Skírnir - 01.08.1915, Síða 72
296
Um íslenzka tímatalið.
rimspillisár1) og það ár kemur blessað sumarið 8. apríl, en,’
alþingi hefst þá 17. júní, ef það er hafið fimtudaginn 10
vikur af sumri. Þá er það annað, að í Aratali er vetur
talinn koma á föstudag og veltur vetrarkoman á 7
dögum (10.—16. okt) en ekki 8 dögum eins og í Blöndu-
tali (11.—18.) okt.); þar af leiðir, að í Aratali verða jólin
ávalt í 11. viku vetrar, »o g svá þá er rímspillir er«; em
í Blöndutali verða þau í 10. vikunni þegar sunnud. er á
D (sbr. bls. 290); í Blöndutali fellur rímspillingin á vetr-
arkomuna (8. ár aldar), en í Aratali á sumarkomuna (9.
ár aldar). í Aratali verða aldrei tvö hlaupár
milli sumarauka — eins ogAri segir. Ení
Blöndutali verða einu sinni á hverri sólaröld 2 hlaupár
milli sumaraukanna, sem sjá má af töflunni, því að í
Blöndutali er sumarauki 8. ár aldar og næst 14. ár aldar
og þá t v ö hlaupár milli (o: 9. og 13. ár aldar), og Ari
fróði er sá íslenzkur fræðimaður, sem við vitum spakastan.
I Aratali ganga árabilin milli sumaraukanna í þessum
skipulegu lotum: 5—4—5—4—5 | 5—4—5—4—5 o. s. frv.
í Blöndutali eu loturnar þannig: 4—5—5—4—5 | 4—5—5’
—4—5 o. s. frv.2)
• *) Eg hef rekið augun i þá tilviijum að dánarár Ara fróða, 1148,.
var rímspillisár — eftir Aratali.
2) Eg hef gert mér talnaformála til að finna misseraskifti eftir'
Blöndutali og Aratali — utan hókar; set eg þá hér handa þeim senr
liafa gaman af reikningi.
Aratal:
Blhndut.:
Yt. == 11 +
a + 7
’ )a+7
10 + ( +-)> j