Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1913, Side 91

Skírnir - 01.08.1913, Side 91
Útlendar fréttir. 283 tninningarmerkjum, yrðu Tyrkir að halda. Ef stjórnin afsalaði sór þeim, þá yrði uppreisn, er gæti haft hin alvarlegustu vandræði í för með sér. Æsing var ákaflega mikil um þetta leyti í Tyrklandi. Mikill flokkur manna vildi enn fyrir hvern mun berjast til þrautar og trúði því enn, að Tyrkir gætu aftur rótt við í stríðinu, eftir allar ófarirnar. ITm mánaðamótin janúar og febrúar hófust bardagar að nýju, og var þá barist bæði við Tchatalja, suður á Gallipóliskaga, við Adríanópel, við Janina, Skútarí og víðar vestur í landi. En það kom brátt í Ijós, að Tyrkir voru þrotnir að vörn. Þó hóldu þeir altat velli við Tchatalja, og unnu hinir þar h'tið á. En ástandið beima fyrir var orðið hið hörmulegasta, fó á þrotum og aliskonar vandræði fyrir hendi, sundurlyndi, bæði heima fyrir í Konstantín- ópel og í herbúðunum, út af gerðum hinnar nýju stjórnar og út af drápi hins fyrverandi yfirhershöfðingja. Snemma í marz tóku Grikkir Janína, er þeir höfðu setið um mjög lengi. Nokkru síðar, 25. marz, var Adríanópel tekin með áhlaupi. Ferdinand Búlsara konungur hólt innreið sína í borgina 28. marz með mikilli viðhöfn. Shukri pasja hót sá herforingi Tyrkja. er varið hafði borgina, og þótti hann gera það mjög hraustlega. Serbar áttu einnig her i umsátinni um Adríanópel og urðu síðan þrætur um það milli þeirra og Búlgara, hvorir meira hefðu þar að unnið. Stórveldin kröfðust nú af Montenegrómönnum, er um Skútarí sátu, að þeir hættu umsát- inni, en þeir höfðu það að engu. Sendu þau þá flota iun í Adr- íahaf, er lagðist þar úti fyrir, til þess að ógna þeim. En það dugði ekki heldur. Þeir hóldu umsátinni áfram og neituðu að víkja fyr ir öðru en vopnum. Og loks tóku þeir Skútarí með áhlaupi 23. apríl. Lýsti Daniló krónprins því yfir, að sú borg ætti frumvegis að verða höfuðborg í Montenegró. En stórveldin höfðu ákveðið, að Skútarí skyldi fylgja Albaníu, og Austurríki og Italía hótuðu að taka hana með hervaldi af Montenegrómönnum, ef hún fengist eigi á annan hátt. 1 Fór loks svo, að Nikíta konungur sá sór ekki ann- að fært, en að afsala borginni í hendur stórveldanna. Tók þá flot- inn við henni, er legið nafði þar úti fyrir, og enski foringinn fekk þar yfirstjórn. Þegar hér var komið, höfðu Búlgarar gert til bráðabirgða vopna- hló við Tyrki. En ósamkomulag magnaðist stöðugt milli sambands- þjóðanna um skiftin á herfanginu. Það ósamlyndi byrjaði fyrst milli Grikkja og Búlgara út af Salonikí, er báðir vildu eignast, eu Grikkir urðu fyrri til að taka af Tyrkjum. En svo hófust einnig

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.