Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.08.1913, Síða 88

Skírnir - 01.08.1913, Síða 88
280 Ritfregnir. ættir, Þorvaldsættin og BólstaðahlíSarættin, meðal hinna allra kyn- sælustu, sem land vort hefir átt á 19. öldinni. Þær verðskulda þaS þá líka í fylsta mæli, að þeirra sé minst í sérstakri bók. Um áreiðanleika þess í öllum einstökum atriðum brestur mig þekkingu til að dæma. Mun erfitt að gera slíkt rit svo úr garöi, að ekki slæðist einhverjar villur inn. En nöfn þeirra ættfræðinganna Hann- esar skjalavarðar Þorsteinssonar og Jóhanns Kristjánssouar, sem báð- ir hafa yfirfarið handritið, eru mér góð trygging fyrir því, að ritið sé ábyggilegt í öllum aðalatriðum, en það skiftir mestu í slíku riti. Eðlilega verður manni að spyrja hvors hafi oröiö kynsældin meiri síra Þorvalds í Holti eða síra Björns í Bólstaðahlíð. Eftir því sem útgef. hefir munnlega tjáð mér er tala skilgetinna Þor- valds niðja í bókinni samtals 1012, en tala skilgetinna Björns niðja samtals 1663. En tala sameiginlegra niðja þeirra beggja alls 726. Því miður hefir útgefandi viljandi slept öllum óskilgetnum niðjum þessara merku ættfeðra úr »Niðjatali« sínu. Er það ærið tilfinn- anlegur galli á góðu riti, og dregur til muna úr gildi þess, auk þess sem öllum binum óskilgetnu niðjum er með þessari viðkvæmni útgefanda óréttur ger. Með óskilgetnu börnuuum hefðu ofangreind- ar tölur auðvitað orðið talsvert hærri og þá enn augljósara hvílík- an þátt báðar þessar ættir eiga i fólksfjölguninni hér á landi um næstliöna öld. Niðjar síra Þorvalds skiftast milli alls 14 barna hans (af 20 skilgetnum). Flestir verða afkomendur Kristínar Þorvaldsdótt- ur, sem átti síra Pál Olafsson í Guttormshaga, þann er fórst í jök- ulhlaupinu með Ofjörð sýslumanni, (afa Páls prófasts í Vatnsfirði og þeirra systkina), samtals 19 6. Næst henni kemst að niðjatali síra Böðvar á Melstað með samtals 192 afkomendur. En langfæstir eru þar niðjar H e 1 g u Þorvaldsdóttur, sem átti Ara lækni Ara- son á Flugumýri, ekki nema 18 als. Áttu þau hjóu þó 11 börn, en aðeins 4 þeirra komust upp, og af þessum börnum, sem upp komust, hefir ekki nema 1 (Þorvaldur á Víðimýri) bundist hjóna- bandi. Áftur skiftast tiiðjar síra Björns í Bólstaðahlíð aðeins milli 8 barna — eða réttara 7, því að 8. dóttirin, Guðrún Björnsdóttir er átti Jónas prófast á Höskuldsstöðum Benediktssou, dó barnlaus. Kynsælust þeirra Bólstaðahlíðarsystra varð E 1 í s a b e t Björns- dóttir, sem átti síra Jón í Steinnesi Pétursson. Niðjar þeirra eru samtals 543, enda eignuðust þau 14 börn og af þeim komust 11 upp og áttu sum þeirra fjölda barna. Næst Elisabetu kemst Kristín systir hennar með 479 niðja; þeir niðjar eru sameigin- legir báðum ættstofnunum, því að Kristín varð 3. kona síra Þor- valds Böðvarssouar og móðir 10 barna hans, þeirra er uppkomust og bundust hjónabandi. En fæstir eru niðjar Ingibjargar Björnsdóttur eldri, þótt tv/gift væri, ekki nema 70 alls. Lærdómsríkt gæti það verið að athuga nánar hvernig þessi niðjafjöldi skiftist milli stétta þjóðfélagsins. En rúmið leyfir ekki að fara hér frekar út í þau efni. Einasta skal á það bent, að af
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.