Skírnir - 01.08.1913, Page 60
252
Nutima hngmyndir um barnseðlið.
líða, og meiri reynsla fæst. En nú þegar er nokkuð unn-
ið, og nóg viðfangsefni. Við höfum hér á íslandi tvö upp-
eldiskeríi: annað sem þjóðin sjálf hefir búið til með alda-
langri reynslu. Það er að ala börnin upp við líkamlega
vinnu og hjáverkanám undir handarjaðri foreldranna. Hitt
er lánað frá grannþjóðunum, flutt hingað til lands að mestu
óbreytt, án þess að laga það eftir eðli okkar eða lands-
háttum. Samkvæmt því á að ala upp í skólum við mest-
megnis andlega áreynslu. Areiðanlega má finna marga
galla bæði á heimilis- og skólauppeldi; þó líklega Heiri á
hinu síðarnefnda eins og það er nú. En um það stoða
engar ágizkanir. Við þurfum að stofna til sjáifstæðra at-
hugana og mælinga á íslenzku gáfnafari og iyndiseinkunn.
Þá fyrst höfum við öruggan grundvöli undir fótum, og
getum, ef við viljum, sniðið þjóðinni stakk eftir vexti.
Mætti þá svo fara, að við fyndum óvænt, að skynsamlegt
þjóðaruppeldi væri beittasta vopnið, sem við getum eign-
ast til að ryðja okkur braut í tilverubaráttunni.
Jónas Jónsson.