Skírnir - 01.12.1915, Blaðsíða 24
360
Nýtt lamlnám.
ingur) og Þýzkaland (margar fæðingar). í þessum löndum
lyfta menn hverju Grettistakinu á fætur öðru, og þar eru
meiri framfarir og framtakssemi en heimurinn hefir áður
séð. Gagnstætt er að segja um Frakkland. Þar er tala
þeirra, sem eru yngri en 15 ára, að eins 26% af-öllu
fólkinu (á Þýzkalandi 35%). Samfara þessu er kyrstaða
í öllu atvinnulífi Frakka. Það stafar ekki af því, að fransk-
ur æskulýður sé svo miklu ómentaðri og dáðminni en
gerist með Þjóðverjum, en hann er of fár til að setja
mark sitt á þjóðlífið.
Ef þjóðlífið á ekki að kyrkjast, annað hvort af því að
fólkið verður of margt til þess að geta veitt sér sæmilegt
lífsuppeldi í landinu, eða af því að fæðingum fækkar svo
að fólkstalan stendur í stað, verður það að hafa einliverja
framrás. Við getum hugsað okkur, að þjóðinni blæði inn
í aðrar þjóðir, eins og t. d. okkur íslendingum hefir gert
um mörg undanfarin ár, inn í þjóðir, sem síðar kunna að
verða keppinautar og andskotar þeirrar þjóðar, sem blóð-
tökuna verður að þola, ef til vill hneppa hana í ánauð
eða afmá hana með öllu. Við getum einnig hugsað okk-
ur, að fólkið flytji í eigin nýlendur og verði þar að nýjum
greinum á þjóðarmeiðinum. Það eitt, að þjóðin sé stór og
voldug, er ekki lítils virði. Mátturinn, valdið, hefir að
sínu leyti sama gildi fyrir þjóðina og einstaka menn, en
þó í rauninni miklu meira, af því að milli þjóðanna gilda
engin lög, heldur gamlar venjur og ófullkomnar samþykt-
ir, sem enginn er til að sjá um að séu haldnar, og allar
þjóðir rjúfa þegar þær sjá sér hagsbót í því. Að jafnaði
lifa þjóðirnar í friði, en ef til ófriðar kemur, eru smáþjóð-
irnar eins og mýs í kattarklóm stórveldanna. Á friðar
tímum er hörð samkepni, lífsbarátta, milli þjóðanna, og
einnig á því sviði eru stórþjóðirnar að ýmsu leyti betur
settar. Sérstaklega er það í þeim atvinnurekstri, sem
hlítir lögmálinu um »vaxandi arð«. Með smáþjóð geta t.
d. verið góð skilyrði fyrir hendi til að reka iðnað, en
markaðurinn fyrir framleiðsluna getur verið svo lítill, að
reksturinn beri sig ekki, af því önnur lönd loka fyrir inn-