Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 42

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 42
44 hálfkringlunni) því víðast hvar um 55” (144 cm). Jaðar kápunnar að neðan, hálfhringurinn, er 7 ál. (4,4 m) að lengd, en ætti víst að vera 5 þuml. lengri, ef hann væri réttur og fullur hálfhringur við fram- jaðarinn á borðunum, sem er eins og áður var sagt 110 þuml. Hún er þannig sniðin, að hver helmingur er saumaður úr jafnmörgum hlutum og svarar hver hluti annars vegar til annars, sem eins er að stærð og lögun, hins vegar, en saumur er niður eftir miðju baki. Á börmunum eru beggja vegna útsaumaðir borðar eða gullhlöð (aurifrisiœ), og verða þau að framan er kápan er lögð yfir herð- arnar, en fyrir miðju er skjöldur, útsaumaður eins og borðarnir, og verður hann aftan á hálsi og nær niður á bakið; skal þessu lýst nánar síðar. Borðarnir eru saumaðir framan við fluélsyfirborðið, en það gengur nokkuð inn undir skjöldinn, og er hann laus við að neðan, en fest efst og um miðju. Undir skildinum sérstaklega er svart léreftsfóður og undir borðunum og skildinum hefir innan á hvíta léreftsfóðrinu, sem er undir allri kápunni, verið sett, vist upp- runalega, rauðleitt léreftsfóður, sem er jafnframt brydding á allri kápunni að framan. Fluélsbútarnir eru þannig sniðnir í hvorum helmingi kápunnar (sbr. myndina): fremst mjór þríhyrndur geiri, mjór upp og er oddurinn efsti sérstakur og saumaður við; síðan dúkur með allri breidd fluélsins, 21Va” (56,2 cm) milli sauma, —breiddin á dúkunum er hér um bil 1 Hamborgar-alin, — og ámóta dúkur verður aftast, við baksauminn, en neðst verður þríhyrnt bil á milli þeirra, og eru í því þeir þríhyrndu bútar 2, sem skárust af hornun- um á aðaldúkunum þar sem þeir voru saumaðir saman; er flosið í þríhyrningunum því móthverft flosinu á aðaldúkunum, en með þessu sparaðist allmikið efni; flosið í aðaldúkunum horfir út (eða niður) á við. Við aftari dúkinn er aukið efst litlum ferhyrndum bút, sem gengur að mestu upp undir skjöldinn; við baksauminn hafa enn- fremur sniðist hornin af bakbútunum og þar aukið í litlum geirum. Saumarnir flestir sjást á meðfylgjandi mynd. Fluélið i kápu þessari er einkar fallegt og sterkt; heflr það haldist furðanlega vel svo langan aldur. Það er einstaklega vel unnið og aðdáanlegt verk á því, er að er gætt að það er auðvitað oflð í litlum og einföldum vefstól. Hið listmesta og dýrmætasta á kápunni eru þó borðarnir á börmunum og skjöldurinn. Borðarnir eru báðir jafn- langir og jafnbreiðir, 48” (125,5 cm) að lengdogö1/*” (16,3 cm) að breidd. Þeir eru úr þykkum striga og er léreft yfir honum, en það er al- þakið mjög skrautlegum útsaumi, og eru sporin í gegnum léreftið og strigann. Undir striganum er aftur gisinn strigi sem fóður, en innan undir honum kemur svo kápufóðrið og innan á því aftur lérefts-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.