Skírnir - 01.08.1915, Síða 44
268
Um Ulenzka timatalið.
ar, Marz og Nóvember D, Júní E, September og Des-
ember F og Apríl og Júlí G.
í Fingrarími Jóns Arnasonar varð eg að læra 12 vís-
ur til að muna þetta1) — en nú hefi eg gert mér
þessi stef:
Janúar og Október
A-ið fá í lið með sér,
Maí einum B ið ber.
C-ið Agúst eignum vér,
í áttir þrennar D-ið fer:
Febrúar, Marz og Eovember.
Júní fengið E-ið er,
F-ið lendir segi eg þér
í September og Desember.
Gr-ið hleypur — heyrðu mér —
hleypur Apríl — gáðu að þér —
inn í Júlí ætlar sér.
Ekki er nú lipurt þó kveðið sé, en þar með er vandinre
levstur: A hverju ári falla allir Sunnudagarnir vitanlega
á sama staf, nema hlaupár sé, þá er einn stafur fyrir
Sunnudagana til fobrúarloka en annar (næsti á u n d a n
í stafaröðinni, þannig: B A; D C; F E; AG; CB; ED;.
G F) fyrir hina alla sem eftir fara. Núna 1915 er Sunnu-
dagsstafurinn C; þá veit eg að 3. janúar er Sunnudagur,
því eg tel á fingrum mér
A B C
1 2 3;
og eg veit þá lika að t. d. 4. apríl er Sunnudagur, því.
upphafs3tafur aprílmánaðar er G; tel eg því:
G A B C
1 2 3 4;
og þá veit eg að 5. er mánudagiw, að 11. er aftur Sunnu-
dagur o. s. frv. — Þetta gæti hvert barnið lært, ef reynt værii
') Ugr. bls. 161-63.