Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1915, Page 24

Skírnir - 01.12.1915, Page 24
360 Nýtt lamlnám. ingur) og Þýzkaland (margar fæðingar). í þessum löndum lyfta menn hverju Grettistakinu á fætur öðru, og þar eru meiri framfarir og framtakssemi en heimurinn hefir áður séð. Gagnstætt er að segja um Frakkland. Þar er tala þeirra, sem eru yngri en 15 ára, að eins 26% af-öllu fólkinu (á Þýzkalandi 35%). Samfara þessu er kyrstaða í öllu atvinnulífi Frakka. Það stafar ekki af því, að fransk- ur æskulýður sé svo miklu ómentaðri og dáðminni en gerist með Þjóðverjum, en hann er of fár til að setja mark sitt á þjóðlífið. Ef þjóðlífið á ekki að kyrkjast, annað hvort af því að fólkið verður of margt til þess að geta veitt sér sæmilegt lífsuppeldi í landinu, eða af því að fæðingum fækkar svo að fólkstalan stendur í stað, verður það að hafa einliverja framrás. Við getum hugsað okkur, að þjóðinni blæði inn í aðrar þjóðir, eins og t. d. okkur íslendingum hefir gert um mörg undanfarin ár, inn í þjóðir, sem síðar kunna að verða keppinautar og andskotar þeirrar þjóðar, sem blóð- tökuna verður að þola, ef til vill hneppa hana í ánauð eða afmá hana með öllu. Við getum einnig hugsað okk- ur, að fólkið flytji í eigin nýlendur og verði þar að nýjum greinum á þjóðarmeiðinum. Það eitt, að þjóðin sé stór og voldug, er ekki lítils virði. Mátturinn, valdið, hefir að sínu leyti sama gildi fyrir þjóðina og einstaka menn, en þó í rauninni miklu meira, af því að milli þjóðanna gilda engin lög, heldur gamlar venjur og ófullkomnar samþykt- ir, sem enginn er til að sjá um að séu haldnar, og allar þjóðir rjúfa þegar þær sjá sér hagsbót í því. Að jafnaði lifa þjóðirnar í friði, en ef til ófriðar kemur, eru smáþjóð- irnar eins og mýs í kattarklóm stórveldanna. Á friðar tímum er hörð samkepni, lífsbarátta, milli þjóðanna, og einnig á því sviði eru stórþjóðirnar að ýmsu leyti betur settar. Sérstaklega er það í þeim atvinnurekstri, sem hlítir lögmálinu um »vaxandi arð«. Með smáþjóð geta t. d. verið góð skilyrði fyrir hendi til að reka iðnað, en markaðurinn fyrir framleiðsluna getur verið svo lítill, að reksturinn beri sig ekki, af því önnur lönd loka fyrir inn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.