Skírnir - 01.12.1915, Page 108
444
Ritfregnir.
Jónas Jónsson: fslandssaga handa börnum. Fyrra hefti.
Reykjavík 1915.
Þetta fyrra hefti skilur við Gissur jarl á grafarbakkanum.
Heftið er á stærð við íslendingasögu-ágripin, sem notuð hafa verið
á skólum vorum til þessa, S1/^ örk í leturdrjúgu broti.
Ekki má það fæla menn, þó að kenslubókin stækki og verði
um leið dyrari. Ef börn eiga að læra af bók, má hún ekki vera
of stutt.
Það eru nokkurn veginn helminga skifti á tímanum, 500 árin
fyrstu, og kann einhverjum til hugar að koma, að söguefnið hljóti
þó að vera töluvert meira seinna missirið í þjóðlífi vor Islendinga.
Mun því vera að játa. En svo mun reynast hjá oss, að drjúgust
verður gamla sagan. Þótt ekki bæri annað til en endursagnar-
ánægjan — eftir söguritunum fornu.
íslandssögu-ágripin eru nóg fyrir — að tölunni — en þessu
nyja er þó vel að taka, sem barnaskólabók. Sagan þessi hjá Jónasi
kennara frá Hriflu er margfalt meðfærilegri fyrir börn en eldri
ágripin. Er því bezt lyst í nokkrum formálaorðum hjá höfundinum:
»Bók þessi er nokkuð með öðru sniði, en eldri kenslubækur í
íslandssögu. Kemur það af því, að hún er eingöngu ætluð börn-
um. Er því lítil áherzla lögð á stjórnarfarssöguna, tímabilsskiftingu,
ártöl eða ættartölur, en meira sagt frá einstökum atburðum, er
mega kallast sögulegir, og ýmsum atriðum menningarsögunnar. Eu
af þessu leiðir, að efninu verður tæplega raðað í nákvæmt kerfi
eftir tímaröð, eins og yrði að gera í sögubók handa unglingum og
fullorðnum mönnum«.
Þetta veit alt í rétta átt til að búa börnum i hendur læsilega
sögu. Helzt að hvað höfundurinn sleppir sór lítið og er enn sjálfur
bundinn við gamla stýl.
Sögubrotin eru jafnmörg eða fleiri en síður eru í bókinni.
Oftar nær yfirskriftin hinum sögulega atburði. Er hún góðra gjalda
verð sú tiiraun, að gjöra sögur úr sögunni, og vel efnir höfundur-
inn það, að koma að ýmsum atriðum úr menningarsögunni. Nokkrar
yfirskriftir mætti þó nefna, sem heldur brjóta bág við þær lífs-
reglur, sem höfundurinn hefir sett sér við þessa barnabók. Nefni
eg t. d.: »afreksmenn«, »kvenskörungar«, »ritöldin«, kirkjudeilur«.
Vænt þykir mór um tilvitnanir í söguútgáfur Sigurðar Krist-
jánssonar. Verður að ætla, að flest börn geti náð til þeirra. Eins
færir það söguna nær, er fornir staðhættir eru leiddir til kunnra.
staða nútímans.