Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1913, Síða 81

Skírnir - 01.08.1913, Síða 81
Giordano Bruno. 273 Danakonungs, og stóð brúðkaup þeirra um yorið 1590 í Krónborg- arvígi. Þaðan fór hertoginn til Hveðiiar og sótti heim Tyge Brahe, stjörnuspekinginn fræga, en Giordano Bruno hafði sagt hertoganum af honum og lofað hann mjög. Meðan Hinrik Júlíus var í Danmörk, léku þeir lausum hala, er koma vildu Giordano Bruno fyrir kattarnef. Klerkar risu upp gegn honum, lýstu hann trúleysing af prédikunarstól í aöalkirkju landsins og bannsettu hann; guðfræðingarnir studdu mál þeirra. Giordano Bruno stóð einn uppi síns liðs. Honum var þá ekki vært þar lengur og tók sig því upp og fór brott úr Brunsvig. Þá dvaldi hann eitt ár í Frankfurt am Main, og gaf þá út rit þau, er hann hafði samið á Þýzkalandi, og voru þau rit á latneskri tungu. En nú varð sá atburður, er því olli, að dvöl hans þar varð eigi lengri. Maður er nefndur Giovanni Moeenigo og átti heima í Venedig. Hann var tíginborinn maður, en gáfnalítill. Hann hafði lesið eitt af ritum Giordano Brunos um minnislistina, og fanst mikið um. En vitsmunir hans voru eigi meiri en svo, að hann hugði, að undir kynni að vera fólginn einhver leyndardómurinn eða leynivizka um þau efni, er mönnum þá lék mikill hugur á, svo sem gullgerðar- listin eða vizkusteinninn, eða annað þess háttar. Þessi maður vildi fá Giordano Bruno fyrir kennara sinn og bauð honum því til sín, til að nema af honum minnislistina. Það var hvorttveggja, að Giordano Bruno mun litlum vinsældum hafa átt að fagna meðal valdhafa í Frankfurt, svo og hitt, að sú hafði ávalt verið heitasta þrá hans, að komast aitur til ættlands síns, og það enn, að enginn má sköpum renna, enda tók hann boði þessu alls hugar feginn. Nú voru mörg ár, síðan er hann fór frá Italíu og nú átti hann þá þess kost, að komast þangað aftur. Má nærri geta, hvílíkur fögn- uður hafi búið í huga hans og hverjar glæsilegar vonir um fram- tíðina hann muni hafa gert sór, er hann nú lagði af stað heim- leiðis. Á leiðinni kom hann við í Ztirich, og dvaldi þar lítinn tíma. Síðan fór hann yfir Alpafjöll, áður en snjóa lagði á, og kom til Venedig seint um haustið 1591, settist að hjá Giovanni Mocenigo, og fór að kenna honum minnislistina. En er missirið var liðið, og lærisveinninn hafði einskis vísari orðið um það, er honum lék mest hugur á, þraut hann þolinmæðina. Honum var það ljóst, að hann hafði tekið þann mann í hús sitt, er eigi væri rétttrúaður maður, og gerðist alláhyggjufullur um þetta mál. Þá tók hann það ráðs, að skýra skriftaföður sínum frá, hversu komið væri, og lótta svo á 18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.