Skírnir - 01.12.1915, Blaðsíða 49
Hinn síðasti bardagi Gunnlaugs og Hrafns.
385
rur hefði frjett að Hrafn væri farinn, það er ónákvæmt
orðað í stað »ætlaði að fara« eða því um líkt. En það
gerir nú ekkert til. Gunnlaugur kemur nú til Lifángurs
og fer svo þaðan »í Veradal, og kom þar að kveldi j a f n-
a n, sem Hrafn hafði áður verið um nóttina. Gunnlaugur
fer til þess, er hann kom á efsta bæ í dalnum, er á Súlu
hjet, og hafði Hrafn þaðan farið um morguninn. Gunn-
laugur dvaldi þá ekki ferðina og fór þegar um nóttina;
og um morguninn í sólarroð þá sá hvorir aðra. Hrafn
var þar kominn, sem voru vötn tvö og á meðal vatnanna
voru vellir sljettir, það heita Gleipnisvellir, en fram í
vatnið annað gekk nes lítið, er heitir Dinganes«. Þar nam
Hrafn staðar og þar stóð bardaginn; er honurn lýst ná-
kvæmlega, en hjer þarf ekki að skýra nánar frá honum.
Sje nokkuð hæft í því sem sagan segir, ætti að mega
finna staðinn. Það er ljóst, að hann getur ekki hafa ver-
ið ýkjalángt frá Súlu, sem er hinn efsti virkilegi bær í
Veradalnum enn í dag. Hvort staðurinn væri Horegs-
megin eða Svíþjóðarmegin við ríkjamörkin má auðvitað
standa á sama, því að ekki hefði þeim Gunnlaugi dottið
í hug að taka nokkuð tillit til þess, enda mörkin þá víst
• ekki skýr.
Taki maður nú liðsuppdráttinn nýja, hinn norska, yfir
Veradalinn, finnur maður þegar alfaraveginn frá Lifángri
upp allan dalinn, fram hjá Súlu og áfram að Innusjó,
beygir hann þar norður með vatninu, heldur svo áfram í
norðaustur og liggur svo — ekki lángt frá takmörkunum
— einmitt meðal tveggja smávatna, heitir annað, hið
meira og nyrðra, Breiðavatn (Breivanne), hitt, hið syðra
og minna, er vjer mundum kalla tjörn, Faanet Tjern. Ut
í vatnið meira gengur nes. Þegar af uppdrættinum er það
ljóst, að þessi staður kemur svo vel heim við sögunnar
orð, að ekki væri hægt að finna þann er betur svaraði.
Þ a r n a er staðurinn — verður manni ósjálfrátt að segja.
Þarna er hann líka, óefað.
Til þess að sjá staðinn og kynna mér alla staðhætti
þar nyrðra, fór jeg í sumar alt norður í Veradalinn, og
25