Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1911, Blaðsíða 87
89
6088.
6089.
6090.
6091.
6092.
6093.
6094.
6095.
l*/u Sama (afh.): Grafskrift yfir Björn Olafsson (d. 1823)
og Ingibjörgu Jónsdóttur (d. 1820) frá Tungufelli; skrif-
uð með gulu letri á svart tréspjald lítið; st. 22X16,3 sm.
u/u Moritz Halldór8son læknir, Park River, N. D.: Vín-
bikar (-skál) lítil úr eiri, h. 3,1 sm., þverm. 5,7 um
barma, næi hálfkúlumynduð; hvylft upp í botninn.
Uppi við barmana er stungið að utan með venjulegu
snarhandarletri: »Trinck mich aus : Leg mich nieder :
Steh ich auf : So Fiill mich Wieder : l-7-7'3«. Vínskál
þessi er komin til Ameríku frá Islandi; hún hefir lengi
verið sögð að hafa verið ferðabikar prests eins á Ríp
i Skagafirði. Sbv. nr. 2717, úr silfri, o fl. líkar.
— Jóhannes Kjarval málari, Reykjavík: Steinlampi, höggv-
inn úr mógrjóti, kringlóttur að ofan, en að neðan ganga
út eyru beggja vegna og eru göt á þeim; í götin hefir
verið dregin ól eða band og lampinn getað orðið hengd-
ur upp (sbr. nr. 5561, sjá Árb. ’08, 39—40). Þverm.:
um eyrun 19,8 sm.. og mitt á meðal þeirra 16,4 sm.;
hæð mest 6,5 sm.; dýpt skálarinnar um 2 sm.; innan í
henni er svört skán eftir ljósmetið. Fundinn um 3 áln.
í jörðu í G-eitavík í Borgarfirði eystra.
— Sami: Steinlampi, vel höggvinn eða tiltelgdur úr gi'áu
mógrjóti, kringlóttur og flatur, þverm. um 17 sm., hæð
5,8 sm. Skálin dýpst í miðju 1,5 sm., með svartri skán
innan í. Fundinn s. st.
— Sami: Steinlampi vel gerður og sléttur utan, nokkuð
hnöttóttur, ílangur þó nokkuð og flatur, 1. 11,3 srn., br.
8,6 sm., hæð 5,3 sm.; dýpt bollans 2,7 sm.; 1. um 6,5
sm. og br. um 4,3 sm. efst; út úr öðrum enda hennar
er skarð í barminn fyrir kveykinn. Svört skán innan í.
Fundinn sama staðar og nr. 6090—91. — Það virðist
nú öldungis vafalaust, að þessir og líkir bollasteinar,
er víða hafa fundist hér á landi, séu lampar frá fornöld.
19/u Thora Melsteð, Reykjavík: Hnakkur Páls Melsteðs sagn-
fræðings. Hann er með hinu venjulega nýrra lagi, með
koparístöðum vönduðum, reiða, ólum og yfirdýnu, en
gjörð vantar. Mun vera frá því um miðja síðustu öld.
— Ásgeir Sigurðsson, Reykjum í Lundarreykjadal: Látúns-
hnappur lítill, kúptur, jarðfundinn.
— Sigríður Gísladóttir, Laugardalshólum: Látúnshnappur
flatur, með gagnskornu verki, i likingu við blóm.
12