Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 89
91
6102.
6103.
6104.
l0/ia Rúmfjöl gömul, útskorin annars vegar, með greiiium
og blöðum eftir miðju og á endum, en höfðaleturslinu
fram með brúnum; stendur þar: Gud giefe oss goodar
nœtur | gud hialpe oss vel a fœtur | i nafni fedur so...
24/la Ólafur Halldórsson, Fróðastöðum: Snældusnúður úr
fitusteini, hálfkúlumyndaður, þverm. 3,7 sm., vídd gats-
ins 1,2 sm. Fundinn á Ásbjarnarstöðum í Mýrasýslu.
— Óviss gefandi: Svuntuhnappur gamall úr silfruðu látúns-
víravirki.
Vídalínssafn.
Prófessorsfrú Helga Matzen, áður frú Jóns Vídalíns konsúls, heflr
með bréfi sínu til forstöðumanns safnsins dagsettu 30. júlí 1910 til-
kynt að hún vildi þegar afhenda safninu flesta þá gripi, tilheyrandi
Vídalínssafni, sem hún hafði áskilið sér rétt til að hafa undir hönd-
um til æviloka, og samkvæmt bréfi sínu 3. september s. á. afhenti
hún gripina Jóni Krabbe skrifstofustjóra íslenzku stjórnarskrifstof-
unnar í Kaupmannahöfn, sem veitti þeim þar móttöku fyrir hönd
forstöðumanns safnsins og sendi safninu þá með bréfi dags. 10. s. m.
Gripirnir komu til safsins 21. september, og eru þessir sem nú skal
greina:
Söðuláklæði 6 að tölu, glitofin.
Veggskápur útskorinnn að framan, syndafallið á hurðinni og
stendur »Healmar« uppi yfir í rúnum; skápurinn er vafalaust eftir
Hjálmar skáld Jónsson frá Bólu.
Altaristafla útskorin úr eik; Kristur í miðju sem konungur him-
ins og jarðar. Verkið og gerðin öll (»barok«-stíll) bendir helzt á að
taflan sé útskorin af Guðm. smið Guðmundssyni í Bjarnastaðahlíð,
sem gerði skírnarfontinn í Hólakirkju og nokkra af legsteinunum þar.
Altaristafla (predella?) með kvöldmáltíðinni á málaðri mjög illa.
Spjöld úr prédikunarstól, 5 að tölu, með á máluðum Kristi og
guðspjallamönnunum, fremur gott verk; öll sett saman í eina um-
gjörð.
Trafakefli, yfirkeflið, allvel útskorið úr beykitré; á því er með
höfðaletri upphaf af erindinu: »Heiður sé guði himnum á« o. s. frv.
Brauðmót skorið annarsvegar; á því stendur með latínuletri:
»Guð blessi brauðið v«.
12*