Skírnir - 01.08.1913, Side 92
284
Útlendar fréttir.
ákafar þrætur milli Serba og Búlgara út af skiftingu héraðanna í
Makedóníu. Búigarar gera þar kröfu til mikils hluta Iandsins sam-
kvæmt samningum, er gerðir hafi verið áður en stríðið hófst, en
Serbar hafa tekið það og vilja halda því með rétti sigurvegaranna.
Samkomulag hafði verið milli stjórnanna í Soffíu og Belgrað áður
til ótriðar var lagt um reglur fyrir skiftingu þess lands, er Tyrk-
jum var ætlað að láta af höndum. En þær reglur virðast nú hafa
verið mjög ófullkomnar og teygjanlegar, og vandkvæðin á því. að
beita þeim nú, eru í því fólgin, að það land, sem unnist hefir og
skifta á, er svo margfalt stærra en ráð var fyrir gert. Milli Grikkja
og Búlgara gilda þessar reglur ekki. Þar voru aðeins, áður stríðið
hófst, gefnar yfirlýsingar frá beggja hálfu um, að ávinningi skyldi
skift í hlutfalli við þann herafla og kostnað, sem fram væri lagður
af hvorum um sig, og svo tjónið, sem hvorir um sig biðu af stríð-
inu. Hefir lent í vopnaviðskiftum út af þessum ágreiningi bæði
milli Grikkja og Búlgara og Serba og Búlgara, en smáskærur hafa
það aðeins verið, sem kæfðar hafa verið niður af yfirherstjórnum
ríkjanna.
Þegar Grikkir höfðu tekið Salonikí, snemma á síðastliðnum
vetri, fór Georg Grikkjakonungur þangað og sat þar um veturinn.
Mun það hafa verið í því skyni gert, að tryggja Grikkjum yfirráð
borgarinnar. En Búlgarar höfðu þar einnig her, og lót Ferdínand
konungur ótvírætt uppi, að hann ætlaði sór þar yfirráðin.
Þau tíðindi gerðust í Salónikí 18. marz, að Georg konungur
var myrtur þar á götu úti, skotinn með skammbyssu. Maðurinn,
sem það gerði, var grískur, Alexander Schinas að nafni, aldraður
kennari, og sagður ekki heill á geði. Hanu fekk síðar tækifæri til
að fremja sjálfsmorð. Georg konungur varð 67 ára gamall, fæddur
24. des. 1845, og var hann næstelsti sonur Kristjáns IX. Danakon-
ungs. Til konungs á Grikklandi var hann valinn 30. marz 1863
og hafði því verið þar konungur nær því 50 ár. Eftir hann tók
konungdóm elzti sonur hans, og nefnist Konstantín XII. Hann
hefir verið yfirforingi Grikkjahers nú í stríðinu. Georg konungur
var kvæntur Olgu dóttur Konstantins stórfursta af Rússlandi, en
Konstantin er kvæntur Soffíu systur Vilhjálms Þýzkalandskeisara.
Georg konungur hefir fengið góð eftirmæli og þykir verið hafa
merkur þjóðhöfðingi. Stundum átti hann erfitt uppdráttar hjá
Grikkjum, en nú að síðustu, er hernaðurinn gekk svo vel fyrir
Grikkjum, átti hann miklum vinsældum að fagna, og eins var um
Konstantín.