Skírnir - 01.04.1916, Qupperneq 13
Skírnir]
Um Þorleif Guðmundsson Repp.
125
Þá var orðið svo áliðið, að eigi var Þorleifi unnt að sigla
til háskólans það haust, þótt viljað hefði, því að skip öll
voru þá farin frá landinu. Eigi er og víst, að utanferð
hafi þá verið ofarlega í huga Þorleifs, liklegra jafnvel, að
hann hafi hugsað til prestskapar; að minnsta kosti veitir
Geir byskup Vídalín honum prédikunarleyfi, sem þá var
títt að veita prestsefnum; er það dagsett þá um veturinn,
þann 25. janúardag 1814 og er að finna í skjalabögglum
Þorleifs Repps, þeim er áður var getið.
En hvort sem það hefir þá verið áform Þorleifs að
gefa sig i prestskap eða ekki, þá er það þó víst, að brátt
hugði hann á annað ráð, því að árið 1814 fór hann héð-
an af landinu til Kaupmannahafnar til háskólanáms. Kom
hann upp frá því aldrei til íslands aftur lifandi. Eigi munu
fararefni hans hafa verið mikil, og hefir þó faðir hans
lagt honum þann styrk, er hann mátti, en hann var mað-
ur fátækur og skuldugur lengi, að því er hann segir sjálfur
í brétum til Þorleifs sonar síns, sem enn eru til nokkur
og finna má í skjalabögglum Þorleifs, þeim er áður var
getið.
Haustið 1814 gekk Þorleifur undir examen artium og
hlaut einkunnina satis bonurn og var þá innritaður í stú-
dentatölu við háskólann. En árið eftir tók hann svo kall-
að 2. lærdómspróf (examen philosophicum). í fyrstu tók
Þorleifur að nema læknisfræði, en lagði þó einkum
stund á efnafræði og eðlisfræði, og kom það Síðar fram
í ritum hans, að hann bar gott skyn á þessi efni. Þá var
hinn nafnkunni maður H. G. Örsted kennari við Kaup-
-temporum varia incommoditate et insalubritate impeditus sequi nequeat,
nulli nunc dubitamus adolescentem nostrum, bene moratum, quippe honesta
dimissione dignum, rude scholastica donare, atque faustissimis denique
eum prosequentes votis, omnibus præclari ingenii fautoribus et patronis
•ex animo commendamus.
Dabam Lambhusis die 20 ° Octobris 1813.
J. Johnæus
Lect. theol. constit.*1
(L. S.).