Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 14

Skírnir - 01.08.1913, Side 14
Púkinn og fjósamaðurinn. Flestir munu kannast við söguna um það, hvernig fjósamaður Sæmundar fróða kornst að raun um að kölski og púkar hans lifa á vondum munnsöfnuði manna og horast því niður, ef ekki er á þá minst, en verða alt í einu feitir og pattaralegir, ef nóg er blótað og ragnað. Þeir sem ekki leggja trúnað á þá sögu ættu að lesa sög' una um Putois (frb. pýtoa) eftir Anatole France. Efni hennar er í stuttu máli þetta: Hjón nokkur, sem bjuggu í friði og ánægju í smábæ einum, urðu fyrir því óláni, að gömul frænka þar í grend- inni hafði upp á þeim, og eftir það höfðu þau engan frið fyrir sunnudagsheimboðum kerlingar. Af þessu voru þau orðin svo dauðleið, að þau ósjálfrátt lofuðu guð einu sinni þegar dóttir þeirra fékk »kikhósta«, svo þau voru löglega afsökuð. En það stóð ekki lengi, og þegar frænka nú kom næst til að bjóða þeim til sunnudagsins, sagði frúin að þau gætu því miður ekki komið, af því að á sunnu- daginn kæmi garðyrkjumaðurinn þangað. »Getur hann ekki komið eftir helgina?« «Nei, hann á annríkt virku dagana«. »Nú, hvað heitir hann; þessi garðyrkjumaður?« »Hann heitir Putois*, svaraði frúin, og það kom alveg umhugsunarlaust. Þar með var nafnið komið, og frá þeirri stund var Putois til. Frænka tautaði fyrir munni sér, um leið og hún fór: »Putois! Mér finst eins og eg kannist við hann. Putois? Putois! Vist þekki eg hann. En eg get ekki munað .... Hvar býr hann?« »Hann er daglaunamað- ur. Þegar hans er þörf, eru gerð orð eftir honum þangað

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.