Skírnir - 01.04.1916, Síða 74
186
ÞegnskylduvinDa.
[Skírnir
verða þetta fyrir 750 manns 108 000 krónur. Og af þess-
um mönnum vinna minst helmingur, áður en sildvinna
byrjar.
Að ætla hverjum manni upp og ofan 100 krónur í
kaup á mánuði til jafnaðar, auk fæðis, er gegndarlaus
fjarstæða, þótt Einar Helgason haldi því fram í 3. tölubl.
XI. árg. Lögréttu. Eg veit, að þetta getur átt sér stað
rétt af hendingu um einstaka mann.
Frá því að menn leysa þegnskylduvinnu af hendi,
mun að jafnaði mega telja að menn vinni fulla vinnu í
nær 30 ár. Menn verða því að hafa lært svo rnikið í
þegnskylduvinnu, að þeir geti með hagkvæmari verkfær-
um og vinnubrögðum, verklegri kunnáttu og betri verk-
stjórn sparað sér um 5 dagsverk á ári yfir þetta nær því
30 ára skeið. En ef nokkurt lag verður á þegnskyldu-
vinnunni, er sjálfsagt verður að heimta og koma í fram-
kvæmd, þá sparar hún hverjum verkhæfum manni marg-
falt meira. Þegar fram í sækir, verður því mun meira
unnið í landinu, þótt þegnskylduvinnan sé alveg dreg-
in frá.
5. A ð heimilin mistu tilfinnanlega mikla vinnu, ef
menn færu frá þeim í þegnskylduvinnuna. Hér er »stung-
ið á kýlinu«. Frá því fyrsta að þegnskylduvinnunni var
hreyft, heíi eg stöðugt fundið, að í raun og veru lægi aðal-
mótstaðan í þvi, að erfiðara yrði að fá menn til vana-
legrar vinnu. En það er hér sem fyr, að of mikið er gert
úr þessu. Matthías alþm. Ólafsson hefir sýnt fram á, að
þetta væri hverfandi, þegar þess væri gætt, að það yrðu
aðeins 4—5 menn, er mistust 12 vikur á ári úr hverju
sveitarfélagi að jafnaði. Og við umræður málsins á þingi,
heyrði eg Guðmund alþm. Hannesson segja, að eins og nú
stæði, mundu það eigi vera nema tæpir 20 manns, er tækju
árlega þátt í þegnskylduvinnu til jafnaðar í allri Húna-
vatnssýslu.
Því skal ekki neitað, að vinnan færist til, og á ein-
staka heimili verður unnið minna fyrst í stað en áður var.
En eins og þegar er bent til, verður meira unnið í land-