Skírnir - 01.08.1913, Síða 69
Heimur versnandi fer.
£61
manna og Englendinga en meðal Indverja. Hiuir fyr-
nefndu eru þó að reyna að menta og kristna Indverjana.
Á hverju ári eru í Bandaríkjunum framin 10000 morð,
eða 1 morð meðal hverra 9000 íbúa. Það er eins og ef
árlega væru 10 menn myrtir hér á Islandi. Á síðustu 20
árum hafa mannsinorð aukist um helming á Stór-Breta-
landi.
Sjálfsmorð aukast stórlega ár frá ári og haldast þau
í hendur bæði við aukning geðveikinnar og við fátækt
og örbirgð. Á hverjum degi eru blöðin full af hroðaleg-
um sjálfsmorðasögum, sem ætla mætti að fældu marga frá
að ganga sömu braut. En svo er að sjá, sem þess konar
dagblaðafréttir örvi og auki alla löngun til hryðjuverka
og dragi úr meðfæddri virðingu fyrir lífinu.
Öldungum fœkkar. Skýrslur flestra þjóða sýna að
stöðugt fækkar gamalmennum. Að eins 1 af 25000
mönnum nær hundrað ára aldri í Bandaríkjunum, en á
Frakklandi að eins 1 af 190000, á Englandi 1 af 200000
og á Þýzkalandi 1 af 700000. Eina landið í hinum,
mentaða heimi, þar sem langlífi finst enn að nokkrum
mun, er í Búlgaríu. Þar eru 3000 hundrað ára öldungar
meðal þriggja miljóna, eða 1 á móti 1000. Þetta lauglífi
er að miklu leyti þakkað Búlgariu-skyrinu, sem er langt
frá því eins bragðgott og okkar skyr og að líkindum engu
betra langlífismeðal. Ættum vér Islendingar því að herða
á skyrátinu.
í hinum menningarlöndunum þekkja þeir ekki skyrið
— enda deyja menn fyrir örlög fram og er svo að sjá
sem æska og elli ætli að nálgast hvor aðra. Og sennilega
verður þess ekki langt að bíða að máltækið »tvisvar verð-
ur gamall maður barn« breytist í »tvisvar verður barn
að barni«. Læknir einn í Fíladelfíu segir frá 28 ára
gömlum rnanni, sem var orðinn eins og gamall fauskur
vegna æðasiggs (það kemur af tóbaki, brennivíui og saur-
lifnaði). Þýzkur læknir segir svipaða sögu af 17 ára ung-
lingi. Fertugum mönnum, körlum og konum, sem hafa elzt
löngu fyrir tímann, fjölgar óðum.