fyrir slíku; en fátt held eg þá að Laxdæla segði um það. Það er ekki fyr en Guðrún er orðin gömul nunna að Laxdælu þykir sæma að drepa á slíkt. Ekki beinlínis samt: það er völvan sem lá grafin undir Helgafellskirkju sem segir Herdísi sonardóttur Guðrúnar frá því — í draumi. Annars er eina ytra merkið geðshræringar sem Laxdæla tilfærir hjá Guðrúnu það, að hana setti dreyrrauða meðan draujparnir voru ráðnir. Alt öðru máli er að gegna um Morrisar Guðrúnu. Ef til vill er ekki óþarfi að taka fleiri dæmi. Þegar henni er sagt frá Ingibjörgu konungssysturr svarar hún angurblíðri röddu sem hvín eins og haustvind- ur: »Þó getur skeð að hann finni góða konu, sem geri hann sælan, eins og eg hefði gert, hefðum við loksins gifzt«. Munið hvernig Laxdæla kemst að orði: »Guðrún kvað þat góð tíðendi — en því at eins er Kjartani full- boðit, ef hann fær góða konu«. Eftir þrjá daga segir Morris að hún geri Bolla boð; hann kemur; »þar stóð hún, aumingja konan, og skalf«; biður hann svo að segja
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.